You are elegant, withdrawn, and brilliant. Your mind is a weapon, able to solve any puzzle. You are also great at poking holes in arguments and common beliefs. For you, comfort and calm are very important. You tend to thrive on your own and shrug off most affection. You prefer to protect your emotions and stay strong. |
miðvikudagur, ágúst 03, 2005
Fyndið, stysta persónuleikapróf í heimi:)
fimmtudagur, júlí 28, 2005
Fékk þetta sent um daginn og sendi áfram á einhverja en ég man ekki hverja ... þannig að ég ætla bara að blogga þetta:)
The European Commission has just announced an agreement whereby English will be the official language of the EU rather than German which was the
other possibility. As part of the negotiations, Her Majesty's Government conceded that English spelling had some room for improvement and has accepted a 5-year phase-in plan that would be known as "Euro-English".
In the first year, "s" will replace the soft "c". Sertainly, this wil make the sivil servants jump with joy. The hard "c" will be dropped in favour of the"k". This should klear up konfusion and keyboards kan have 1 less letter. There will be growing publik enthusiasm in the sekond year, when the troublesome "ph" will be replaced with "f". This will make words like "fotograf" 20% shorter. In the 3rd year, publik akseptanse of the new spelling kan be ekspekted to reach the stage where more komplikated changesare possible. Governments will enkorage the removal of double letters, which have always ben a deterent to akurate speling. Also, al wil agre that the horible mes of the silent "e"'s in the language is disgraseful, and they should go away. By the fourth year, peopl wil be reseptiv to steps such as replasing "th" with "z" and "w" with "v".
During ze fifz year, ze unesesary "o" kan be dropd from vords kontaining "ou" and similar changes vud of kors be aplid to ozer kombinations of leters.
After zis fifz yer, ve vil hav a reli sensibl riten styl. Zer vil be no mor trubl or difikultis and evrivun vil find it ezi to understand ech ozer.
ZE DREM VIL FINALI KUM TRU! And zen ve vil tak over ze vorld!!!!!!!!!
góðar stundir

Klukkan er hálftvö og það er verið að bora einhvers staðar í húsinu eða í næstu íbúðum ... æðislegt!!:) ... hefði að vísu ekki heyrt það ef ég væri sofandi en þar sem ég er það ekki þá get ég að sjálfsögðu fyllst réttlátri reiði yfir tillitsleysi nágranna minna og hnussað yfir hávaðanum:) .... held samt að framkvæmdirnar séu búnar núna ef framkvæmdir mætti kalla, þetta var ábyggilega bara ein skrúfa:)
Eyjar ekki-á-morgun-heldur-hinn og ég er barasta farin að hlakka slatta til:) held það verði rosalega gaman:) ég á að vísu eftir að skrifa heilan haug af ferðasögum og núna er önnur að bætast við þannig að ég er að hugsa um að lofa ekki neinu varðandi ferðasögur ... hverjum langar til að lesa svoleiðis hvort sem er? miklu skemmtilegra að lesa um það að fugl hafi skitið á höfuðið á mér og þannig er það ekki? jújú:)
hælæts eru málið - hælæt dagsins fuglaskíturinn? nei ... þrír latte á þremur kaffihúsum fyrir hádegi kannski frekar? eða graflaxinn sem ég var að fá gefins og get ekki beðið eftir að prófa? eða samræðurnar við gaurinn í gæludýrabúiðinni minni sem sagði mér alls konar sögur af því hvernig "óæðri" kattamatur (sem hann selur EKKI) er búinn til - frekar viss á því að þetta séu þjóðsögur að vísu en skemmtilegar þrátt fyrir það:)? eða það að ég skuli vera að blogga við opnar svaladyr klukkan að verða tvö og mér er ekki baun kalt þó ég sé berfætt? eða maturinn sem ég fékk hjá mömmu í kvöld? eða löggan sem var að hóta mér?:) ... ekkert alvarlegt samt, við erum skyld:) eða allt fólkið sem ég talaði við í dag? ... talaði við óvenjulega marga í dag, í persónu, í síma og á msn ... keypti vindsæng áðan líka og bakpoka á 500 kall sem ég verð ekkert sár ef ég týni um helgina því hann kostaði bara 500 kall - búið að vera fínn dagur almennt séð:)
hvað ætli gerist á morgun?:)

miðvikudagur, júlí 27, 2005
Ég er heppnasta kona landsins!!!!
í morgun skeit fugl á hausinn á mér í ÞRIÐJA SKIPTIÐ Í SUMAR!!! bara í sumar ... þá er ég ekki að telja með alla "fuglaskíta á hausinn" um ævina, bara síðan 21. apríl síðastliðinn ... það er víst góðs viti að fugl skíti á höfuðið á þér en fyrr má nú fyrr vera:)
annars er ég lúmskt sátt við þetta, ekki skítinn sjálfan heldur það sem hann boðar, því ég verð að viðurkenna þetta sumar er búið að vera hreint æðislegt í alla staði og ég hef sjaldan haft það eins gott:) ég held að fuglaskíturinn og að vera bara í einni vinnu sé alveg að gera sig:) ég er einungis að vinna 8 tíma á dag þannig að mér líður eins og ég sé búin að vera í fríi í allt sumar:)
góðar stundir og þakkið æðri máttarvöldum fyrir að beljur skuli ekki hafa vængi:)

þriðjudagur, júlí 26, 2005
komin heim eftir æðislega helgi á Kirkjubæjarklaustri með Þjóðbrókunum Eddu, Pálínu, Bryndísi og Júlíönu (sem ætlar að fá sér blogg áður en hún fer til Bandaríkjanna, er það ekki?:)) það var klikkað gaman:)!!
er soldið sólbrennd eftir Stjórnarfossa hoppið (sólarvörnin hefur víst öll skolast af í vatninu því ég brann þvílíkt ...) en er að skána núna og verða jafnari, meira brún og minna rauð:) ef þið eruð einhvern tímann á Klaustri þá mæli ég hiklaust með því að þið "stökkvið Stjórn" eins og það er kallað, forðist laganema (mér fannst þeir frekar ... merkilegir:)) og fáið bóndann til að leyfa ykkur að prófa fjórhjólið sitt!!!:)
ofsalega gaman og ég skal skrifa almennilega ferðasögu þegar ég er ekki í vinnunni:) ... þangað til getið þið kíkt á sögurnar hjá stelpunum:)
góðar stundir og allt fyrir þig Ásdís:)

miðvikudagur, júlí 20, 2005
fór í Nauthólsvíkina og í sjóinn í gær með Grétu því veðrið var svo rosalega gott:) svo fór ég í klippingu ... en ég gekk ekki sérlega langt þannig að það sést varla að ég hafi verið í klippingu fyrir utan það að hárið er miklu "snyrtilegra" en það var:) ég er nefnilega að hugsa um að safna hári aftur aðeins ... kannski hætti ég samt við og klippi mig stutt aftur ef veðrið heldur áfram að vera svona gott:) og í gærkvöldi fór ég svo út að borða á Ítalíu:) ekkert smá góður matur ... soldið lengi á leiðinni á vísu vegna mistaka í eldhúsinu en við fengum bara í staðinn eftirrétt og drykki í boði hússins sem var rosalega fínt barasta:) ... að vísu vorum við svo lengi úti að borða að við komumst ekki í bíó en förum bara seinna í staðinn:)

og í morgun fór ég í sund!!!! ég er sko með ofnæmi fyrir klór en ég fór í sund fyrir vestan og fann ekkert fyrir því þannig að ég varð að fara í sund aftur til að tékka á þessu undri og stórmerki ... leg ... heitum (ok, aftur komin í vandræði vegna íslensku-fávisku, er kannski ekki hægt að nota þetta í þágufalli? ... :))
jújú, fór og synti 1000 metra og finn barasta ekki neitt fyrir því!!!!:) mér líður ekki eins og ég "sé í" bolnum ennþá (fannst ég alltaf vera í honum lengi eftir sundið því ég var svo aum eftir öll samskeyti í honum:) ... ég ætla samt bara í Nauthólsvík á morgun ef veðrið er svona gott - ætla ekki að storka örlögunum og þannig:)
... talandi um Nauthólsvík, krakkarnir sem vinna á ylströndinni eru með blogg;)
lifið heil og til hamingju með sumarið sem virðist loksins vera komið ... aftur:)

mánudagur, júlí 18, 2005
ætla að prófa að pósta inn mynd í vinnunni og athuga hvort það sé tölvan mín sem sé að eipsjitta eða hvort að blogger.photos sé ábyrgur fyrir pikklesinu ...

jújú, haldiði ekki að tölvan mín sé sökudólgurinn!! ... ég veit svo sem alveg hvað er að, 60 GB er rosalega mikið en samt ekki neitt klikkað mikið þegar fólk eins og ég hugsar ekkert um jafnvel 60 GB geti klárast:)
fer heim á eftir, tæmi eitthvað út af tölvunni og pósta myndum:)

ég held að Haukur litli frændi minn hafi meint það sem hrós í gær þegar við vorum að tala um konur og föt og hann sagði: "þú ert ekki svoleiðis, þú skiptir aldrei um föt" ... næst þegar ég hitti þá ætla ég að vera í eldrauðum bol og skærgulum buxum:)
þeir sjá ekki tilganginn með því "að skipta um föt 365 daga ársins!!"
góðar stundir
þeir sjá ekki tilganginn með því "að skipta um föt 365 daga ársins!!"
góðar stundir
föstudagur, júlí 15, 2005
miðvikudagur, júlí 13, 2005
góðan og blessaðan:)
ég er miklu hressari en ég var í gær en ég veit ekki hvort það sé vegna þess að ég er raunverulega hressari eða kemst eiginlega ekki upp með annað en að vera hress? pæling?:)
strákarnir eru út í byssó núna og ég er á leiðinni í sturtu áður en ég skutla þeim í afmæli í Garðabæinn:) í morgun/dag höfum við farið tvisvar út að ganga með hundinn og leikið við hana í boltaleik, borðað morgunmat og hádegismat - Honey Nut Cheerios var (meðal annars!!) á borðum báðar máltíðirnar:/ athugað með kofann sem þeir byggðu á smíðavellinum og átti að koma í dag en kemur líklega ekki á morgun heldur ... löng saga og við teiknuðum kort í sameiningu fyrir bílstjóran ef við skyldum ekki vera heima:)
... farin í sturtu

þriðjudagur, júlí 12, 2005
þetta getur ekki verið kvef sem ég er með!! kvef er bara í einn tvo daga, þrjá daga í mesta lagi svo er fólk aðeins slappt í nokkra daga en alveg heilbrigt ... þriðjudagur í dag, ég varð lasin á föstudegi og ég er ennþá lasin, illt í augunum, hnerrandi, hóstandi og sit bara upprétt í smástund í einu áður en ég fer aftur inn í rúm til sofa og hvíla augun ...
... og ég er að flytja inn til þriggja ungra manna á eftir þangað til næsta mánudag, þeir eru tveir níu ára og einn ellefu ára þannig að það er varla hægt að segja að ég sé að fara að passa þá, er það nokkuð? jamms, og Kolka, hún er Labrador:) ... það er internet í húsinu þannig að þið eigið ábyggilega eftir að heyra í mér en ég ætla að fara að sofa núna - og einbeita mér að því að batna:)
góðar stundir
mánudagur, júlí 11, 2005
ennþá lasin ... nenni því eiginlega ekki neitt því ég hef svo margt annað betra að gera:)
vildi láta ykkur vita að Bryndís er byrjuð að blogga!!:) til hamingju og feitt sem ég ætla að kíkja daglega á síðuna þína - verður að vera dugleg:)

sunnudagur, júlí 10, 2005
ég er lasin í dag alveg eins og í gær þannig að ég er bara búin að vera að hanga og horfa á vídeó í allan dag ... og í gærkvöldi:) soldið kúl að liggja bara og glápa því ég var komin aðeins eftir á, ég var ekki búin að sjá neitt sem allir virtust vera búnir að sjá, Million Dollar Baby, Eternal Sunshine of the Spotless Mind, Life Aquatic with Steve Zissou, American Splendour, Closer (flestar í boði Péturs, þakka þér, þakka þér:))
... fór líka að pæla í jólunum, margir mánuðir í þau ég veit en þau koma samt alltaf alltof fljótt:) kannski næ ég að senda jólakort þessi jól? kannski ... don't hold your breath;)
ætlaði að njóta þess að vera í bænum þessa helgi og hef svo sem alveg gert það en mikið rosalega er það leiðinlegt að vera lasin!!! alveg búin að fá nóg :) ... verð ekki í bænum um helgi fyrr en í ágúst, verð með stráka systur minnar næstu helgi og við ætlum að fara með þá á Bryggjuhátíð á Drangsnesi, helgina eftir það er það Kirkjubæjarklaustur með stelpunum svo Þjóðhátíð í Eyjum!!!:) ... farin að hlakka til:)
forðist kvef, þau eru leiðinleg
lifið heil og hraust

miðvikudagur, júlí 06, 2005
var að koma heim eftir annan brenniboltahitting sumarsins með Brenniboltafélaginu Skúla - rosalega var gaman:) ég anga af grasgrænu eftir nokkur snilldar-slæd (sem btw redduðu mínu liði í Kýlóinu eina stiginu sem við fengum!!:)) og er að hugsa um að henda buxunum ef hún næst ekki úr (eða hafa þær bara svona grænar og fagrar, svona battle-scar-buxur??) frekar en að fara til mömmu og biðja hana um að hjálpa mér - hef nefnilega stundum smá áhyggur af því að hún einfaldlega gefist upp á mér;) henni lýst til að mynda ekkert sérstaklega vel á að ég ætli að verða atvinnumaður á línuskautum einhvern daginn því það er hún sem endar alltaf á því að sauma buxurnar mínar þegar ég dett ... sem er þó nokkuð algengt - og ekki bara á línuskautum;) eins og frægt er orðið í fjölskyldunni þá er ég eina manneskjan sem hef dottið um sjálfa mig á þurru malbiki og handleggsbrotnað - held það hafi enginn einu sinni brotið bein í minni nánustu fjölskyldu ... nema pabbi sem braut tá ... við merkilegar aðstæður:) en við erum auðvitað skyld:)
anívei, við fórum í Brennó og Kýló og Skotbolta og að lokum í eina Einu krónu þar sem ég var'ann og náði öllum nema Hannesi:) ... sem var smá asnalegt því hann var sá eini sem var í eldrauðum stuttermabol og hefði átt að sjást fyrstur og langbest:)
auðvitað tók ég myndir:)

þið sjáið þemað, önnur myndir sýnir hvað við erum hrikalega ákveðin og til í að leika okkur og hin sýnir auðvitað hvað við erum rosalega skemmtileg og hress og ung í anda að vilja fara út í leiki á kvöldin:) þetta er "byrjunar-hópurinn" en svo bættust fleiri við - alltaf skemmtilegt þegar það eru fleiri með:) svipuð uppstilling og sama þema, alvarleg og hress:)

... sjáum svo hvernig þetta kemur út þegar ég publisha ... :)
komst að því að Rut frænka mín er með blogg:) og í gegnum það að litla systir hennar Margrét, sem er einnig frænka mín, bloggar líka - ekkert verið að segja frá því Rut??:)
en ég mæli hiklaust með því að fólk fari í leiki á miðvikudagskvöldum í sumar, það er ábyggilega ekkert betra í sjónvarpinu? ... annars er ég komin aðeins útúr dagskránni því ég kveikti síðast á tækinu mínu 19. maí ... minnir mig?? hvenær var Júróvisjón annars?:)
allir út í leiki!!!
... og lifið heil

þriðjudagur, júlí 05, 2005
Gunnar litli bróðir minn og Debbý kærastan hans eignuðust litla stelpu í nótt:)
14 merkur og 53 sentimetrar, fæðingin gekk mjög vel og mæðgurnar eru báðar við hestaheilsu:) litla stelpan er að sjálfsögðu gullfalleg og róleg - en henni er alls ekkert vel við að láta sprauta sig þannig að hún getur alveg látið heyra í sér;)

mánudagur, júlí 04, 2005
... ætla að fara að raða blogg-linkunum hérna til hægri en ég veit ekki ennþá hvernig er best að raða þeim? stafrófsröð? eftir háralit bloggaranna? aldri? virkni? aldri? magni? lit?:) nenni ekki að velta því fyrir mér núna:)
ég náði mynd af köttunum saman áðan ... þeir eru að vísu undir sófa þannig að það sést alveg hvað ég hef ekki verið dugleg við að ryksuga undanfarið - enda hef ég ákveðið að taka bara til þegar rignir í sumar og það hefur ekki rignt svo mikið undanfarið ef frá er skilin helgin en þá var ég í útilegu:)
hérna er sem sagt myndin af þeim saman, Fídel til vinstri og Seifur til hægri
jamms og útilegan:) ... við fórum sem sagt út úr bænum á föstudagskvöldið og fórum inn í Þórsmörk með smá stoppi á Hvolsvelli. Þegar við komum inn í Mörkina var smá rigning þannig að við fórum bara í pollagallann, tjölduðum og grilluðum kvöldmatinn:) kvöldið var mjög skemmtilegt þó það hafi verið frekar blautt, hittum fullt af fólki þar á meðal Fríðu Kristínu af Nesinu og vinkonur hennar (eða systur eða frænku ... ég gafst upp á því að skilja skyldmenni Fríðu fyrir löngu:)) að lokum fórum við öll að sofa sannfærð um að við myndum vakna í sól á laugardeginum:)
það var ekki beint sól um morguninn en ekki hellidemba heldur:) þar sem þetta var jeppaferð var farið í bíltúr, fyrst yfir í Langadal og yfir Krossá, auðvitað, bara til að vera viss um að jepparnir kæmust yfir hana svona vatnsmikla:) svo héldum við á Sólheimasand og skoðuðum flugvélaflakið
og fórum niður í fjöru þar sem loka? fór í drifi eins bílsins og strákarnir, allir sem einn, voru strax farnir að gera við - hvað þarf marga jeppastráka til að gera við drif? ... alla:)
á meðan spiluðu stelpurnar hacky-sack í fjörunni ... sá leikur breyttist reyndar seinna um kvöldið í "handy-sack" drykkjuleikinn sem ég er alveg tilbúin til að kenna ykkur við eitthvað gott tækifæri:) 
myndavélin mín var í bílnum þannig að ég gleymdi að taka myndir á tjaldsvæðinu og á bara myndir af laugardagsbíltúrnum og ferðinni heim ... en það voru alltaf myndavélar á lofti þannig að ég bæti þeim bara inn seinna ... eða linka á þær:)
þegar við komum til baka á laugardeginum grilluðum við kvöldmatinn í alveg ágætis veðri og fórum svo á varðeldinn þar sem ég hitti Arnór úr MR:) hann tók fullt af myndum og má sjá þær hérna
það var mjög gaman á laugardagskvöldinu, það hélst þurrt næstum allt kvöldið og ég skemmti mér alveg konunglega við að labba um svæðið og tala við fullt af fólki ... jamms, mjög gaman:) þegar við vöknuðum á sunnudeginum var aftur komin hellidemba þannig að við tókum dótið okkar til, komum því í bílanum og lögðum af stað í bæinn en ferðin til baka tafðist aðeins vegna þess að árnar voru orðnar mjög vatnsmiklar og ekki auðfærar minni bílum ... Musso jeppi fór á kaf og Birkir á Willis-jeppanum sínum kippti honum upp og Gunni og Bassi redduðu vélinni þannig að hún komst í ganga aftur ... blogger-photodæmið er skyndilega hætt að virka þannig að ég set bara inn myndir af viðgerðinni seinna:) ... kannski er kvóti á myndafjölda per blogg-færslu?
þegar Mussoinn var við það að komast í gang drukknaði vélin í öðrum bíl, Korando diesel bíl í þetta skiptið, hann var líka dreginn á þurrt og Sveinbjörn, Gunni og Bassi byrjuðu að gera við þennan líka áður en það var ákveðið að draga hann bara í bæinn:)
við stoppuðum á Gallerý Pizzu á Hvolsvelli þar sem pizzan er bara slatta góð og franskarnar líka en ég vara ykkur við, ef þið ákveðið að panta ykkur franskar þá dugar lítill skammtur fyrir átta ... stór skammtur er fáránlega stór:) ... jamms... ég tók mynd af honum:)
komum í bæinn, bar dótið inn úr bílnum í grenjandi rigningu, hengdi dótið mitt upp, fór í langa og heita sturtu og svaf eins og ungabarn í marga, marga klukkutíma:)
og já, ég er núna stoltur eigandi miða á Þjóðhátíð í Eyjum:) og ég er barasta farin að hlakka til!!:)

komin í bæinn og í vinnuna eftir mjög skemmtilega helgi í Þórsmörk:)
myndir og ferðasaga á eftir þegar ég er í minni eigin tölvu en núna ætla ég að láta nægja einn lítinn brandara í boði Laufeyjar Einarsdóttur:
En dværg og en blondine ventede på bussen, og da den kom, skubbede
blondinen dværgen væk og masede sig ind foran. Dværgen blev sur og sagde:
– Du behøver ikke at være så fræk din tåbelige brunette.
– Jeg er ikke brunette, men blondine.
– Ikke som jeg ser det…

fimmtudagur, júní 30, 2005
Einn góður frá Ásdísi:
A Test for Children
A college professor was doing a study testing the senses of first graders, using a bowl of lifesavers. He gave all the children the same kind of lifesavers, one at a time, and asked them to identify them by color and flavor.
The children began:
"Red............cherry,"
"Yellow.........lemon,"
"Green..........lime,"
"Orange........orange."
Finally the professor gave them all a HONEY-flavored lifesaver.
After eating them for a few moments none of the children could identify the taste.
"Well," he said "I'll give you all a clue. It's what your mother may sometimes call your father." One little girl looked up in horror, spit hers out and yelled, "Oh My God!!!! They're assholes."

miðvikudagur, júní 29, 2005
góðan og blessaðan:)
það er e-mail vesen á mér og fólk er alltaf að spyrja hvaða mail ég nota þannig að til að hafa það á hreinu þá er ég með mail í vinnunni sem ég skoða á hverjum virkum degi, það er hægt að finna á heimasíðu vinnunnar minnar (vil ekki vera að setja það hingað á bloggið:)) svo er ég líka með gmail fyrir stærri póst og ég reyni að vera dugleg að kíkja á það daglega:) gmailið er sem sagt fullt nafn mínus dóttir í einu orði og ekkert bandstrik @gmail.com .... eeehhh svo getið þið líka bara klikkað á "Sendu mér bréf" linkinn eða "Láttu mig vita ef þig vantar" linkinn:)
... já og þeir sem hyggja á línuskautakaup þá er víst best að kaupa Salomon eða Rollerblade því þeir eru góðir, fást í öllum stærðum og gerðum og auðvelt að fá varahluti í þá:)

þriðjudagur, júní 28, 2005
come, be blessed and be happy
... ég á alltaf eftir að setja þessa snilldar auglýsingu inn hérna svo þið sjáið hvað ég er að fara með þessu "heilsi"/ávarpi - Maja, feel free to comment:) ... ég ætlaði að senda hana inn á eftir því ég á í smá tæknilegum vandræðum með hana en ... jú ég set hana inn á eftir með Hello:) hún vill ekki snúa rétt og cropið eyðileggst ef ég tek hana beint af tölvunni minni og í gegnum blogger - skiptir ekki máli:)
ég var að fatta áðan að það er eiginlega ómögulegt að leika við tvo ketti í einu án þess að verða skotmark, ég var að reyna það nefnilega, var að leika við Seif með banddóti og Fídel með leikfangamús en ég gat ekki fylgst með báðum í einu en þeir voru hins vegar báðir mjög einbeittir að ná bráðinni ... sem þeir föttuðu skyndilega að væri raunverulega hendin á mér, ekki bandið og ekki músin - þeir verða bara sjálfir að sjá um sín skemmtiatriði héðan í frá, nema þegar fleiri en ég er að leika við þá, það ætti að virka:) set inn mynd af þeim saman þegar ég næ góðri mynd:) ... þeir eru að verða vinir, hef ekki heyrt hvæs í lengri tíma ... en þeir eyða samt ofsalega miklum tíma í störukeppni og vita alltaf, alltaf hvar hinn er:) frekar fyndið:)
ætlaði á kaffihús með línuskautahópnum, H-línunum, í gærkvöldi eftir námskeiðið en ég varð að koma við á nokkrum stöðum áður en ég komst þangað því mamma og pabbi voru á leið heim frá útlöndunum og þá voru allir farnir ... en Dagný Ásta, Eva, Sirrý og Lilja (ekkert blogg?) voru þar og ég gate-crashaði hittinginn þeirra, vona að það hafi verið í lagi:) ég skemmti mér amk mjög vel:)
svaf yfir mig í morgun og missti af rigningunni sem ég ætlaði að nota til að taka til í ... verð að fara að gera það bráðum:) ... er ekki spáð rigningu út vikuna? þá næ ég vonandi að taka eitthvað til áður en ég fer í Þórsmörk:)

ok ... ég er ekki alveg orðin fullnuma í línuskautum, eiginlega bara alls ekki en feitt sem ætla ekki að gefast upp!!:) alls ekki ... þetta er bara spurning um að æfa sig betur og kaupa sér nýja skauta:)
kennara-gaurinn í gær sagði að skautarnir sem ég á eru ekki sérlega góðir því þeir eru þannig að það er hægt að taka skautana undan þeim (t.d. ef þú kemur að mjög brattri brekku sem þú treystir þér ekki til að fara niður rúllandi) og mér fannst það rosalega góð hugmynd - gaurinn í búðinni var sammála mér, hann sagði að þetta væru flottustu skautarnir á markaðinum þannig að ég keypti þá ... EN þegar þú ert að kaupa línuskauta viltu fá þyngdarpunktinn fram í tærnar ekki á hælana eins og í venjulegum skóm. Þegar þú ert með skó-skauta eins og ég er þyngdarpunkturinn byggður vitlaust í þá þannig að þú stendur á hælnum og verður að leggja þig sérstaklega fram um að beygja hnéin og halla þér fram annars detturðu á rassinn ... eins og ég geri alltaf:)
datt nokkrum sinnum í gær, tvisvar illa þannig að í dag er ég helaum en samt skárri en í gærkvöldi þegar ég var sannfærð um að ég hefði brotnað aftur:) held ég sé ekki brotin, ég get staðið upp án þess að styðja mig við eitthvað, get snúið efri hluta líkamans án þess að láta þann neðri fylgja með, get lyft höndunum upp nánast sársaukalaust og rófubeinið er óskaðað - að mestu, kannski bara smá marið:)
en sjitt hvað þetta er gaman þegar þetta gengur vel:) hér erum við öll sem fórum á námskeiðið:

og góð æfing, samt sumt soldið too much:)

gleymdi að segja að ég fór á Batman Begins um helgina líka og þvílík snilldar mynd!! mér fannst hún barasta rosalega góð og ekki hallærisleg eins og hinar Batman myndirnar voru, þær voru of mikið "teiknimynd" þó þær væru leiknar en þessi er hellingur saga ... veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra þetta þannig að farið bara endilega að sjá hana:)

mánudagur, júní 27, 2005
... og hvað segja bændur í dag?:)
ég er að fara á línuskautanámskeið í kvöld:)!!!
... frekar þreytt eftir helgina en hún var alveg þess virði:) fór í tvö afmælisboð hjá litlu frænku minni, eitt fyrir bekkinn með pulsum og annað fyrir "okkur hin" bæði mjög skemmtileg en "við hin" vildum ekki fara í Löggu og bófa þannig að þau voru bara þrjú, miðað við að þau voru næstum þrjátíu í leiknum í pulsupartýinu ég held að það hafi vinningin hjá litlu frænkunni;)
Þórsmörk var frábær og ég er farin að hlakka mikið til næstu helgi, jamms, ég er að fara aftur þá:) þessi helgi var bara svona upphitun:)
ég lærði að skipta um rafgeymi í bíl sem er í gangi - rosalega merkilegt, finnst mér, að það er hægt að taka rafgeymi úr bíl sem er í gangi og setja annan í án þess að hann "fatti" það, með smá tilfæringum:) það er svolítið eins og að horfa á hjartaaðgerð án blóðsins:)
Fídel og Seifur hittust líka um helgina og eru enn að kynnast ... ekki alveg þeygjandi og hljóðalaust en eina blóðið hingað til er úr mér:) þetta er ekkert slæmt samt, þeir eru báðir mjög rólegir þannig að þeir eru ekkert að slást og ég held að eftir smá tíma verði þeir orðnir fínustu vinir;) vona það amk því mig langar til að sofa án þess að hrökkva upp við minnsta hljóð:)
annar sem hefur nýtt dýr á heimilinu er Gunnar litli bróðir minn, hann fékk lítinn 9 vikna scheffer hvolp á föstudaginn og hefur ekki sofið síðan:) ef þið ætlið að fá ykkur hvolp mælir hann með því að þið takið ykkur nokkra vikna frí:)
mamma og pabbi koma heim í kvöld þannig að ég ætla að fara að gera eitthvað:)

fimmtudagur, júní 23, 2005
come, be blessed and be happy
búin að pakka fyrir ferðina ... hrikalega langt síðan ég hef farið í útilegu og er alveg steinbúin að gleyma hvað ég á að taka með mér í svoleiðis:) þegar ég fór í den var þetta alltaf þannig að við tókum svefnpoka og tjald, tannbursta, sundföt, fötin sem við stóðum í og nóg áfengi til að höndla allt sem gæti komið fyrir - og sjóhattinn, sjóhatturinn var nauðsynlegur:)
kann ekki alveg við að fara svoleiðis að í þetta skipti þannig að ég hef verið að fara yfir ferðina í huganum eins og snillingurinn ráðlagði mér og er með fulla tösku af dóti og held að ég hafi gert ráð fyrir næstum öllu
ég get til dæmis dottið tvisvar í ánna án þess að ég verði að fá lánaða sokka en ef mig langar til að þess að hoppa í ánna viljandi þá pakkað ég sundbolnum mínum líka:) ef það kemur hellidemba þá er ég seif
ef það er glampandi sól þá er ég með föt í það
ef það vantar klósettpappír þarf ég ekki að hafa áhyggjur
ég er með þriggja-sæta útilegu-sófa og borð (án gríns:) - ég á yndislegasta bróður og frábærustu mágkonu í heimi)
ef ég brenn í sólinni er ég með blátt krem og á morgun næ ég í gult krem til að koma í veg fyrir að ég brenni í sólinni
ég er með tannkrem og auka linsur og sólgleraugu og ef mig langar til að fara í hnífaparís þá er ég með hníf í það
ég er með m&m (takk Íris:)) og kaupi mat á morgun
ég er búin að hlaða fjögur batterí, tvö í símann og tvö í myndavélina (og búin að tæma minniskortið í vélinni þannig að ég get tekið 64 myndir:))
... ætti ég að taka brenniboltann með mér?:)
eins og mamma myndi orða það I've got everything except the kitchen sink:)
núna ætla ég að sofa og dreyma þráðlaust net og glampandi sól - ef þráðlausa netið mitt drifi uppí Þórsmörk myndi ég taka tölvuna með og blogga í sólinni:)

miðvikudagur, júní 22, 2005
hvað er hún að gera inní eldhúsi? gætuð þið spurt ykkur ef þið sæjuð mig núna
hún situr þarna og þykist vera að blogga!!! gætuð þið sagt og hugsað með ykkur að ég sé eins og fólkið sem labbar með símann og þykist vera að tala í hann
hún getur ekki bloggað við eldhúsborðið því til þess að vera nettengd þarf hún að sitja við skrifborðið sitt og vera föst í alls konar snúrum ...
... ekki lengur!!! ég er komin með þráðlausa nettengingu!!:) ég get verið hvar sem er í íbúðinni minni eða útá svölum og bloggað og surfað og skoðað póstinn minn!!:) Einarinn kom í heimsókn á mánudagskvöldið með ráter og stakk öllu í samband fyrir mig, viss vass vúmm og núna get ég setið á dollunni og bloggað ef mig langar til þess:) hrein og tær snilld:) því miður get ég samt ekki alveg nýtt mér þetta núna því ég er að fara útúr bænum á morgun og verð að ákveða hvað ég ætla að taka með mér og þannig og svo þarf ég að fara í vinnuna líka ... en þessi þráðlausa tenging er ekkert að fara neitt:)
gargandi schnilld!!

fimmtudagur, júní 16, 2005
Miklar pælingar - hvað á Íris að perla?? Íris, Gauti, Guðrún Lind og Ólöf María í eldhúsinu hjá mömmu og pabba þegar mamma hélt uppá afmælið sitt:)

Posted by Hello

Posted by Hello
Kiddi, Gummi og Carlsberg í nettri sveiflu í partýinu:) ... minnir að þeir hafi verið að dansa við Tom Jones???

Posted by Hello

Posted by Hello
Alveg eins og á Grikklandi finnst ykkur ekki?:) þarna er meira að segja Black Beauty - arabíski hesturinn þarna úr myndinni:)

Posted by Hello

Posted by Hello
Mannaætudýr á bókasafninu!! Ásdís lengst til vinstri, Tobba að vera étin og Bragi lengst til hægri.

Posted by Hello

Posted by Hello
Come, be blessed and be happy
(komið þið sæl og blessuð)
Ég man alveg núna hverju ég var að gleyma þarna um kvöldið, þessu bloggvæna sem ég átti eftir að blogga um:)
Starfsmannaferðin á laugardaginn síðasta var mjög skemmtileg, skoðuðum bókasafnið í Mosfellsbæ og ég verð að segja að ég mæli hiklaust með því bókasafni því þar er mjög margt merkilegt, múmínálfastólar, dýr sem geta étið þig, stríðsminjasafn og risastórt tundurdufl og síðast en ekki síst bókasafnsfræðingar sem kalla sig "þjónustufulltrúa" og eru 14 launaflokkum hærri en "bókaverðir" - mjög merkilegt, ef þú ert ekki að fá nægilega góð laun hjá Ríkinu ættirðu að kalla stöðuna þína eitthvað annað:) ... eftir þessa færslu ælta ég að reyna að setja inn myndafærslu með myndum úr ferðinni:)
eftir bókasafnið fórum við í Mosfellsbakarí, nammi, nammi, nammi, namm!!! verulega flott bakarí, ef þið eruð einhvern tímann í Mosfellsbæ hringið endilega í mig og ég skal leiðbeina ykkur á flottasta bakarí landsins:) ... samt ekkert erfitt að finna það ef þið beygið til vinstri þegar þið eruð alveg komin inn í bæinn ... vitið þið hvar Vínbúðin í Mosó er? þar inn og aðeins lengra stendur "Bakarí" á einu húsinu, it's there:)
og eftir bakaríið fórum við upp að Gjúlfrastein þar sem við skoðuðum safnið og hlustuðum á fyrirlestur ... það er sundlaug í garðinum, HKL sagði víst við Auði konu sína: "mig langar í sundlaug, gæturðu ekki bara reddað því? ég er farinn til Rúmeníu" svo fór hann og þegar hann kom aftur var sundlaug í garðinum hans ... verulega flott, eins og að vera á Grikklandi eða eitthvað:) aftur, ef mér tekst að setja inn myndafærslu á eftir þá kemur mynd af sundlauginni:)
ferðinni lauk á gönguferð þar sem við fetuðum í spor HKL upp með Köldukvísl ... minnir mig að áin heiti:)
um kvöldið var ég boðin í grill með rauðvíni, gönguferð um gettóið og í partý með úti-arin og mjög skemmtilegu fólki:) löggan kom og allt saman ... ekki í okkar partý að vísu, í partýið í næsta húsi - þá var ekki búið að kveikja eldinn hjá okkur:)
á sunnudagskvöldið fór ég að sjá Star Wars III - Who's Your Daddy - fín mynd, miklu, miklu betri en Star Wars I og Jar Jar Binks var blessunarlega víðsfjarri ... kannski að ég fari að sjá Star Wars II núna?
og á mánudagskvöldið fór og ég hitti stelpurnar úr skólanum á ÍsCafé - rosalega góður kúluís þar, mæli hiklaust með staðnum og jamms, ég ætla að setja inn mynd eins og þú baðst um Berglind:)
Gréta átti afmæli í gær, rosalega fín afmælisveisla hjá henni í gærkvöldi, takk fyrir mig:) ... en ég tók engar myndir, steingleymdi því þannig að ég verð bara að taka myndir næst:)
... var það fleira? jamms, ábyggilega hellingur en ég ætla að fara að setja inn myndir núna
Stay, be blessed and be happy

fimmtudagur, júní 09, 2005
You are Barbatine! You are well-read and love to
learn. You were gloomy in your youth and found
nothing you liked to taste, but you're older now,
and have an incisive sense of humour that
makes you and others smile.
Which Barbapapa Personality Are You?
brought to you by Quizilla
Í dag er ég búin að "þvottast", byrja að vinna smá verkefni, tala hellings í símann, ganga frá öðru verkefni, pæla mikið í nýjasta verkefninu, leika ljósmyndara og taka myndir af afhendingu bókar, ræðumönnum og aðstandendum, drekka púrtvín og borða osta og jarðaber og melónu og kex og ostaköku og vinna fullt af vinnunni minni, núna er ég að blogga og dagurinn er bara hálfnaður ... ég á ennþá eftir að vinna í fimm tíma:)
Þar sem ég er að halda upplýsingaflæðinu gangandi og blogga reglulega þá var hringt í mig frá Heilsugæslunni í Efra Breiðholti í dag, er einhver ykkar að vinna þar og vill ná í mig? eða var þetta vitlaust númer? og verð ég að segja ykkur að samkvæmt litla frænda mínum býr Barbapabbi á Akranesi ... hvar annars staðar?:)
miðvikudagur, júní 08, 2005
mánudagur, júní 06, 2005
og gleðilegan mánudag:) ... það er rigning þannig að ég ætti að vera að taka til ... og ég er að fara að gera það en fyrst varð ég aðeins að leika mér í Picasa og á netinu og lesa nokkur blogg og taka svona próf og þannig ... svona eins og fólk gerir á mánudögum þegar það er rigning:)
ef þetta er ekki það flottasta sem ég hef séð í langan tíma þá ... eeehhh, þetta er það flottasta sem ég hef séð í langan tíma!!! Gunnella er hreinn snillingur og ég hvet alla til að svara spurningalistanum hennar því hún þarf á honum að halda fyrir skólann:) þið sem standið í svona rannsóknum skiljið það alveg er það ekki?:)

... fann þetta próf hjá Láru ... alltaf gaman að vita svona hluti auðvitað;)
Góðar stundir

Part Expert Kisser |
You're a kissing pro, but it's all about quality and not quantity You've perfected your kissing technique and can knock anyone's socks off And you're adaptable, giving each partner what they crave When it comes down to it, your kisses are truly unforgettable |
Part Freaky Kisser |
When you kiss, you want to experience something new A new technique, a new partner, a new piercing... And your own personal kissing style is very unpredictable There's no saying where your tongue or hands will go |
Góðar stundir
sunnudagur, júní 05, 2005
ekkert smá hvað ég er orðin tæknileg!!:) ... og ég get núna póstað inn myndir þegar mér sýnist því ég er búin að læra á forritið sem fylgir blogger og google og picasa og heitir hello ... merkilegt:) ... ætti picasa ekki að heita piccasa eða picassa til að passa inní rununa?
þar sem ég er alltaf með myndavélina með mér núna (svona á meðan ég man eftir henni að minnsta kosti) þá megið þið alveg eins eiga von á því að ég setji inn fleiri myndir bráðum, jamms...

fimmtudagur, júní 02, 2005
Ég fór til Sandgerðis á mánudaginn, Sandgerði er lengra en flugvöllurinn:
Fjölbreytt atvinnuframboð, fjölskylduvænt umhverfi, hátt þjónustustig, lægstu þjónustugjöld á landinu, mikið lóðáframboð, frábærar samgöngur á landi, í lofti og á vegi, frístundabyggð, gjöful fiskimið, stuttar vegalengdir - og umfram allt: Vinalegt umhverfi og ljúft viðmót nágrannanna. Er hægt að biðja um það betra?
Vertu velkomin(n)!
Sandgerði, jamms, hvað get ég sagt, það er ábyggilega stutt í alla þjónustu, skóla og verslanir því þetta er ekkert svo stór staður en ég er ekki að hugsa um að flytja þangað ... ég keyrði Tómas að minnsta kosti út fyrir bæinn í annað skipti og félagsskapurinn var góður:)
í gær var ekki rigning en ég tók samt smá til ... og í kvöld, í kvöld hjálpaði ég Írisi að flytja með kerru!!:) pabbi hennar lánaði henni kerru sem við hengdum aftan í Tómas og keyrðum dótið af gamla staðnum á nýja og ég fékk að bakka í stæði og fyrir horn og skemmti mér konunglega:) Ævar er að leita að "aaaahhhh" neistanum í tónlist ... mér finnst það sem ég hlusta á ennþá frábært en ég hef fundið annan "aaaahhhh" neista sem er alveg að virka og tónlist verður óþörf, hengið kerru aftan í bílinn ykkar og leikið ykkur að því að bakka í stæði:)
lifið heil

sunnudagur, maí 29, 2005
Þvílíkt gaman!!! Brennó, Kýló, Sto og Skotbolti, við fórum í alla leikina sem við mundum eftir og það var klikkað gaman:) mætingin var ágæt en hefði alveg mátt vera betri ... af einhverjum ástæðum héldu rosalega margir að smsið og bloggfærslan væri djók??;) það var alls ekki neitt djók, þið sem komuð ekki misstuð að miklu fjöri en það eru allir velkomnir næst ... og þá verða allir búnir að lesa Brennó-reglurnar og kannski Kýló-reglurnar ... skoðið bara þessa síðu og þið eruð nokkuð seif:)
nánari upplýsingar um daginn má finna á blogginu hennar Írisar:)
annars er ég alveg búin að því, sló garðinn hjá mömmu og pabba í morgun og framyfir hádegi, ég gleymi alltaf hvað það er rosalega mikið GRAS í garðinum þeirra ... og margir hólar og brattir:) en 1. og 2. slátturinn á sumri eru erfiðastir þannig að þetta er ekki neitt hræðilegt þegar líður á:) ... svo boltaleikir á Austurvelli ... í sólinni ... ég er ponsu sólbrennd eftir daginn og allt saman, hefði ekki þurft mikið til annars því húðin á mér hefur ekki séð sól að ráði síðan 1991 ... þvílík snilld að vera bara í einni vinnu í sumar, ég ætla að vera mikið mikið úti í sólinni:)
... og ég ætla bara að taka til þegar það er rigning:) ég ætlaði að vera svo dugleg um helgina, taka til og breyta hérna heima hjá mér en neibbs, ég ætla að bíða eftir rigningu:) plís plís verði gott sumar;)

Fyrsta Brenniboltamót sumarsins!!
Fyrsta brenniboltmót sumarsins verður haldið í dag, sunnudaginn 29. maí, á Austurvelli klukkan 16:00 síðdegis. Allir velunnarar boltaíþrótta, brenniboltaleikja og brennibolta eru hvattir til að mæta og taka þátt í leiknum - eða fylgjast með af hliðarlínunni ef þið eruð ekki komin út úr brennibolta-skápnum. Þetta mót er hins vegar kjörinn vettvangur til að koma út úr skápnum sem brennibolta aðdáendur, við getum haft nafnleynd og þið megið spila undir spilanöfnum - ef það verða teknar myndir (sjá fyrri póst) er mögulegt að ritskoða þær og setja svart strik yfir augun á þeim sem kjósa nafnleynd.
Leyfi hefur fengist hjá löggunni fyrir leiknum og því hvetjum við alla til að fjölmenna, takið alla með ykkur - þeir sem eru þunnir eftir veislur gærdagsins geta verið dómarar!!
Útbúnaður (ef þið hafið ekki tekið þátt í sambærilegu móti), þægileg föt, skór sem haldast á fótunum, eitthvað að drekka og keppnisskapið!!!
Í dag, sunnudag, 29. maí, Austurvöllur klukkan 16:00
Virðingarfyllst,
Brenniboltafélagið Skúli

laugardagur, maí 28, 2005
tölvur og stafrænar myndavélar ... bara vesen en þvílíkt skemmtilegt!!!:)
Einar fann fyrir mig rétt forrit fyrir myndavélina mína á netinu því diskurinn sem fylgdi henni ... glataðist:) en tölvan mín var ekki á því að ég myndi installa því vegna þess að myndavélin er svo gömul að það var ekki búið að prófa forritið fyrir Windows XP sem ég er að nota núna á nýju tölvunni minni ...
svo sagði Íris mér frá tæki sem les alla minniskubba, ég varð mér úti um solleis og viti menn!!!! ég get farið að taka myndir aftur!!!! beware því núna á ég ekki eftir að sleppa myndavélinni ever ... þangað til hún verður batteríslaus amk ... ég ætti kannski að kaupa mér nýtt batterí?:)

þá er Maja lögð af stað til Nurburgring til að horfa á formúlu eitt keppnina, ég ælta líka að horfa á keppnina því Maja lofaði að vinka þegar myndavélin kæmi að henni ... ef það klikkar fæ ég væntanlega póstkort frá henni:) í dag er ég að fara á fimleikasýningu hjá Ármanni því ég á eina litla frænku sem er að fara að sýna leikni sýna ... hún er mjög leikin þannig að ég er ekki viss um að ég þori að horfa, ég er of skyld pabba:) og á morgun er ég að fara að slá gras og fjarlægja tré sem dó því miður þegar við urðum að færa það milli staða fyrir tveimur sumrum - í hellidembu og drullu, held ég hafi aldrei á ævinni verið jafndrullug ... eftir að ég varð stór:)
ég fór í heimsókn til strákanna í Gallerý fisk í gærmorgun, ætlaði bara rétt að kíkja inn í kaffi og þannig, svona eins og fólk gerir en fimm mínútum áður en ég kom inn hafði glerið í afgreiðsluborðinu dottið niður á hausinn á meistaranum sem var að setja í borðið og smallast - þetta var mín versta martröð á meðan ég var að vinna þarna en það kom sem betur fer aldrei neitt fyrir mig, hjúkket! ég sem sagt labba inn og glerbrot út um allt og eitt stykki verulega sjokkeraður matreiðlsumeistari með flatann hnakka og blóðugt bak, glerið brotnaði nefnilega þegar það fór á hausinn á henni þannig að hún skarst smá á bakinu:/ en sem betur fer ekkert alvarlega! en í staðinn fyrir hálftíma kaffistopp þá var ég þarna aðeins lengur og hjálpaði til við að þrífa glerbrot og allt borðið - svo fékk ég kaffi:) ... stundum sakna ég þess ennþá að vinna ekki lengur hjá þeim:)
ég vaknaði í fyrradag með gífurlega þreytuverki í lærunum og maganum því mig var að dreyma alla nóttina að ég væri á racer ... racerar eru stúpid-lookin' hjól, rassinn upp í loftið og þannig en samt dreymdi mig að ég væri að þvælast um á þannig hjóli, rautt og hvítt meira að segja ... ef ég fengist yfir höfuð til að fara á racer þá myndi ég sko aldrei fara á rauðan og hvítan racer ... eða jú, ég er ekki svo pikkí:)
í morgun vaknaði ég með þreytuverki í hnjánum og öklunum enda var ég að labba í sandi í alla nótt ... það er ekki langt síðan að mig dreymdi að það væri að flæða vatn inn í íbúðina mína og þegar ég vaknaði var allt, ALLT innbúið mitt komið uppá eitthvað annað, stóll í sófanum, bækur, blöð og föt í rúminu hjá mér þannig að það var varla pláss fyrir mig, öllu var bjargað undan vatnsflauminum ... ég man ekkert eftir að hafa gert nokkuð í þessu flóði í draumnum þannig að ég fékk sjokk þegar ég vaknaði:) og einu sinni vaknaði ég með núningssár á öklakúlunum og sambýlismanninn á sófanum eftir að hafa labbað yfir Grænlandsjökul heila nótt ... er hægt að dreyma OF mikið?

miðvikudagur, maí 25, 2005
Rosalega er veðrið búið að vera gott í skjóli undanfarna daga:) mótorhjól útum ALLT!
Gærdagurinn var frábær, ég vaknaði úrsofin og fékk morgunkorn í morgunmat sem ég hef ekki borðað í mörg, mörg ár og var búin að gleyma hvað það var hryllilega gott:) síðan skellti ég mér í sturtu og fór í fyrsta verklega ökutímann minn:) ég rúntaði um Reykjavík heillengi á risastórum vörubíl og hef ekki skemmt mér eins vel lengi, lengi!
gírkassinn var svona tvískiptur með 10 gírum og ekki næstum eins flókinn og var búið að "lofa" ... eða hræða mig með:)
þetta var svona bíll bara svartur í ET litunum með gráa skúffu en ekki rauðan tank og búkka aftast - aukahjól:)

hann er ekki næstum eins stór í akstri og hann er í útliti:) mjög gaman að keyra hann og ég var að taka beygjur hægri, vinstri og skipta um akreinar eins og alvöru vörubílstjóri:) ... sem ég verð um leið og ég tek prófið auðvitað þó ég vinni ekki endilega við það ... alveg strax;)
eftir bíltúrinn kíkti ég til litla bróður míns í kaffi og bílskúrsskoðun ... ég er að hugsa um að kaupa mér hús með bílskúr:) mig langar ekkert sérstaklega í hús því þá þarf ég að vera með samviskubit yfir fleiri fermetrum en ég hef núna og það eru miklu fleiri veggir í húsi en í íbúð og ef ég þekki mig rétt þá myndi ég geta réttlæt fleiri bækur ef ég byggi á stærri stað þannig að nei, mig langar ekkert í hús en mig langar í bílskúr:) er hægt að kaupa staka bílskúra? ... það ætti að vera hægt, alveg eins og fólk sem er ekki með garð en langar í garð kaupir sér sumarbústaði þá ætti fólk sem er ekki með bílskúr að geta keypt sér stakan bílskúr:) ... það er ábyggilega hægt svona þegar ég pæli í því en þá er hann ekki útí garði eins og bílskúrinn sem bróðir minn á, hann getur bara rölt út á naríunum með kaffibollann og fengið sér sæti við hliðina á mótorhjólinu og tjillað ... missir sjarmann að eiga bílskúr ef það þarf að klæða sig og keyra til að komast í bílskúrsstemninguna er það ekki? nema auðvitað ef ég fer með rúm í bílskúrinn og sef þar? ... er þá ekki bara málið að kaupa sér stakan bílskúr, flytja inn og búa í honum því þá er ég ekki að eignast hús með veggjum sem þarf að mála og herbergjum sem þarf að innrétta og plássi sem þarf að þrífa heldur "bílskúrs-íbúð"? ... ég hef að vísu búið í bílskúr, í heil fjögur ár, en það var "íbúð-í-bílskúr" ekki "bílskúrs-íbúð" ... tvennt ólíkt:)
eftir vinnu var mér boðið í kvöldmat, rosalega góðan grillmat með forrétt og veseni:) sá The Aviator seinna um kvöldið og mér fannst hún rosalega góð, Leonardo DiCaprio fékk alveg prik í kladdann fyrir að leika Howard Hughes svona vel - mjög góð mynd:) ... mig langaði til að vita meira um gaurinn eftir að hafa séð myndina (Hughes sko, ekki DiCaprio, hann lék þetta vel en ég hef ekki baun meiri áhuga á honum í dag en ég hef haft hingað til) þannig að ég var að fletta honum upp og fann þessa síðu, fyrir áhugasama, sem lofar góðu:) ... mig langaði líka til að vita meira um Katharine Hepburn (sem var frábærlega vel leikin af Cate Blanchett), og fann heilan haaaauuuugggg af síðum ... þessi er mjög flott en það eru til ótrúlega margar síður um hana:) ... og ég fann líka þessa síðu, Divas The Site með helling af frægum leikkonum og þannig, mér fannst hún áhugaverð ... að minnsta kosti myndirnar á henni, nennti ekki að lesa textann:)

mánudagur, maí 23, 2005
Góðan og blessaðan og gleðilegan mánudag:)
var í ökuskólanum um helgina og fékk að fara á rúntinn í rútu, við völdum leiðir sem "við veljum aldrei á þessum bílum" og lentum í alls konar veseni sem við náðum samt alltaf að redda okkur úr, gatnaframkvæmdir á Hlemmi, eitthvað að gerast í Perlunni, hægri beygja af Háaleitisbraut inná Ármúlan og rúntur um bílaplanið á Laugardalssundlaug ... fór að hugsa allt öðruvísi um rútur eftir þennan rúnt en ég þekki því miður ekki réttu leiðirnar, bara þær röngu ... mig langar í annan rútubíltúr með réttum leiðum:)
svo var auðvitað Júróvisjón á laugardaginn, pizza og hamingja þegar Noregur, Sviss og Moldavía fengu stig ... þó enn meiri hamingja þegar Lettland fékk ekki stig:/ þeir voru ekki einu sinni sérlega góðir en höluðu inn stigum, eitthvað mikið að! eftir Júróvisjón kíktum við Íris í afmæli en fórum snemma heim því ég þurfti að mæta klukkan níu í gærmorgun til að læra skyndihjálp og bera menn og vera borin í verklegri skyndihjálp ... ég er ekki að fíla verklega skyndihjálp, var ég ekki annars búin að blogga um "andlegu skyndihjálpina" sem ég varð fyrir um daginn í ökuskólanum?:)
var aðeins að surfa og fann nokkrar síður sem mig langar til að deila með ykkur, en þið lesið þetta bara í haust er það ekki því það er komið sumar og þá eigum við ekki að vera inni í tölvunni? um daginn var ég einmitt að hugsa um að búa til lista um hvernig við vitum að það er komið sumar, því listar eru svo skemmtilegir, en í morgun fann ég lista sem einhver gaur bjó til, ég ætla að linka á hann þangað til minn er tilbúin:) og þar sem það er komið sumar fann ég veskIÐ fyrir allar stelpurnar sem eru vagínaorienteraðar, að þetta skuli vera búið til;) ... á síðunni er linkað á dót sem karlmenn gætu haft gaman af, kannski er þetta fyrir þá sem eru að vinna einhvers staðar í rassgati og sjá ekki konur nokkra mánuði í senn, eins og á olíuborpöllum? það fiktar enginn í annarra manna vasaljósi er það nokkuð?:) ... og nei, ég var ekki að leita að þessu, ég fann bara einn link sem leiddi að öðrum og endaði á þessu:) en fyrir þá sem hafa áhuga þá er hægt að fá munn, rass og "discreet" ... það er líka hægt að fá þetta í pakka til að æfa sig og núna er þetta blogg bannað innan 18 ára:)
þar sem ég er komin út á hálan ís ætla ég að halda áfram og linka á síðu sem mér fannst mjög fyndin "The Absolute Bottom 50 ..." þar er hægt að finna lista fyrir ömurlegustu steríótýpurnar - "People in comas are racist assholes" til dæmis og "Germans love bronze statues with erections", mjög skemmtilegt allt saman en það eru fleiri listar eins og gælunöfn á kynfæri karlmanna, ömurleg Prom þemu, það sem verður næst í tísku, samsæriskenningar og jarðafararæður fyrir Ásdísi:)

föstudagur, maí 20, 2005
... og Ísland datt út en partýið í gær var rosalega skemmtilegt;) takk kærlega fyrir mig:)
það er ökuskóli hjá mér um helgina þannig að ég er hálfpartinn að vona að veðrið verði ekki frábært, svona er ég eigingjörn:) og á morgun er komin vika síðan ég keypti mér fyrsta tölvuleikinn á ævinni:) ... ég er alltaf að festast í einhverjum heilalausum netleikjum sem hafa ekkert uppá sig nema tímaeyðslu og hef stundum velt því fyrir mér að það væri gaman að eiga svona almennilegan tölvuleik með mörgum borðum eða heimum eða ráðgátum ... eitthvað aðeins meira krefjandi en að stafla kubbum (ekki að það sé neitt að því, Tetris hefur verið uppáhaldsleikurinn minn í mörg, mörg ár:)) þannig að þegar ég var í Elko síðasta laugardag og sá leik sem heitir CSI: Dark Motives fannst mér það eina rétta í stöðunni að kaupa hann:)
og hann er rosalega skemmtilegur, en, jamms, það er alltaf "en" hjá mér:) ég kann ekki á leikinn og þó að mér finnist eitthvað góð hugmynd og mig langar til að rannsaka eitthvað betur þá fæ ég leikinn ekki til að gera það:/ þannig að núna er ég ekki bara föst í nýjum leik sem hefur ekkert uppá sig nema tímaeyðslu (því ég efast stórlega um að CSI leikur hafi mikið meira gildi en skemmtanagildi) heldur er ég líka föst Í leiknum, ég næ ekki að leysa mál sem væri auðvelt að leysa ef ég fengi að gera það sem vil gera - og er ábyggilega hægt en ég hef ekki fundið leiðina til þess ennþá - ég er sem sagt pikkföst í tvennum skilningi og ég er ekki svo viss lengur um að það hafi verið góð hugmynd að kaupa flóknari leik en ég hef verið að spila hingað til, kannski hefði ég bara átt að leita að leik með mörgum Tetris-esque-borðum?
.... ætli ég komist upp með að fara með lapptoppina í ökuskólann svo ég geti haldið áfram að spila?

fimmtudagur, maí 19, 2005
í tilefni þess að ég vaknaði snemma til að taka til og hef ekki gert jack í allan morgun:)
... "detached intellectual" og "help invent the future of mankind" ... ekki slæmt, alls ekki slæmt, mig var farið að gruna að ég væri nefnilega svona common-or-garden-average-jolene, greinilega ekki samkvæmt þessu prófi!:) ég kýs að sjálfsögðu að líta framhjá þessu "whose ideas will save/destoy the world";)
... "rouge wanderer" and my "shadow self" ... soldið krípí:)

miðvikudagur, maí 18, 2005
ég þakka tæknilega ráðgjöf en eftir birgðatalningu/skoðun hérna heima þá kemur í ljós að ég á barasta ekki neinn skúringarkúst:/ ég á svona rykmoppukúst og ryksugu, glænýja notaða, eldrauða og flotta - kötturinn kallar hana Rauðu Hættuna og ekki að ástæðulausu, hún gefur frá sér hljóð, hefur langan og "hlykkjandi" (Maja, er þetta orð?) rana og hefur þann leiða ávana að ryksuga upp leikfangamýs sem leynast hingað og þangað um íbúðina ... kettinum til mikillar skelfingar, hann var bara rétt nýbyrjaður að leika sér að músinni sem hvarf síðast upp ranann með látum ...
ég keypti mér baðsápu um daginn, ekki í frásögur færandi svo sem en ég er bara nýbyrjuð að nota hana og efast stórlega um dómgreind mína í baðsápuvalsmálum ... jú, hún lúkkar vel, stór brúsi (500 ml, kostur: þarf að kaupa næsta brúsa eftir lengri tíma en ef hann væri minni), flottur litur (sjávargrænt, kostur: gleraugnalaus í sturtunni þá er ekki gaman að fálma eftir sápunni (eins og Neutral sápunni sem stendur ennþá að mestu óhreyfði inní sturtuklefanum því hún hverfur í bakgrunninn um leið og ég er komin inn ...)), nýja baðsápan heitir "neytandavænu" nafni (Palmolive: Thermal Spa; Hydrating with Thermal Minerals Bath Foam, kostur: það sést á nafninu að líkaminn verður hreinn eftir notkun og hydreitaður og Spa er alltaf að virka í hreinsi- og snyrtivörum, þær verða meiri lúxus þó dollan kosti bara 200-300 kall og jamms, ég er neytandi sem fell fyrir auglýsingum, til þess eru þær er það ekki?)

EN, jamms, núna kemur "en"-ið það eru "loftbólur" í þessari baðsápu sem eiga ábyggilega að auka á "frískleikann" - "oh, look!! it's SO thermal it's still bubbling!!" - jamms, lúkkar vel EN þessar loftbólur eru pínkulítil hylki einhvern vegin sem springa ef þú kremur þau beint (en eru eins og korn þegar þau nuddar þeim á þig, eins og ég sé með eina og eina gæsahúð hingað og þangað um líkamann: galli) og ég var búin að minnast á að sápan er sjávargræn og hylkin eru svona grá-ish og hafa svona hint-of-a-tint gráa áru umhverfis sig þannig að þegar ég sprauta sápunni í lófan á mér og horfi á hana gleraugnalaus er eins og ég sé að fara að maka blárri sultu með myglublettum á mig - ótvíræður galli - OG að lokum, ég er ekki frá því að það sé strákalykt af nýju fínu Palmolive: Thermal Spa baðsápunni minni

þriðjudagur, maí 17, 2005
ég þvoði slatta í gær, bíla og glugga því veðrið var rosalega gott og mig langaði til að vera úti í því aðeins ... byrjaði að vísu svolítið seint þannig að veðrið var ekki alveg eins gott og þegar ég byrjaði að hugsa um að fara út í það en samt ekki svo hræðilega kalt;) ... held að ég sé eini einstaklingurinn sem hefur þvegið bíl í hverfinu hjá mömmu og pabba í snjókomu - það snjóaði ekki í gær en einu sinni þegar ég var að þvo bílinn hennar mömmu var glaðasólskin og fínt veður í nóvember minnir mig, svona alvöru gluggaveður en ég platast út og byrja og er rétt rúmlega hálfnuð við að "löðra bílinn" (svampur, sápa, vatn í fötu ... veit ekki hvað þetta getur heitið annað þegar bíllinn er kominn með froðuhanakamb?) og þá byrjar að snjóa, ekki svona lítið og sætt fjúk eins og kemur stundum heldur risastór-hundaloppu-jólasnjór - hvar var myndavéliln þá?:)
en talandi um gluggaþvott (byrjaði á því sko, sjáiði þarna efst) þá á ég í mestu vandræðum með gluggana mína ... alltaf þegar ég þvæ þá kem ég inn rennandiblaut upp undir handakrika á hægri handleggnum því vatnið lekur alltaf niður og innundir peysuna mína - verulega óþægilegt:/ en það eru bara ca 20% gluggans yfir augnhæð þannig að ég blotna bara við að þvo það ekki hin 80% (nei Ásdís, ég hef ekki verið að læra prósentureikning, það getur meira en vel verið að þessar tölur standist ekki en þær "virka" réttar;)) ... í gær var ég meira að segja að velta því fyrir mér að taka tröppur út til að vatn gæti aldrei lekið niður handlegginn en svo fór ég að pæla, er það ekki frekar tilgerðarlegt að taka tröppur með sér út á svalir til að þvo glugga sem eru 80% í og fyrir neðan augnhæð og þegar ég get snert þakið með því að teygja mig almennilega upp? svona eins og að setja 44" undir Volkswagen Golf?
góðar stundir
p.s. ég var að skoða prófeinkunn, rúllaði einu prófi upp sem ég var hrædd um að merja, grunar að kennarinn hafi drukkið rauðvín á meðan hann fór yfir og ég skilaði seinast þannig að mitt var neðst - ég er ekki að kvarta, ég er að hugsa um að fá mér rauðvín sjálf til að halda uppá þetta:)

mánudagur, maí 16, 2005
Góðan og blessaðan:)
ég reyndi að blogga amminnilega á þriðjudaginn en það gekk ekki að publisha því það var víst "scheduled downtime" og það eyddist allt sem ég hafði skrifað því klukkan var rétt eftir 4 pacific time:) ... ég prófaði aftur á föstudaginn and what do you know "A Bit More Scheduled Downtime" þannig að það eyddist líka - ég verð að fara að lesa leiðbeiningar betur;)
ég reyndi ekkert að að blogga um helgina því ég hafði nóg annað betra að gera:) í gær fór ég uppá Langjökul með Einari og Gemlingunum:) þvílík gargandi schnilld!! glampandi sólskin, útsýnið klikkað, frábært færi og í alla staði mjög skemmtileg ferð:) það voru teknar trilljón myndir þannig að "ef" (geri samt fastlega ráð fyrir að það verði "þegar") þær fara á netið skal ég linka á þær:) jökullinn var fullur af fólki, jeppar, snjósleðar, fólk á skíðum ... og snjólaust upp að skálanum, alveg kominn tími á mótorhjólarúnt þangað, fyrir þá sem hafa áhuga:)
ég var að hugsa þegar við keyrðum framhjá Húsafelli um allar myndirnar sem við tókum þessi ár sem við fórum í Hvítasunnuhelgarútilegur þangað, væri gaman að sjá þær aftur og setja þær kannski á netið - eða ekki?:) ... kannski eru Vanettu-"júmbulettu"-ferðar-myndirnar ekki birtingarhæfar?:) mig langar amk til að sjá þær aftur:)
"tarzan rubber band" wtf??? sadó-masó-myndbanda-googlewack?
farin að sækja bílinn minn

föstudagur, maí 13, 2005
who would've tunk it?

You are a Hippie. Wow.
What kind of Sixties Person are you?
brought to you by Quizilla
... svo var Alexandra að senda auglýsingu fyrir nýja þáttaröð sem gæti barasta verið slatta skemmtileg - en bara ef það verður drama og ef þeir fara að gráta og rífast og á trúnó eins og í America's Next Top Model:)

föstudagur, maí 06, 2005
.... vá! ég hef ekki bloggað síðan í síðasta mánuði! nú er spurning, er ég ekki búin að blogga vegna þess að það er ekkert að gerast og ég hef ekkert að segja eða vegna þess að ég hef svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til að blogga en hef nóg að segja? hmmm, pæling:)
ég var að leika við köttinn uppí rúmi áðan, var að kaffæra hann með sænginni og lemja hann með koddanum ... bara svona eins og fólk gerir sem á 5 kg þung gæludýr - ætli Fídel nái 5 kg? og svo lögðumst við niður þegar síminn hringdi, ég strauk honum á meðan hann var að kasta mæðinni og jafna sig og talaði í símann ... þá tók ég eftir því! merkilegt að hann skuli vera að verða átta ára í sumar og ég hef ekki séð þetta fyrr! ástæðan fyrir því að hann er hræddur við allt (rigningu, snjó, kanínur, vind, hár, lykt, hreyfingu, skuggann sinn etc.) er kannski sú að hann er heilaskemmdur! kannski hef ég rangt fyrir mér en ég sé ekki betur en að augasteinarnir í honum eru misstórir og í skyndihjálp lærði ég að það er merki um heilaskemmdir ... kannski hefur hann ekki alltaf verið svona? kannski heilaskemmdi ég hann sjálf rétt í þessu þegar ég var að lemja hann með koddanum? en það getur verið að augasteinarnir hafi verið misstórir vegna þess að hann lá í skugga öðru megin en ég birtu hinum megin því sá sem var í skugganum var stærri?
ég hef nefnilega ekki verið nægilega dugleg að horfa beint í augun á honum því ég lærði af biturri reynslu á unga aldri að það á aldrei að horfa í augun á köttum því þá ráðast þeir á andlitið á þér - ég horfði að vísu framan í alvöru matrónukött þá, sem hefur ábyggilega átt stærðarinnar betri stofu einhvers staðar á heimilinu með uppstoppuðum músum og kanínum og öndum og svönum og öðrum húsdýrum sem hún hafði veitt ... Fídel veiðir ekkert, hann á ekki betri stofu og er ekki matrónuköttur - ég ætla að vera duglegri við að horfa í augun á honum í framtíðinni og fylgjast rækilega með heilaskemmdunum sem minnir mig á það, ég ætla að leggja hann í læsta hliðarlegu og fara svo að búa til pizzu handa okkur

miðvikudagur, apríl 27, 2005
Morgunblaðið, fimmtudagur 5. mars 1987 - bls 2:
Víðtæk leit að dreng á Djúpavogi
Elti heimilshundinn út að Búlandsneshöfn
Á sjötta tug manna leitaði þriggja ára drengs á Djúpavogi í gær, sem hafði villst frá heimili sínu. Hann fannst hrakinn og blautur á gangi í mýrlendi nálægt Búlandsneshöfn laust eftir kl. 20.00 í gærkvöldi.
Að sögn Sigurðar Gíslasonar héraðslögregluþjóns var það um sexleytið í gær, sem strákur hvarf ásamt heimilshundinum. Hann hafði verið að leika sér heima við og móðir hans brugðið sér frá í nokkrar mínútur. Ættingjar hófu þegar leit.stákur virðist hafa farið hratt yfir því hann fannst ekki í næsta nágrenni. Þegar myrkva tók var björgunarsveitin köluð til og bæjarbúar flykktust til leitar.
Strákur fannst tveimur kílómetrum fyrir utan bæinn og hafði þá gengið um þýfið og skorið mýrlendi drykklanga stund. Hann hresstist fljótt þegar heim var komið. Gaf hann þá skýringu á ferðum sínum að hann hefði verið að elta hundinn í vinnuna.
Morgunblaðið, 2. september 1987 – forsíða:
Danmörk:
Þjáðist af tölvuveiki
Kaupmannahöfn, Reuter.
Átján ára gamall Dani varð fyrir skömmu svo hugfanginn af einkatölvunni sinni að hann var fluttur á sjúkrahús með “tölvuveiki”. Frá þessu er skýrt í nýjasta hefti dansks læknatímarits.“Sextán ára gamall eyddi hann allt af 16 klukkustundum á dag fyrir framan tölvuskjáinn. Hann gerðist þögull, skorti frumkvæði og hætti að fara í skólann,” sagði í tímaritinu. “Hann dreymdi meira að segja og hugsaði á tölvumáli. Hann varð svefnfælinn og var lagður inn á geðdeild haldinn sívaxandi kvíða.”
Geðlæknar segja að unglingurinn, sem á tölvusérfræðing að föður, hafi haft tölvuskjáinn sinn í vinastað og litið á fólkið í kringum sig sem vélar.
og mánudaginn 9. janúar 1989 byrjaði Stöð 2 að sýna Santa Barbara á hverjum degi:
Santa Barbara
Í fyrsta sinn í sögu íslensks sjónvarps mun Stöð 2 hefja sýningar á daglegum framhaldsþáttum eða "sápuóperu".

mánudagur, apríl 18, 2005
THE DONKEY
The boy rode on the donkey and the old man walked. As they went along they passed some people who remarked that it was a shame that the old man was walking and the young boy was riding. The man and boy thought maybe the critics were right, so they changed positions.
Later, they passed some people that remarked, "What a shame! He makes that little boy walk." They then decided that they would both walk!
Soon, they passed some more people who thought that they were stupid to walk when they had a decent donkey to ride. So, they both rode the donkey. Now they passed some people who shamed them by saying how awful it was to put such a load on a poor donkey.
The boy and man said they were probably right, so they decided to carry the donkey. As they crossed the bridge, they lost their grip on the animal and the poor donkey fell into the river and drowned.
Is there a moral to the story?
Yep: IF YOU TRY TO PLEASE EVERYONE, YOU MAY AS WELL KISS YOUR ASS GOODBYE.

fimmtudagur, apríl 14, 2005
Eigum við ekki barasta öll að skella okkur á tónleika í kvöld? frábærar hljómsveitir og mjög gott málefni - fjölmennum á Gauk á stöng!!!
Náttúran rokkar: Tónleikar Náttúruvaktarinnar 14. apríl 2005
Náttúruvaktin stendur fyrir rokktónleikum í næstu viku. Fram koma sex frábærar hljómsveitir: Dikta, Lokbrá, Jan Mayen, Lights on the Highway, Jeff who? og Brylli. Tónleikarnir verða á Gauki á Stöng, húsið opnar kl. 21.00 og það kostar 500 kr. inn. Allur ágóði rennur til starfsemi Náttúruvaktarinnar.
Góðar stundir og skemmtum okkur vel í kvöld!

þriðjudagur, apríl 12, 2005
man kannski enginn almennilega eftir Twin Peaks?:) ... ekki ég - spurning um að halda Twin Peaks vöku? er hægt að leigja sumarbústað með breiðtjaldssjónvarpi og surround hljóðkerfi?:)
anívei, ég er að mynda ... og taka sjálfspróf:)
Ég er eins og Hafdís!!:)
hmmm ... gott að vita þetta:) hálf og hálf ... en ég held að þetta próf sé ekkert 100% marktækt - soldið stúpid spurningar:)
úúúúúú, bara við Courtney!! :) ... vara ykkur samt við, þetta próf er hugsanlega mögulega ekki gífurlega marktækt:)
... og eitt enn ...
.... eitthvað skyld Colin Farrell??
Góðar stundir
anívei, ég er að mynda ... og taka sjálfspróf:)
Ég er eins og Hafdís!!:)
Your Inner European is Irish! |
Sprited and boisterous! You drink everyone under the table. |
hmmm ... gott að vita þetta:) hálf og hálf ... en ég held að þetta próf sé ekkert 100% marktækt - soldið stúpid spurningar:)
Your Brain is 46.67% Female, 53.33% Male |
Your brain is a healthy mix of male and female You are both sensitive and savvy Rational and reasonable, you tend to keep level headed But you also tend to wear your heart on your sleeve |
úúúúúú, bara við Courtney!! :) ... vara ykkur samt við, þetta próf er hugsanlega mögulega ekki gífurlega marktækt:)
You May Be a Bit Borderline ... |
Your mood swings make a roller coaster look tame! When you're up, you're a little bit crazy... And when you're down, your whole world is crashing Scary thing is, these moods can change by the minute! |
... og eitt enn ...
Your Seduction Style: Siren / Rake |
You possess an unbridled sensuality that appeals to many. The minute you meet anyone, you can make the crave you almost immediately. You give others the chance to lose control with you... spiraling into carnal bliss. A dangerous lover, you both fascinate and scare those you attract. |
.... eitthvað skyld Colin Farrell??
Your Irish Name Is... |
Góðar stundir
föstudagur, apríl 08, 2005
ég var að horfa á Boston Legal í gær og er að hlusta á diskinn hans William Shatner, Has Been, núna ... mér finnst Shatner barasta rosalega kúl maður, kvikindi og ömurleg manneskja víst (hef ekki fundið neinar verulega slæmar sögur, bara orðróm um að hann sé kvikindi en ekki hvernig...) en samt eitthvað svo flottur:) ef þið hafið ekki heyrt þennan disk mæli ég hiklaust með honum:) og já, Gummi þú gafst mér hann, þú átt heiðurinn af því að ég er að hlusta á diskinn - bara svo það sé á hreinu:)
ég veit alveg hver Shatner er en ég veit ekkert um manninn þannig að ég var aðeins að fletta honum upp ... leitin var styrkt af google.com - auðvitað:)
það fyrsta sem kemur upp er auðvitað heimasíðan hans sjálfs, williamshatner.com - þar er hægt að kaupa Has Been diskinn áritaðan á 65$ og venjulegan á 18.95$ ... smá munur:) á disknum er að finna eftirfarandi lög:
1. Common People (with Joe Jackson)
2. It Hasn't Happened Yet
3. You'll Have Time
4. That's Me Trying (with Ben Folds and Aimee Mann)
5. What Have You Done
6. Together (with Lemon Jelly)
7. Familiar Love
8. Ideal Woman
9. Has Been
10. I Can't Get Behind That (with Henry Rollins)
11. Real (with Brad Paisley)
... mér finnst þessi diskur rosalega góður:) en Shatner hefur gert svo margt, margt annað líka ... ok, hann er fæddur 22. mars 1931 í Montreal í Kanada, hvítur, gagnkynhneigður, gyðingur, grænmetisæta og notar hártopp ... menntaður viðskiptafræðingur og talar lýtalausa ensku og frönsku, hefur verið giftur fjórum sinnum og á þrjár dætur (með fyrstu eiginkonu sinni Gloriu Rand). Gloria skildi við Shatner 1969 og tók allt sem hann átti, peninga og dæturnar þrjár, og hann bjó í pallbíl með húsi um tíma þangað til hann fór að fá vinnu sem borgaði meira en smáaura. Shatner giftist Marcy Lafferty árið 1973 og þau voru gift í næstum tuttugu ár. Hann deitaði Veru Montez í tvö ár áður en hann giftist í þriðja skiptið konu sem hét Nerine Kidd, hún drukknaði í sundlauginni þeirra 9. ágúst 1999 - sjá lagið What Have You Done? hér að ofan .... mjög sorglegt:/
núna er hann giftur konu sem heitir Elizabeth Anderson Martin og þau rækta hesta og eru mjög hamingjusöm ...
Hann er líklega einn versti leikari í heimi en samt fíla ég hann í ræmur:) hann er líklega frægastur fyrir að leika Captain James Tiberius Kirk í Star Trek og fólkið sem vann með honum man eftir honum sem óþolandi egóista:) þegar hann er að leika (kannski í alvörunni líka) talar hann alltaf eins og það sem hann er að segja sé súperdramatískt með lööööngum pásum, kallað Shatnerian ("His clipped, dramatic narration, peppered with dramatic pauses, is often referred to as "Shatnerian""). Rétt fyrir 1970 gaf hann út plötu sem hét The Transformed Man og útgáfa hans af laginu "Lucy in the Sky with Diamonds" var kosin mesta nauðgun á Bítlalagi ever árið 2003 ... en hann hefur húmor fyrir sjálfum sér ... ekki annað hægt kannski?:)
In his early performing days, Shatner was once required to play the piano in a scene (with music supplied off-camera), then pull a weapon from a drawer to kill another actor. First the piano cue went badly, then the only "weapon" available turned out to be a corkscrew. Shatner carried on, and in his own words, "I screwed him to death!"
og nokkur kvót:
[When asked if he wore a hairpiece] "It's a question that I find like asking somebody, 'Did you have a breast implant?' or 'When did you get your lobotomy?'"
[When asked if he was a fan of technology] "I love technology. Matches, to light a fire is really high tech. The wheel is REALLY one of the great inventions of all time. Other than that I am an ignoramus about technology. I once looked for the 'ON' button on the computer and came to find out it was on the back. Then I thought, anyone who would put the 'on' switch on the back, where you can't find it, doesn't do any good for my psyche. The one time I did get the computer on, I couldn't turn the damn thing off!"
"Babies have big heads and big eyes, and tiny little bodies with tiny little arms and legs. So did the aliens at Roswell! I rest my case."
"I am not a Starfleet commander, or T.J. Hooker. I don't live on Starship NCC-170, or own a phaser. And I don't know anybody named Bones, Sulu, or Spock. And no, I've never had green alien sex, though I'm sure it would be quite an evening. I speak English and French, not Klingon! I drink Labatt's, not Romulan ale! And when someone says to me 'Live long and prosper', I seriously mean it when I say, 'Get a life'. My doctor's name is not McCoy, it's Ginsberg. And tribbles were puppets, not real animals. PUPPETS! And when I speak, I never, ever talk like every. Word. Is. Its. Own. Sentence. I live in California, but I was raised in Montreal. And yes, I've gone where no man has gone before, but I was in Mexico and her father gave me permission! My name is William Shatner, and I am Canadian!"
"How do I stay so healthy and boyishly handsome? It's simple. I drink the blood of young runaways."
"Captain Kirk never burped out his lines, nor did he simply SPEAK! as IF! Every! Other! SYLlable! WAS! of DIRE! ImPORTance!"
"Remember-you can't beam through a force field. So, don't try it."
"I have saved the world in the movies
So naturally there's folks who think I must know what to know
But just because you've seen me on your TV
Doesn't mean I'm any more enlightened than you
...
And I wish I knew the things you think I do
I would change this world for sure
...
I'd love to help the world and all its problems
But I'm an entertainer, and that's all
So the next time there's an asteroid or a natural disaster
I'm flattered that you thought of me
But I'm not the one to call
...
Sorry to disappoint you
But I'm real"
... gagnrýni á plötuna og hérna fann ég aðra mjög góða gagnrýni á plötuna Has Been eftir einstakling (Mahatma Randy? strákur? stelpa?) sem veit slatta um Shatner og líf hans:)
In fact, Bill never quite apologizes for anything he's done. He's sorry for it, but you never get the feeling that, had he all of it to do over again, he wouldn't still screw everyone over just the same. He's not pretending to be an ideal guy, or even a very good one; he's aware of his shortcomings, embarrassed by more than a few of them, but on the whole, he's happy with who he is. Beyond the "I'm a hero onscreen, but I'm completely ineffectual in real life" theme is another one of what I call "Unrepentant repentance." This is strangely engaging, a sort of 'Yeah, yeah, yeah, I'm a jerk. Can we get past that and move on to some thing else?' He remains a pretty fucked up individual, but one that it's hard not to like.
I can get behind that ....
Góðar stundir
fimmtudagur, apríl 07, 2005
svínabrandarar:) ... en slökkvið á hljóðinu þegar þið eruð að lesa, verulega pirrandi mjúsak eitthvað:/ en soldið skemmtilegt þarna neðst, svona svínapróf - svipað og þetta tíbetska persónuleikapróf sem gengur á milli þessa dagana:) ... það er skemmtilegt að teikna svínið en það er líka frekar kúl að gera það á netinu - tékkið á þessari síðu og teiknið svín:) ég hef húmor fyrir þessu:) númerið á svíninu mínu er #29230 ... það er í galleríinu:) en mæli með því að þið vandið ykkur vel í fyrsta skiptið því það er svo mikið að gera á síðunni að þeir biðja þig um að teikna bara eitt og bíða svo í einhvern tíma;)
mig hefur alltaf langað til að prófa svona súmógrímubúning eins og var í partýinu í Charlie's Angels en skoðið allt hitt uppblásna dótið sem er hægt að kaupa;) ... merkilegt það sem er til sölu, talandi um það sem er til sölu og er frekar skringilegt, hafið þið einhvern tímann skoðað totally bizarre dótið sem er til sölu á ebay? sokka og nærfataálfa ... gildra sýnist mér ... gaurinn hefur lagt alveg heilmikla vinnu í þetta:) viljið þið auglýsa ykkur á húsbíl? páfinn birtist á ristuðu brauði, cure for a bald head, cure for ugly, happa-regnhlíf, 12 ára gamall banani og falskar tennur, Satan á Skittlesi!!, happa-afa-stafur símams m&m - gaurinn sem er að selja það varð víst fyrir einhvers konar hugljómun og skrifaði um það líka:) ... and lot's more:)
hvar finn ég þetta .... google er alltaf sniðugt:) "íþróttamyndir"
... ætla að fara að horfa á Boston Legal, þessir þættir eru hrein snilld ... og mikið rosalega er James Spader flottur:) ... Shatner líka auðvitað:) ... og Mark Valley ... Spader er samt mjög, mjög flottur:)

miðvikudagur, apríl 06, 2005
ég er lasin í dag ... finnst samt eins og hafi valið nákvæmlega rétta daginn til að vera heima hjá mér, rosalega er kalt úti:/
ég komst ekki án netið í gær, veit ekki hvað var að en ég gat ekki tengst internetinu þó ég hafi restartað nokkrum sinnum og fiktað og fiktað, þannig að ég fór bara að sofa. Í morgun ákvað ég að prófa aftur en gat ekki horft á tölvuna á meðan ef hún skyldi ekki geta tengst:) ... ég held að ég sé netfíkill:) annars er ég búin að vera að surfa aðeins í dag, ekki mikið bara að skoða ... var til dæmis að skoða e-bay, Ferrari pickup - er það ekki bara málið????:)
ef einhver vill læra að setja upp þvagleggi er hægt að kaupa svona "gínu" til að æfa sig á hérna fyrir stráka og hérna fyrir stelpur ... og hérna er heill listi af gínum og módelum etc. til að æfa sig á, það er búið að banna aðgang að gínunni sem kennir þér að skoða blöðruhálskirtilinn, sleipikrem fylgir :)
hver fílar Star Wars? hver fílar kartöflur? ef þið fílið bæði er þessi síða fyrir ykkur
:) það er fullt á heimasíðunni sjálfri eins og "kynlíf" í tölvuleikjum og frekar súrar vatnsbyssumyndir ...

ekki gefa mér svona vatnsbyssu ...
en ég hef fundið SÍÐUNA, ekki búast við bloggi frá mér næstu dagana, ég ætla að vera á netinu já en ég ætla bara að vera á einni síðu - þið megið koma líka:)
Góðar stundir og passið ykkur á kuldabola

laugardagur, apríl 02, 2005
sérlega hressandi hugmynd finnst mér:) ... fyndið að vera að vinna í bakaríi og ákveða að taka þátt í þessum alþjóðlega degi;) á þessari síðu getiði lesið meira um þessa hátið og í More International News neðar á síðunni (fyrir neðan teiknimyndina af gaurnum sem er að flagga buxunum sínum stendur:
Also, Stebbi and friends are going to honor the special holiday in Iceland by having a parade at Kringlan, which is apparently a mall. Who would have thunk it!? A No Pants Day Parade. Go Iceland!
þekkið þið þennan Stebba? eða vini hans? hlakka til að sjá hvort þeir/þau standi við þessa yfirlýsingu ... en nú er komin pressa:) finnum Stebba og hvetjum hann áfram:)
en að öðru, notið þið ggg-mail? og að enn öðru ég var að koma heim eftir að hafa setið í kennslustofu í allan dag (fínt þegar snjóaði, leiðinlegt þegar sólin skein... eins og gerist) flestir sem voru með mér voru karlkyns og hér er ég búin að finna síðu fyrir karlmenn til að sýna karlmennsku sína:) ... svo geta allir farið á þessa síðu og lært að verða mennskir lygamælar ... þannig að ef stákar fara að ljúga um að borða kjöt hrátt eða að þeir séu með badass tattú vitum við það ... þeir verða líka að geta sýnt tattúið:) ... ég var að læra skyndihjálp í dag, með myndum, mig langar ekki til að sjá neinn borða hrátt kjöt ....
Góðar stundir
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)