mánudagur, ágúst 11, 2003

jújú:) kominn mánudagur aftur... hef verið að skoða hamsturinn.is - hann er rosalega góður ljósmyndari - og síðuna hennar Dagnýjar Ástu þar sem eru líka snilldarmyndir af Gay Pride:) eins og þessa hérna - ég er þarna!!!!!!... undir regnhlífinni sko:) hehehehe



og hérna er Hafsteinninn!!! ég þekki þennan mann:)! og hann er frægur:)!!!!



svo er um að gera að skoða þetta - og þetta - og þetta - og ...... hehehehehe

þessar myndir eru rosalega stórar þannig að ég mæli bara eindregið með heimasíðunum arni.hamstur.is sem sagt og myndaalbúmi Dagnýjar Ástu:)

rosalega skrítið að vera að hætta í vinnunni bráðum.... veit ekki alveg hvað ég er að gera en ég veit samt að ég meika ekki annan vetur í næstum fullri vinnu með námi... verð að minnsta kosti að athuga hvort að ég sé nægilega klár til að vera í námi:) ef ekki þá fer ég bara að vinna fulltime án þess að vera sífellt á bömmer yfir að vera að vinna of mikið, yfir að vera ekki að læra og yfir að vera hvorki að standa mig í vinnu né námi:) svo verð ég vonandi ekki eins þreytt og ég er alltaf á veturna:)

en ég er þreytt núna og ætla að fara í sturtu og til Írisar sem er eitthvað slöpp:( ekki nægilega gott....

góða nótt:)

sunnudagur, ágúst 10, 2003

ójá, komin með nýjan teljara þarna neðst til hægri... ok, ég er með tvo teljara þar núna en ég tímdi ekki að henda gamla út... amk ekki fyrr en aðrir 700 heimsóknir verða komnar:)hehehehe
Djedveikt gaman í gær!!!!! held að ég hafi ekki dansað svona mikið og lengi síðan.... Rammsteintónleikunum nema að þá hoppaði ég aðallega við sviðið en útkoman, svitalega séð, var sú sama;) vissi ekki að það gæti verið svona gaman á Nasa? kannski er það yfirleitt ekki svona gaman? verð samt að segja að Páll Óskar var ekki alveg eins skemmtilegur og mig minnti... hann sjálfur er skemmtilegur býst ég við, þekki manninn ekki baun, en inná milli komu alltof tekknóleg "lög" án skiljanlegrar laglínu (amk fyrir mín eyru) sem var ekki eins gaman að dansa við.... en DJ Dagný var snilld!!! Öll lögin skemmtileg og alltaf hægt að syngja með og þannig.... ég er svona íslenskur-kellinga-djammari greinilega? verð að geta sungið með til að fíla lögin:)hehehhee

það var grenjandi rigning á leið niður í bæ þannig að við Íris stoppuðum í hraðbanka og vöktum lukku... það sést miklu betur inn en það sést út;) stutt viðkoma í strætóskýlinu í Lækjargötu þar sem við hittum þrjá Þjóðverja sem voru að bíða eftir leigubíl... ok:) ég auðvitað: "auf Deutchland? Ich spreche Deutch!!! I habe Derrick gesehen!!!!" og Íris: "dumdum dumdum dumdum dadadadaaadarara!!!!" (derricklagið sko - soldið erfitt að "skrifa" það:)hehehehe) þeim fannst þetta rosalega fyndið, að sjálfsöguð:) tvær fullar og rennandiblautar íslenskar stelpur að syngja lag úr eldgömlum sjónvarpsþætti:)

anívei, komumst á Nasa og hvern sjáum við þegar við erum búin að skila af okkur jökkunum? Þjóðverjanna!!!! þeir tóku leigubíl úr Lækjargötunni á Nasa:)hehehe við hlógum geðveikt að þeim, auðvitað, og þeir buðu okkur uppá bjór... eins og þú gerir þegar fólk hlær að þér:) gátum ekki alveg torgað nýjum bjór, því við vorum að klára þann sem við höfum keypt þegar við komum inn, en sem betur fer hittum við Hannes, Hafstein, Danna, Ellu og Odd og deildum bjórunum bróðurlega á milli okkar á meðan við dönsuðum:)

rosalega gaman:) Kolla var í mjög flottum kjólfötum og hún var að setja mynd af sjálfri sér á síðuna sína:) hljóta samt að hafa verið rosalega "heit" í öllum hitanum?:) sá fullt af fólki sem ég þekki og allir skemmtu sér rosalega vel held ég barasta, ég og mínir líka - er það ekki????:)

verð að fara að skúra og þrátt fyrir allan dansinn, bjórinn, hösslið, klípingarnar (það var alltaf verið að klípa mig í rassinn og... annars staðar?????? errrr.... gaman að sjá þig líka?:)) og hitt í gærkvöldi er ég í miklu stuði og alveg til í að skúra.... kannski ekki til í að skúra en ég er ekkert þreytt eða slöpp:) sem er að sjálfsögðu vel:)

laugardagur, ágúst 09, 2003

Gay Pride var flott en blautt!!! ekkert svo margir enda blautt!!! hef rosalega mikið að segja núna en ég er að fá vinkonu mína í heimsókn þannig að það er ábyggilega ekki mikill tíma til stefnu... ætlum á Nasa í kvöld, það á að vera rosalega gaman skilst mér en ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei farið á Nasa:) ... alltaf er ég að koma upp um lúðaskapinn í mér:)hehehehe

hef verið að pæla soldið mikið í kynhneigðum, táknmáli og fleiru (ekki að kynhneigð og táknmál séu tengd á nokkurn hátt... eða jú kannski?... ný pæling:)) en það verður að bíða betri tíma, Íris er mætt og við ætlum að .... spila eða eitthvað:)hehehehe

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

jújú:) þá er aftur komið kvöld... ætlaði að vera farin að sofa núna... en nei, ég er ekki þessi týpa greinilega:) sko, þessi skynsama sem fer snemma að sofa þegar hún er með einhvern fáránlegan hósta sem er samt ekki hósti heldur svona endurskipulagning innyflanna sem hindrar almennilegan svefn... en ekki djúpa öndun... ég get andað alveg ofaní maga, auðveldlega, en er samt með einhvern lungnahósta sem er rosalega vondur... kannski er ég með nýja óþekkta veiki, þessi myndi vera númer hvað ... fimmtán???:) hehehehe bráðum hætti ég að þora til læknis:)hehehehe
einu sinni fékk ég "útbrot" sem var það samt ekki... ég var með þetta í soldinn tíma og ákvað loks að láta líta á þetta ég snéri bakinu í lækninn og sýndi honum hvað var að mér ... því miður sá ég ekki svipinn á honum en heyrði: "errrr, augnablik..... ég ætla aðeins að ná í.... ég verð að....." hann hafði ekki hugmynd... það næsta sem ég vissi var að það voru mættir fimm læknar og nokkrar hjúkkur inn í herbergið (ég vissi ekki að það væru svona margir læknar á heilsugæslustöðinni!) og allir að pæla..... hmmmm verulega óþægilegt:) þetta var eitthvað merkilegt þannig að ég fór til sérfræðings sem vissi ekki heldur en sendi mig í exemljós sem virkuðu bara fínt:) gallinn var bara sá að ég varð rosalega brún í desember.... verulega hallærislegur-tjokkó-efem-töffari:) sérfræðingurinn fór í jólafrí og hitti mig ekki í nokkrar vikur á meðan ég var í ljósunum, í byrjun janúar fór ég í tíma til hans og hann sagði að ég liti vel út og spurði hvort ég hefði farið til sólarlanda um jólin????? NEI!!! þessi exemljós gera fólk ekki sólbrúnt - couldave fooled me:)hehehehe

jæja þetta voru tvær skemmtilegar sjúkrasögur af mér... segið svo að ég skrifi aldrei um neitt persónulegt:)hehehehe kannski er ég með hita? hver eru einkenni lungnabólgu?:)

vissuð þið að það eru framkvæmdar að meðaltali þrjár kynskiptiaðgerðir á dag í Bandaríkjunum?:)

þriðjudagur, ágúst 05, 2003

ok... virkaði ekki farið samt á þetta og klikkið á The Life of a Cat:)
verð að tékka á því hvort þessi linkur virkar:) rosalega fyndið... fannst mér ekki Fídel:)
þá er minns kominn heim... og búinn að fara í sturtu og leika soldið við köttinn!!:) samt enn full af orku sem er rosalega merkilegt:) yfirleitt nenni ég ekki að gera neitt mikið þegar ég kem heim á kvöldin en ég er jafnvel að pæla í því að gera aðra atlögu að þessu myndaalbúmi:) eða endurskipuleggja þessa blessuðu eldhússkápa eitthvað... skil ekki hvað fólk hefur í sínum skápum því þetta er ekkert að virka hjá mér? kannski ætti ég að kaupa bók eftir Mörtu Stúart og fá einhver ráð?... eða bara láta þetta vera? kannski ætti ég að losa mig við eitthvað af þessu áfengi sem er að renna út á tíma? hvers konar nörd á útrunnið áfengi???? hugsanlega dett ég bara í það kvöld í staðinn fyrir að gera eitthvað gáfulegt, grynnka aðeins á birgðunum?:)

aníhú:) vissuð þið að ísjakar vega að meðaltali 20 milljón tonn?
tvisvar í viku þarf að skrifa nýjan matseðil og það er eitt af mínum verkum ... það besta við þetta er að prentarinn er rosalega lengi að prenta út frumritið (sem kokkurinn fer yfir til að sjá að allt sé rétt) því hann er ekki orðinn heitur ennþá og ég verð alltaf að bíða eftir því:)
að sitja hérna við tölvuna er alger snilld... fyrir utan það að fá yfirleitt ekki að sitja á neinum öðrum tíma dagsins þá er ég alltaf að læra ný orð:) í dag til dæmis:
Hummus: kjúklingabaunamauk
Compot: hvítvínssoðið eitthvað - tómatar, fennel, aubergine...

mjög merkilegt:)

allir rosalega ánægðir að sjá mig aftur - jafnvel áður en þeir frétta að ég hafi komið með nammi með mér... kannski búast þeir bara við því?:) nnnaaahhh! ég er svo skemmtileg:) auðvitað söknuðu þeir mín allir:) yfirmaðurinn sagði meira að segja að honum hefði liðið í siðustu viku eins og það vantaði á sig vinstri hendina... sem er rosalega merkilegt vegna þess að hann er örvhentur (hvernig er þetta skrifað????) og gerir ALLT með vinstri:)

ok... það er gaman að vera komin aftur í vinnuna:) þetta er bara einhver meinloka í mér að það sé ekki gaman að vinna 13 tíma á dag alla daga vikunar?:)hehehehe

mánudagur, ágúst 04, 2003

tók eitt próf í dag…

Has anyone considered that maybe this world doesn't deserve to be saved?
Fenix.
First priority: Loki.

Second priority: Making sure that he never finds
that out.

Take the male version of this quiz or you can go
visit Ellie @ quod.pitas.com


Which female character from Ragnarok are you?
brought to you by Quizilla

ég er greinilega ekki nægilega heiðin? Hver er Fenix?

Þá er þessi snilldar helgi búin og maður verður að mæta í vinnuna á morgun klukkan sjö… jibbí… kannski er ég bara löt að eðlisfari en mig langar ekkert til að fara að vinna aftur… mig langar í skólann! Kannski er ég bara skrítin?

Ætti kannski að skirfa inn ferðasögu frá Færeyjunum en ekki í kvöld – ég er að lesa svo skemmtilega bók að mig langar til að klára hana áður en ég fer að vinna aftur – annað kvöld á ég ábyggilega ekki eftir að gera neitt annað en að fara í sturtu og glápa á imbann eða spila tölvuleiki… 12-13 tíma vinnudagur er ekki beint auðveldur þegar maður er búinn að vera í svona löngu fríi - maður verður "linur"

sunnudagur, ágúst 03, 2003

Þetta albúma dæmi er að gera mig vitlausa!!!! Það neitar að uploada á einum stað svo þegar ég reyni hina leiðina (ein í einu – tekur rosalegan tíma) þá fer ég alltaf inn á Windows XP heimasíðuna þó að ég vilji bara browsa…. Hef ekki þolinmæði í þetta í dag:) Ætla að fara að koma mér út og mála útidyrahurðina eða eitthvað… nenni ekki að hanga inni en langar ekkert út… I have serious problems!!:)
Ok, babysteps, fyrst í sturtu, svo í föt, taka soldið til svo mér líði betur hérna, ganga frá töskunni sem er enn á gólfinu þó að allt sé komið úr henni, kannski borða eitthvað ef ég finn eitthvað…. Þyrfti að fara að versla en ég veit aldrei hvað ég á að kaupa þannig að ég kem alltaf heim með tekex og tómatsósu og tannkrem (vá byrjar allt á t!) – þoli ekki búðir… ég kann samt að kaupa bækur held ég… farin að gera eitthvað!!!!

…. ég veit svo sem alveg hvað er að mér en það gerir þetta ekkert auðveldara….
ætli það sé hægt að kaupa lyf gegn eirðarleysi?
núna er ég með smá hálsbólgu en ekki svo slæma, mér líður eins og ég sé lasin en er það samt ekki, ég vil fara út og hitta fólk en vil líka vera bara ein heima, mig langar í útilegu en langar líka til að vera í bænum... ég er SVO eirðarlaus að þetta er ekki fyndið - ég gat ekki einu sinni sofið almennilega í nótt vegna þess að ég varð að fara á fætur og labba einn hring ... ég var ekki að gera neitt nema fara inn á bað og til baka eða inní herbergi og til baka, ég var ekki að ná í neitt og ekki að skila neinu... mjög merkilegt!!!

annars er ég að pæla í að fara að koma mér upp svona on-line myndaalbúmi vegna þess að ég vil geta sett inn myndir hingað og ég kann það ekki nema að hafa svona "internet-addressu" á þær:)

föstudagur, ágúst 01, 2003

Komin heim...

Snilldar ferð og mig langar til að vera þarna lengur ... hvers konar sveitalubbi fellur fyrir Færeyjum?

að vísu hef ég líka fallið fyrir Edinborg, París og Amsterdam eftir að fara þangað og ekki eru það sveitó borgir .... ætti kannski ekki að minnast á það að mig langar líka rosalega til Nýja Sjálands (fleiri kindur en menn), Suður Bandaríkjanna (redneck/white trash/Bible Belt) og Grænlands (þar sem fólk skítur í fötu)...

var heima hjá mömmu og pabba áðan og sat aðeins fyrir framan sjónvarpið þegar pabbi var að horfa á einhvern þátt um fólk sem semur texta fyrir vinsæl popplög - mjög skemmtilegt svo kom myndband með The Righteous Brothers

mér fannst þeir ekki líta út fyrir að vera bræður, tilkynni pabba það og segi að annar líti út fyrir að vera Vúlkani (úr Star Trek .... ok, búin að fullsanna að ég er nörd með einni bloggfærslu!!) hann spyr: "hvað er Vúlkani?" .... ég segi "þjóð í geimnum" og hann tók það gott og gilt, í nokkrar sekúndur og horfði svo á mig eins og ég væri að verða orðin hoppandi geðveik

sjáið þið ekki svipinn með "bróðurnum" til vinstri og þessum til hægri hér?



ef maður pælir í því er hinn soldið líkur honum Kirk...

fimmtudagur, júlí 24, 2003

ok.... lagaðist bara af sjálfu sér:) fínt og flott:) ég er í of góðu skapi til að vera eitthvað að vesenast með íslenska stafi vs. útlenskt bögg/blogg:)

aníhú, búin að vera að taka soldið til en verð að gera meira og verða að fara í sturtu bráðum og verð að sofa slatta í nótt vegna þess að í þessari viku hef ég líklega slegið met í að fara seint að sofa...... og ég ælta ekki að sofa allann tímann í Færeyjum:)

Færeyjar Á MORGUN!!!!!! get varla beðið þó að ég þurfi geðveikt að geta stoppað tímann akkúrat núna því ég þarf að gera svo margt... myndavélin í viðgerð á morgun (yndislegur maður í Beco sem heitir Guðmundur ætlar að redda þessu fyrir mig:)), pakka, finna föt, helst að kaupa mér buxur og kannski skó????? svo ég hafi til skiptanna og solleis, gefa burknanum og Júlíu heima hjá Írisi... kaupa mat fyrir köttinn og kattarsand og eitthvað sem mömmu finnst geðveikt gott því hún ætlar að flytja inn í nokkra daga og "þykjast vera í útlöndum":) Mamma er eflaust yndislegasta kona sem ég mun kynnast í þessu lífi og ég er fáránlega heppin að hún sé mamma mín en ekki einhver kona sem kemur í búðina!!!!!

Bróðir minn kom í heimsókn í vinnuna í dag í búningi með mjög skemmtilegar fréttir!!!:) vekur alltaf jafnmikla lukku meðal gauranna í vinnunni að einkennisklæddir menn skuli koma að heimsækja mig og það endar alltaf sem brandari dagsins... sumt er fyndið og með þessum bröndurum get ég lifað ... þegar ég var kölluð Garún AB í nokkra daga var ég að verða vitlaus - það kom til vegna þess að einhver sumarstarfsmaður í Mjólkursamsölunni sendi okkur 60 lítra af AB mjólk í staðinn fyrir sex og ég hafði pantað þann daginn.... ég held að það væri góð hugmynd að hafa svona sumarstarfsmannaleik á sumrin eins og það eru alltaf kókleikir og þannig:

"Heimskasti Sumarstarfsmaðurinn! hefur þú lent í vandræðum vegna óreyndra starfsmanna stærri og smærri fyrirtækja og stofnanna? hefur þú orðið fyrir töfum vegna þess að það er einhver auli á línunni veit ekki hvað hann er að gera? verður þú fyrir aðkasti í vinnunni vegna mistaka sumarstarfsmanna annarra fyrirtækja? hringið í síma 904 1234 og tilnefnið heimskasta sumarstarfsmanninn sem þið hafið lent í og hljótið að launum þátttökurétt í KveðjuGleðiVeislu Sumarstarfsmanna 2003 sem haldin verður á Ylströndinn í lok sumars - allir sem hringja inn og greiða atkvæði komast í pott og geta unnið til glæsilegra verðlauna"

en talandi um fólk sem kemur í búðina, ég ætlaði alltaf að skrifa um konuna sem kom á þriðjudaginn (hún hefur ábyggilega verið martröð atvinnurekenda á sínum tíma þegar hún var sumarstarfsmaður btw:)) Þessi kona mætti með útlenskan gest með sér og vildi kaupa fisk vegna þess að svoleiðis "gerir maður" þegar það eru útlendingar í heimsókn:) þessi kona, eins og svo margir aðrir sem fá gesti á sumrin, hafði ekki hugmynd um hvað hún var að gera og, eins og þeir sem koma bara í fiskbúðir þegar það eru útlenskir gestir, bað um: "nýja, glænýja, alveg nýja ýsu" - ýsa er notuð í kattarmat í útlöndum:)
hvað um það þessi kona átti rosalega erfitt með að skipta milli tungumála þannig að þegar hún hafði beðið um þess splunkunýju ýsu á íslensku snéri hún sér að útlensku konunni og sagði: "viltu kartöflur eða hrísgrjón með ýsunni?" ... það skildist ekki alveg þannig að henni tókst með herkjum að skipta yfir í ensku aftur, þær völdu kartöflur, hún rétti mér þær og sagði: "these too" ... ok, sumir eru bara svona og það er alveg í lagi ... nema hvað, hún varð að bíða soldið eftir ýsunni vegna þess að yfirmaðurinn minn var að flaka hana (hún var alveg splunkuný;)), ég útskýrði þetta fyrir henni á íslensku og hún snaraði þessu yfir á ensku fyrir útlensku konuna eins og henni einni er ábyggilega lagið: "the ice is so fresh the fishman is doing it" - eða á íslensku "ísinn er svo ferskur að fiskimaðurinn er að gera það":)

ladída... mér fannst þetta geðveikt fyndið:) ég kveikti bara á tölvunni til að sjá dagskránna fyrir Ólafsvökuna og ætlaði að slökkva strax aftur en kíkti aðeins á netið... og núna er ég búin að vera alltof lengi að gera ekki neitt af viti, kíkja á tölvuna vaska upp, kíkja á tölvuna, þurrka diska, kíkja á tölvuna.... ætla að hætta þessu og taka til milli þess sem ég tek til, ryksuga herbergið, færa húsgögnin á hentugri staði, brjóta saman föt, færa húsgögnin á hentugri stað, skúra baðherbergið, færa húsgögnin á hentugri stað.... get aldrei ákveðið mig hvar þessi húsgögn eiga að vera:) - held að allt muni ganga miklu betur svona, er það ekki?:) ekki næstum eins skemmtilegt samt:( þegar maður vinnur við að taka til nennir maður ekki að taka til heima hjá sér.... samt eru hárgreiðslukonur alltaf með klikkaðar klippingar? en smiðir búa alltaf í ókláruðum húsum,bifvélavirkjar keyra alltaf bilaða bíla en saumakonur ganga í heimasaumuðum fötum.... kannski fer þetta bara eftir starfinu?:)


.... en eitt persónuleikapróf:)
merkilegt:)

skylar jade



Your Stripper Name is Skylar Jade!


You're an experienced stripper at a typical club, with the stage name to prove it.

You haven't yet made it to the top end clubs in the big city...

But you certainly don't have to wipe down the mirror after you dance!
You're seasoned at pole tricks and could win a gold medal - if pole dancing were an Olympic sport.

You love doing private dances for customers - as long as there's no touching and big tipping!

You've got the future of a $2000 a night feature dancer, Jenna Jameson style!



What's *Your* Stripper Name?

More Great Quizzes from Quiz Diva



... og svo þetta:)
normal guys



You Attract Normal Guys!


Not that "normal" is a bad thing... you just prefer not to get your heart broken.

You've probably dated enough losers in your life, learned from it, and become an ultra cool chick.

And it's this togetherness that attracts the right kind of guy.



Healthy guys aren't afraid of intimacy or commitment.

They'll call you after a first date, but they won't want to move in after one week.

Normal guys can solve their own problems - and will help you solve yours.



To keep things blissful with your normal guy (or to get the right one), it's easy.

Continue to be the super incredible chick that you are, no emotional baggage or issues.

Normal, incredible guys love girls like you.


What Kind of Guy Do *You* Attract?

More Great Quizzes from Quiz Diva

fokk fokkedi fokk fokk fokk!!!!

hvernig langar mann sonna?????

þriðjudagur, júlí 22, 2003

ójá, ég er búin að fatta gátuna:) Shout outið virkar ekki þanngi að ég veit ekki hvort einhver annar hefur gert það líka:)

sá sem heitir það sem hann var heitir tveimur nöfnum, Hreinn Sveinn
sá sem heitir það sem hann er heitir Erlendur, kannski heitir hann Erlendur Sveinn (kannski Hermannsson?:))
sá sem heitir það sem hann verður heitir Gestur, kannski heitir hann Hreinn Gestur ef bóndinn leyfir honum að fara í sturtu þegar hann hefur hleypt þeim inn:)

... er þetta rétt svar Gréta?:)
ég sem var búin að skrifa svo fínan póst!!!!!! það komu bara fimm punktar!!!!!

ég skrifaði einmitt um konu sem var soldið gáfnafarslega skert og það er ábyggilega karma að allt skildi þurrkast út hjá mér:)

... en þetta er góð saga:)
skrifa hana aftur á morgun.... klukkan er orðin of margt núna.... og ég þarf að fara að gera eitthvað sem meira vit er í:)
......

mánudagur, júlí 21, 2003

prentarinn er að prenta og ég er að bíða.... ég er að reyna að leysa gátu og mig vantar hjálp... mig vantar þrjú mannanöfn - að vísu er ég búin að finna eitt:)

þrír menn koma að bæ og berja að dyrum
bóndinn opnar og spyr þá að nafni, fyrr komi þeir ekki inn
fyrsti segir: ég heiti það sem ég var
annars segir: ég heiti það sem ég er
þriðji segir: ég heiti það sem ég mun verða (þennan er ég búin að fatta):)

hvað heita mennirnir?

þetta eru víst rosalega algeng nöfn en enginn þeirra heitir Guðmundur held ég:)

sunnudagur, júlí 20, 2003

SNILLDARHELGI!!!!!
fyrir utan hvað veðrið er búið að vera gott og ég er búin að vera í fríi í allan dag þá er ég búin að fara í "útilegu" ... kallast það kannski eitthvað annað þegar maður sefur í bílnum sínum? og blót og matarboð og á djammið og stikna í sólinni og svo framvegis...

nenni eiginlega ekki að blogga en vildi bara segja að þetta er búið að vera frábær helgi og takk allir sem voru með mér um hana... eða eitthvað:) skemmti mér rosalega vel og verðum að gera þetta allt saman aftur er það ekki?

... svo er það auðvitað berjamóið í haust;)

þetta er annars snilldar mynd svona fyrst ég er að blogga þetta - sérstaklega millikaflinn;)

svo er þetta líka mjög skemmtilegt:) pick one:)

þriðjudagur, júlí 15, 2003

Takk kærlega fyrir Ævar:) núna eru íslenskir stafir þarna í hedernum:)

Shout outið virkaði aldrei í gær þannig að ég ælta að nota tækifærið og segja: takk kærlega fyrir Bedda:)!!! ef ég ákveð að skilja hann eftir færðu þú lykla:) finnst þér að ég ætti að skilja hann eftir.... ég fer að missa svefn útaf þessu:)

Ég var að komast að svolitlu í dag sem ég ælta að deila með þeim sem þetta les... ég þoli ekki fullorðið fólk sem er með tyggjó - sérstaklega ekki ef það tyggur það eins og ég sé tannlæknir sem vilji sjá alla jaxlanna!!! það eru líka svo lengi að hugsa að mig langar til að lemja þau!!!!

... það er líka dónaskapur að tala með fullann munninn þó að það sé rautt Extra og gott fyrir heilbrigða jaxla...

það kom einmitt ein í dag sem var fáránlega dónaleg!!! hún var að vísu ekki með tyggjó heldur Special K Bar ... ef ég er með eitthvað bíð ég venjulega eftir að ég er búin að gera það sem ég ætla að gera í búð áður en ég fæ mér það OG skil það eftir útí bíl!!! Þessi kona kom inn og opnaði pakkann, tók "barið" úr umbúðunum tók stórann bita, leit á mig og sagði: "mhhaaaddd gggoodda gggaaaddduuuuuubbblaaaa?" og benti á hillurnar.... ég er kurteis ég sagði ekki "ha" heldur "afsakið" - hún horfði á mig eins og ég væri fáviti og endurtók: "mhhaaaddd gggoodda gggaaaddduuuuuubbblaaaa?" ... hvað var kellingin að meina????? "afsakið" sagði ég aftur og glápti á hillurnar hvað/hvar var þetta mhad goda gadubla???? hún er greinilega viss um að nú hafi hún lent á heimskasta "sumarstarfsmanni" ársins, tekur sér góðan tíma í að kýla leifarnar af Special K Barinu út í kinnina með tungunni og segir svo: "hvað kosta kartöflurnar?" ... átti ég að fatta þetta?

þetta var erfiðasta afgreiðsla dagsins (samt komu inn sex konur og einn maður með tyggjó) vegna þess að í hvert sinn sem hún ætlaði að segja eitthvað tók hún fyrst bita af þessu kexi sínu og frussaði því svo framan í mig... og bað mig svo um að henda bréfinu - stillti mig um að henda því í hana samt, ég er kurteis:) en henni til afsökunar held ég að hún sé soldið heimsk, eftir að hún var búin með þessa "léttu máltíð" skildi ég hana alveg en ég var alltaf að segja henni eitthvað nýtt - "plokkfiskurinn er tilbúinn, það þarf bara að hita hann" - "nú, er þaaaað?"
"kortið þitt er útrunnið" - "nú, er þaaaað?"
"ég skal setja í poka fyrir þig" - "nú, er þaaaað?"
"himininn er blár" - "nú, er þaaaað?"
þetta kemur fyrir fólk sem keyrir drapplitaða Benz jeppa og málar sig of mikið býst ég við:)
kannski er það bara ég? mér finnst það ekkert fyndið þegar fólk labbar inn í fiskbúð og segir: "ég ætla að fá fisk" eða "áttu fisk?"... ég á eftir að lemja þann næsta sem segir það

hvað um það... þvoði bílinn minn áðan með hjálp Gunnars á verkstæðinu:) núna er hann glerfínn og ég vona að það komi ekki rigning á morgun til að eyðileggja glampann:) drukkum líka mikið kaffi og gerðum grín að flagarabolnum hans Dodda:) og ég lærði að tappa lofti af bremsukerfi Alfa Romeo... kannski fleirum ef systemið er eins á öðrum bílum - hef ekki hugmynd:)

fastir liðir á mánudögum:)

Reykjavík, dagbók LR helgina 11.-14. júlí 2003
... var tilkynnt um þjófnað í verslun á Laugavegi. Þarna var maður staðinn að þjófnaði á harðfisk að verðmæti kr. 347.- Þá er hann grunaður um þjófnað á harðfisk s.l. sunnudag.

Síðdegis á sunnudag var tilkynnt um laus hross á golfvellinum við Korpúlfsstaði en þar mun hafa verið golfmót í gangi. Í fjarveru vörslumanns hesta var haft samband við mann hjá Hestamannafélaginu Herði og brást hann skjótt við og fór á staðinn.

Aðfaranótt mánudags var tilkynnt um þjófnað úr íbúð í Vesturbænum.Tilkynnandi telur að hann hafi tapað lyklum að íbúð sinni. Búið var að fara inn og stela dýrum DVD spilara, tölvumús og fleiru.


Ísafjörður, vikan 8. til 14. júlí 2003 - hver skrifar þetta?????

Lögreglan var kölluð á Suðureyri um klukkan 06:30 á föstudagsmorguninn. Tilkynnendur, sem voru fleiri en einn, sögðu að tveim bifreiðum væri ekið með miklum hraða inn og út úr bænum. Er lögreglumaður, sá sem útköllum sinnti, mætti á vettvang, hitti hann fyrir fjóra unga menn sem voru með ölvunarlæti á staðnum. Ökumenn bifreiðanna voru hvergi sýnilegir, en þessir fjórir ungu menn, sáu sig knúna til að sýna lögreglumanninum ofríki og neita að hlýða fyrirmælum hans, að láta af óspektum þeim sem þeir höfðu í frammi og létu ófriðlega. Þurfti því að kalla út fleiri lögreglumenn til að koma skikki á hegðan þeirra. Þegar liðsaukinn kom á vettvang, neyddust alla vega þrír mannanna til að yfirgefa staðinn, en einn þeirra var færður í handjárn og gisti fangageymslur lögreglunnar fram eftir degi.

Það er aldrei of oft brýnt fyrir fólki að skila munum, sem það finnur til lögreglu. Í hverri viku kemur fólk að leita muna sem það hefur týnt. Lyklakippa er einskis virði hjá þeim sem finnur hana og veit ekki hvar lyklarnir passa. Sá sem týndi kippunni verður aftur á móti fyrir miklu tjóni. Þá er annað, þeir sem týna munum, þurfa að koma á lögreglustöðina og fá að leita í “dótskassanum” hjá okkur, þar eru ótrúlegustu hlutir, lyklar, gleraugu, skartgripir, úr, geisladiskar og hvað eina sem nöfnum tjáir að nefna. Verið velkomin í heimsókn að leita þeirra muna, sem þið týnduð og skila því sem þið funduð.


that's all folks.....

sunnudagur, júlí 13, 2003

Skringilegt að vakna sjálfviljug langt fyrir hádegi á sunnudegi... kannski þessi mikli svefn undanfarna daga hafi haft góð áhrif á allt saman og ekki aðeins á flensuna vegna þess að ég vaknaði ekki bara eldsnemma heldur er ég búin að vera að taka til, vaska upp og er að fara að halda áfram með tréið mitt á veggnum sem er að verða soldið flott... ég er meira að segja að pæla að hafa nokkur laufblöð blá og rauð og kannski gul því að þetta er að sjálfsögðu ekki raunverulegt tré vegna þess að ég er að mála það auk þess sem ég er ekki næstum því nægilega góð til að gera það "lifelike" þannig að afhverju ekki?

Fékk þetta á emaili um daginn frá Grétu og mér finnst það rosalega fyndið:)

On behalf of Canadians everywhere I'd like to offer an apology to the United States of America. We haven't been getting along very well recently and for that, I am truly sorry.

I'm sorry we called George Bush a moron. He is a moron but, it wasn't nice of us to point it out. If it's any consolation, the fact that he's a moron
shouldn't reflect poorly on the people of America. After all it's not like
you actually elected him.

I'm sorry about our softwood lumber. Just because we have more trees than you doesn't give us the right to sell you lumber that's cheaper and better than your own.

I'm sorry we burnt down your white house during the war of 1812. I notice you've rebuilt it! It's Very Nice.

I'm sorry about your beer. I know we had nothing to do with your beer but, we Feel your Pain.

I'm sorry about our waffling on Iraq. I mean, when you're going up against a crazed dictator, you wanna have your friends by your side. I realize it took more than two years before you guys pitched in against Hitler, but that was different. Everyone knew he had weapons.

And finally on behalf of all Canadians, I'm sorry that we're constantly
apologizing for things in a passive-aggressive way which is really a thinly veiled criticism. I sincerely hope that you're not upset over this. We've seen what you do to countries you get upset with.

Thank you.

from: Bob


þessi brandari frá Valgerði er geðveikt fyndinn:) ég hló upphátt að honum þannig að kötturinn hélt að það væri eitthvað hræðilegt að gerast og faldi sig undir sófanum... :

Wabbits
A little girl walks into a pet shop and asks in the sweetest little
lisp:
"Excuthe me, mithter, do you keep wittle wabbits?"
The shopkeeper gets down on his knees (so that he's on her level),
and asks:
"Do you want a wittle white wabby or a soft and fuwwy black wabby
or maybe one like that cute wittle brown wabby over there?"
The little girl puts her hands on her knees, leans forward and says in
a quiet voice:......"I don't fink my pyfon weally gives a thit."

talandi um köttinn... núna er ég að fara til Færeyja eftir viku og veit ekki hvað ég á að gera við hann á meðan:( síðast þegar ég fór flutti vinur minn inn en núna stendur það ekki til boða.... á ég að láta hann vera hérna og biðja fólk að kíkja í heimsókn eins oft og það getur (láta hellings af fólki fá lykil sem ég veit að fílar þetta fíbl) eða á ég að leyfa honum að gista hjá mömmu og pabba þann tíma sem ég verð í burtu?
ég er auðvitað eitthvað geðveik... þetta er bara köttur og ég fíla ekki ketti en hann er líka svo lítil sál og góður í sér og vitlaus og loðinn og huglaus og sætur og elskar mig og treystir mér.... þetta hefur aldrei verið vandamál áður vegna þess að ég hef aldrei farið neitt í lengri tíma .... nokkrar helgar og þá hefur einhver komið í heimsókn kvöldið/kvöldin sem ég var í burtu og þegar við bjuggum með pabba hans átti hann bæði systur og það bjó fólk í sama húsi... sort of:) kannski ætti ég að láta hann fara þangað í pössun? þau hafa aldrei samband við þetta "barnabarn" sitt og hafa ekki hitt hann í næstum tvö ár:)
kannski er ég bara að verða svona kattarkona?



aníhú, ætla að fara að gera eitthvað af viti þar sem þetta er síðasti frídagurinn....

laugardagur, júlí 12, 2003

DJÖ!!!! afhverju get ég ekki tekið mínar eigin myndir og sett þær inn????.... verð að finna útúr þessu....
smá tilraun...

þessi er soldið sæt:) en heimasíðan þyrfti að vera svört til að þetta virkaði almennilega er það ekki?



þú ert að horfa á skjá einn... sort of:)



anívei ... drip.....

ætli ég geti sett inn svona langar hreyfimyndir?



finn ekkert skemmtilegt....:(
ég hata flensur!!!!! ætli ég hati ekki frunsur líka? hef aldrei fengið svoleiðis að vísu, sjö níu þrettán

mér finnst þetta fyndið:)
Environmentalist
Threat rating: Low. You are annoying, but too much
of a softy tree hugger to pose any threat to
the mighty machine of Republican progress. And
the FBI know where you live.


What threat to the Bush administration are you?
brought to you by Quizilla


so now you know:)
surprise
You have a surprise kiss! Your partner is always
pleasantly pleased to have you jump outta no
where to dote them with a fun peck on the cheek
or more passionate embrace. super markets and
work places are your favorite places to attack
your loved one with all your love =p


What kind of kiss are you?
brought to you by Quizilla

þetta átti líka að vera besta helgi sumarsins en mér finnst veðrið ekki vera nein snilld... sem er eins gott vegna þess að ég er ennþá lasin og ég hata það svo ótrúlega mikið.... tekst að gera einn hlut, illa, áður en ég verð að fara aftur uppí rúm og hvíla mig... kannski er ég bara aumingi eða mér hefur tekist að smitast af SARS þegar japönsku túristarnir komu í mat á veitingastaðinn síðasta mánudag... errrr... mér var farið að líða illa á sunnudag þannig að það passar varla hmmmmm ég varð kannski veik eftir þetta "símtal dauðans" síðasta laugardagskvöld?? samband líkama og sálar og allt það? kannski brotnar líkaminn bara saman þegar sálin fattar að vonin og draumarnir eiga sér enga stoð í raunveruleikanum og að hún hefur verið fíbl í laaaaaangan tíma?:) eða ekki.... það var ábyggilega stelpan í bakaríinu sem smitaði mig í síðustu viku - helvítis gullfiskurinn!!!! ekkert nema ljóst hár, varir og augu....

en ég er að mála tré á vegginn minn, eitt laufblað í einu, ég fæ bráðum flott Mongoose hjól til eignar (þar sem snillingarnir Gunnar og Debby eru æðisleg!!!)
og hér er mynd af þeim vegna þess að þau koma í heimsókn hingað reglulega:)... og ef þið viljið ekki hafa myndina bara segja það:)


og ég er í fríi alla helgina eins og ég hef verið síðustu daga.... leiðinlegt samt að hafa verið heima án þess að geta gert nokkuð af viti.... og flensur vara aldrei að eilífu - vona ég? að vísu sagði ég strákunum í vinnunni að hætta að gera grín að kvefinu mínu (þegar það var orðið verulega slæmt og ég var enn að vinna) vegna þess að "svona dóu risaeðlurnar".... ég er nokkuð viss um að einhvern tímann hafi ég heyrt að risaeðlurnar fengu kvef sem stuðlaði að einhverju leyti að falli þeirra og útrýmingu? er það bara vitleysa í mér? ég er ekki risaeðla samt, ég mun ekki deyja úr þessu þó að mér líði ömurlega og ef eyrnabólgan og beinverkirnir og hitinn fer ekki bráðum (kvefið er að mestu farið...) ætla ég bara að biðja lækni um fúkkalyf og læknast:) ástæðan fyrir því að ég hef ekki beðið um svoleiðis fyrr er sú að aukaverkanirnar af fúkkalyfjum fyrir mig eru oft ekki mikið skárri en það sem ég er að reyna að lækna .... bara öðruvísi..... núna nenni ég ekki að röfla meira um flensuna mína.....

kannski finn ég fleiri svona próf sem ég get tekið:)?

fimmtudagur, júlí 10, 2003

Fann gellu/gæja sem býr bara til anime próf á quizilla.com og varð að taka nokkur:) hérna kemur sem sagt smá viðbót enda er ég búin að sofa í nokkra klukkutíma og orðin soldið ferskari:)

einmitt!! þetta er ég í dag:)
sex appeal
SEX APPEAL


(results contain pictures) What kind of ANIME BOOBS do you have?
brought to you by Quizilla


ef þetta væri satt myndi ég galdra þessa flensu í burtu...
Magical Girl
Magical Girl


What is your anime occupation? (pics)
brought to you by Quizilla


þau eru bara svona vegna þess að ég fæ alltaf kvef í augun....
Angry eyes
ANGRY EYES


What kind of anime eyes do you have? (picture results)
brought to you by Quizilla

ok...
none
NONE


(females)what is one of your past lives? (results contain pictures)
brought to you by Quizilla


ekki slæmt:) ég er tík þegar ég þarf þess annars er ég það ekki....
Total Bitch.    Youuse others to do your dirty work. Only when you absolutely have to, you taint your hands. That's not very often. You need to calm down...a LOT. People aren't there
TRUE BITCH

You have great balance and know when it is a good
time to bitch and when not to. You get the
respect you deserve and you know it! You don't
over-do the bitchyness. Go you!


(results contain pictures) What type of bitch are you?
brought to you by Quizilla


aníhú.... þetta er geðveikt leiðinlegt blogg svona almennt.... verð að gera eitthvað í þessu þannig að ég nenni að minnsta kosti sjálf að lesa þetta allt saman er það ekki? fokit - ætla að endurskipuleggja linkana mína
ennþá með brjálaðann hita og rugluð í hausnum - just thought I'd share:)

í svona ástandi er bara eitt til ráða - persónuleikapróf:) og svo meiri svefn þegar manni fer að svima... aftur...

Hello Kitty!
hell raiser
completely fucked!


what fucked version of hello kittie are you?
brought to you by Quizilla

I wanna be a Barbie!
Gangsta Bitch!
You're Gangsta Bitch Barbie. You're tough and you
like it rough, and of course you like to pop a
cap in any wiggers ass.


If You Were A Barbie, Which Messed Up Version Would You Be?
brought to you by Quizilla
... hvar er hún með hægri hendina?????

I'm going to Hell because I am a pervert! But shh! Don't tell anyone.
You're one of those perverts. You know what I'm
talking about.

Clean yourself up, and
get outside more! Fucker.


Why Will You Go To Hell?
brought to you by Quizilla
... so now you know ...

Milli Vanilli rúla....
You are The Twins-
You are The Twins, from "The Matrix."
Bad, but with a sexy streak- surprisingly
refreshing. You know what you want, when you
want it.


What Matrix Persona Are You?
brought to you by Quizilla
... og ég sem vildi vera Neo....:)


schizoid


Which Personality Disorder Do You Have?
brought to you by Quizilla
merkilegt...


You are the typical feminist, depressed, artist.
You go against the crowd and do everything you
can to be different. Too bad noone notices.
Try communicating with people, not just looking
down on them.


What kind of typical high school character from a movie are you?
brought to you by Quizilla
jæja.... Daría voru góðir þættir

Nihilist Bear
Nihilist Bear


Which Dysfunctional Care Bear Are You?
brought to you by Quizilla

freaky...
You got Anita, you lucky bastard.
Anita


Which Anita Blake Character Is Your Ideal Mate?
brought to you by Quizilla


Mystery
You are the mystery woman


Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla

mig langar til að búa til svona próf sjálf... pæla í að gerast meðlimur og prófa það? þegar mér er batnað samt:)
orðin brjálað þreytt á að sitja og merka við valmöguleika!!!... þvílíkt hræðilegt að vera lasin:( þegar ég er veik vil ég alltaf vera Meg Ryan í You've Got Mail... hún er með verulega ógeðslegt kvef en lítur samt snilldar vel út... mynd af mér núna myndi bara enda á þessari heimasíðu:)


miðvikudagur, júlí 09, 2003

Drullulasin og var SEND HEIM úr vinnunni... það gerist ekki nema það vanti á mann útlim.... og ég fór heim snemma í gær líka

Nýti tímann vel í að sofa og sofa og sofa og sofa.... ætla að horfa smá á vídeó og kveikti þess vegna á tölvunni verð að setja smá af löggudagbókinni inn samt:) ... get heldur ekki látið þessa síðustu færslu standa efst mikið lengur... ég er ekki fáviti:)... held ég:)

Akureyri, dagbók vikuna 30.06-04.07.2003
Á þriðjudagskvöld var tilkynnt um grunsamlegan aðila með stunguspaða í brekkunni fyrir ofan Skautahöllina. Þarna reyndist þó allt með felldu og var maðurinn að sinna samfélgasþjónustu við að planta trjám.

Laust eftir miðnætti aðfaranótt föstudagsins var tilkynnt um slagsmál í miðbænum. Reyndist þar á ferðinni maður sem vildi endilega lumbra á nokkrum “borgarbúum” eins og hann orðaði það. Ekki reyndist hér um alvarlegt mál að ræða og fóru félagar lumbrarans með hann á brott en lögreglan ók “borgarbúunum” að dvalarstað þeirra hér í bæ.

Þetta kemur í heild.... þessi skrifar verr en ég auk þess sem mér finnst að það vanta fleiri löggur á Ísafjörð, þeir leggja ofuráherslu á hjálp íbúa bæjarins....

Ísafjörður, vikan 31. júní til 7. júlí 2003
Ekki var tilkynnt um umferðaróhapp í liðinni viku, til lögreglunnar á Ísafirði. Og má segja að í stórum dráttum hafi nýliðin vika verið tíðindalítil.

Kl.13:30 þann 1. tilkynnti erlendur ferðamaður, staddur á Ísafirði, um að stafrænni myndavél hans hafi verið stolið af bekk, sem staðsettur er fyrir utan Sundhöllina á Ísafirði. Myndavélin er af gerðinni SONY DSC 505 og var í grárri myndavélatösku. Lögreglan óskar eftir upplýsingum um þennan þjófnað, búi einhver yfir þeim.

Að morgni 6. var lögreglunni tilkynnt um að brotist hafi verið inn í veitingastaðinn Tóka munk, á Þingeyri. Ekki er fullljóst hverju hafi verið stolið þaðan. Lögreglan óskar eftir upplýsingum um grunsamlegar mannaferðir í námunda við veitingastaðinn um nóttina eða morguninn.

Um kl.12:15 í gærdag, þann 6. júlí, varð það óhapp að hjólreiðamaður féll af reiðhjóli sínu í Bæjarbrekkunni, á Ísafirði. Talið er að óhappið megi rekja til þess að rauðri skutbifreið hafi verið ekið í veg fyrir hjólreiðamanninn, með fyrrgreindum afleiðingum. Lögreglan óskar eftir að hugsanleg vitni að atburðinum gefi sig fram, svo og einnig ökumaður umræddrar skutbifreiðar. Ekki er ennþá ljóst hver tegund bifreiðarinnar er. Hjólreiðamaðurinn mun hafa orðið fyrir töluverðum meiðslum við óhappið, en hann var með hjálm á höfði sem kom sér ákaflega vel í þessu tilviki.

Lögreglan hafði afskipti af fjórum ökumönnum í liðinni viku, sem reyndust hafa ekið yfir leyfilegum hámarkshraða.

Tveir ökumenn reynstu ekki vera með ökuskírteini meðferðis þegar lögreglan hafði afskipti af þeim.

Í vikunni reyndist ein bifreið vera með neglda hjólbarða í umferðinni. Í vikunni áður reyndist önnur bifreið vera með neglda hjólbarða. Sektir við þessu broti nema 5.000.- kr. á hvern hjólbarða sem er með nöglum í.

Reykjavík, Dagbók LR, helgina 4. - 7. júlí 2003
Oft hefur helgarvaktin verið erilsamari... Maður sem staddur var á Skólavörðustíg aðfaranótt sunnudags var skallaður í andlitið, fyrirvaralaus og af manni sem hann kvaðst ekki hafa séð áður. Árásarmaðurinn var handsamaður skömmu seinna og færður í fangageymslu.

Almennt

Þjófnaðirnir eiga sér flestir stað í verslunum þar sem fólk er tekið við að fara út með vörur án þess að greiða fyrir.

Á laugardaginn kom verslunareigandi á lögreglustöðina við Hverfisgötu og sagði varðstjóra að maður sem stolið hafði jakka úr verslun hans fyrir nokkrum dögum væri nú staddur á Hlemmtorgi. Lögreglumenn fóru og handtóku manninn og sem reyndist vera í umræddum jakka.

Þá var óskað aðstoðar í verslun í Kringlunni en þar væri haldið manni sem fyrr um daginn hafði komið og verslað en stungið af án þess að greiða fyrir vöruna. Nú væri hann kominn aftur og hafi ætlað að leika sama leikinn. Var maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöð.

Á sunnudagsmorgun var tilkynnt um að bifreið hafi verið velt á toppinn við göngustíg nærri Sunnuvegi. Eins hafði vinnuskúr sem þar var verið velt á hliðina. Var ljóst að þetta hafði verið gert með einhverju tæki. Skömmu seinna kom tilkynning um að lítilli gröfu hafi verið stolið frá Sigtúni. Grafan fannst síðan í Húsdýragarðinum í Laugardal. Er talið víst að hún hafi verið notuð til að velta bílnum og vinnuskúrnum. Málið er í rannsókn.


Í vetur verður þessi síða skemmtilegri þegar ég er ekki að skrifa hana með 40°C hita eða drulluþreytt úr vinnunni.... þá verð ég námsmaður:) ekki þannig samt að ég muni verða lélegur námsmaður og hanga á netinu allan sólahringinn heldur verð ég að hugsa um eitthvað annað og mögulega uppbyggilegra en hvaða fisk ég eigi að nota í farsið, að ég þurfi að pússa glerið, skúra betur í hornin, þrífa kælinn, raða kryddunum etc.... meiri svefn núna só góða nótt

... ef þið eigið "heilbrigðis-strauma" aflögu má endilega senda mér þá!! mæti nefnilega í vinnuna á morgun þó ég verði komin með lungnabólgu...


sunnudagur, júlí 06, 2003

rosalega gaman í gærkvöldi:) pizza, hvítvín og spil með Írisinni svo stutt gönguferð í "afmælisgjafafund" og afmælispartýið hennar Siggu sem var að verða 26 ára:) veit ekki hvort hún sé með blogg eða heimasíðu .... annars myndi ég linka á hana:)

fékk að vísu símtal dauðans á leið í þetta partý en þá verður maður bara að anda djúpt er það ekki og think happy thoughts?....:)

mjög skemmtilegar sænskar stelpur í partýinu - ein þeirra var með aflitað og appelsínugult hár og þar sem hún er að fara heim aftur til Svíþjóðar er ég að hugsa um að stela klippingunni.... hækka um nokkra sentimetra, skipta um beinabyggingu etc. og ég er viss um að hún fari mér geðveikt vel:)hehehehe annars var hún að segjast vera komin með leið á þessu appelsínugula og er að hugsa um annað hvort afró hár eða svona Beckham fléttur:).... kannski ég fái mér bara afró án þess að klippa mig? massívar me-me krullur sem standa út í loftið?:)

enduðum á Boomkicker, hollenska barnum í Hafnarstræti og það var barasta helvíti gaman þar líka:) held að ég vilji barasta alveg enda þar oftar á djamminu, sérstaklega eftir að við föttuðum neðri hæðina:)

það var geðveikt gaman í gær en ég er aðeins of "viðkvæm" í dag til að vilja fara í vinnuna... en ég held að ég komist ekki upp með að fara ekki ... ég vona bara að það nenni enginn út að borða:)hehehehe

verð að fara að koma mér af stað......

miðvikudagur, júlí 02, 2003

Gunnar bróðir er búinn að koma í heimsókn!! núna get ég ekki lengur gert grín að honum:)

ég þoli ekki þegar maður manar sig upp í símtal svo verður ekkert úr því!!! einstaklingurinn er með slökkt á símanum eða upptekinn eða að vinna eða í heimsókn eða að borða eða einhvern andskotann.... og allar pælingarnar um hvernig maður eigi að koma erindinu frá sér eru foknar út í veður og vind... ég asnast nefnilega alltaf til að spyrja hvort ég sé að trufla þó að erindið er slatta mikilvægt:)

hvað um það:) þetta með myndirnar tókst:)

hérna eru nokkrar í viðbót;)

þetta er bara ógeðslegt!! einu sinni var ég að vinna á stórum vinnustað með mötuneyti, þar neyddist ég til að læra svolítið sem mig langaði aldrei til að læra: "ef ég get ekki skorið það sting ég því ekki uppí mig"... minnti mig á þetta:)



þetta á að vera "sami" hausinn... takið eftir að til að byrja með er hann keyptur í KFC en svo er það McDonalds sem býður neytandanum ókeypis kjúkling í staðinn fyrir hausinn:).....



vitiði afhverju Kentucky Fried Chicken er núna kallað KFC? sumir segja að það sé vegna þess að orðið "Fried" sé ekki líklegt til að auka sölurnar á þessari öld heilbrigðs lífernis en aðrir segja að það sé vegna þess að kjúklingarnir eru orðnir svo úrkynjaðir af "ofrækt" og hormónum að það er ekki lengur hægt að kalla þá kjúklinga....

þessi kona keypti sér Veet Aqua System og fór í safaríferð.... svona kemur fyrir þegar konur fara ekki með rakvél heldur krem sem þarf bara heitt vatn:)



ok, HVAR fær maður svona föt??? og hversu súr þarf maður að vera til að ganga í þeim?:)



a domani:)





jæja.... mér finnst vanta myndir hingað inn....

þessi er fyndin:)


hvað með þessa? það eina góða við Titanic er þegar gaurinn skoppar af skrúfunni... og þegar þau eru með partýið þarna á 3. þilfarinu - ef manni tókst að ignora DiCaprio...



go dawg!



skil þessa ekki samt... hversu slæmur þarftu að vera í maganum til að svona hjól borgi sig?:)



ég var einmitt að hugsa um að sækja um í götumálingarvinnu næsta sumar:) þetta myndi koma fyrir mig ef ég missti einbeitninguna... sem kemur fyrir:)



best að sjá hvort þetta virkar allt saman áður en ég fylli allt af vitleysu:)


þriðjudagur, júlí 01, 2003

ég var að reyna að fá fjölskylduna mína til að kíkja á þessa síðu áðan.... gekk ekki.... ég er hugsanlega tæknivæddasta manneskja fjölskyldunnar!!!:) mamma og bróðir minn skilja ekki hvað blogg er þó að ég hafi reynt að útskýra það nokkrum sinnum, það er ekki hægt að útskýra það held ég? fólk verður bara að koma og sjá með eigin augum er það ekki?:) pabbi reyndi samt að koma með skýringu: "þetta er svona heimur þar sem fólk og fátækir námsmenn geta spjallað saman án þess að fara á kaffihús og spara pening"... "errrrr...." sagði ég "nei, það er ircið" - "ó, hvað er blogg þá?"... hann vissi þó um ircið:)

ég ætla að nota tækifærið og mæla með einum linkanna hérna til hægri, það er hann Ævar Djúphuxuður:) mjög skemmtilegt blogg sem ég kíki alltaf á þegar ég er að netast, fyrir utan pistlanna þá eru linkarnir og heimasíðurnar sem hann finnur alger snilld:)

engar löggufréttir í dag... en ég veit að það er búið að handtaka mennina sem kveiktu í Álfhól, húsinu þarna í Laugardalnum.... kannski eru það gamlar fréttir? en ég veit meira sem er kannski trúnaðarmál þannig að ég ætla ekki að segja meira um það:)

Skjár einn er alltaf í gangi hérna þegar ég er á netinu... svo fjölhæf að ég get gert margt í einu - eða kannski ekki? ef ég væri bara að skrifa þetta væri hugsanlega minna um stafsetningarvillur og færri málfræðivillur?:) og hvað er málið með "Brúðkaupsþáttinn Já"? nafnið... afhverju er þetta "Já" í titlinum? væri "Brúðkaupsþátturinn" ekki fínt nafn á þáttinn? er "Já"-ið ekki soldið yfirdrifið? fyrir utan að skilja ekki alveg hjónaband svona almennt þá myndi ég halda að fólk væri að gera þetta fyrir sig? hjónaband er svona loforð sem fólk gefur hverju öðru um að vera alltaf saman, um aldur og ævi, líkamlega og andlega, og ég skil svo sem að þau vilja að fjölskyldan og vinir taki þátt í þessu öllu með þeim, en alþjóð? þetta er ofar mínum skilningi... brúðkaup að mínu mati eru of persónuleg fyrir svona þáttagerðir:)

annars vorum við Gréta að velta því fyrir okkur um daginn, bréfleiðis, afhverju sumt sem allir segja þýðir í rauninni ekkert eða er asnalegt ef pælt er í því:) eins og það er "heitt á könnunni", þetta þýðir að það sé til kaffi en afhverju? aldrei sagt "kaffið er heitt" það myndi líka vera soldið augljóst.... en fyrst það er heitt á könnunni ætti það ekki að vera "heitt í könnunni"??? sem stendur heit á hellunni? svo er það málið með þessa "tíu dropa"... ef þú segir það í upphafi kaffidrykkju færðu fullann bolla ef þú biður um tíu, þegar báðir eru búnir að fá fulla bolla, kannski fleiri en einn, þá færðu hálfann... ef þetta klikkar, ef þessu er snúið við til að mynda er maður að "brjóta soldið af" sér svona "félagslega":) kann sig ekki:) það þarf ekki einu sinni alltaf að minnast á dropana til að þetta skiljist, það er alltaf verið að bjóða mér tíu...

aníhú, Boston Public, sturta og þannig bíður fleiri pælingar verða að bíða betri tíma:) aren't you lucky little raisins?:)

mánudagur, júní 30, 2003

Þetta er fyndið og ekki frá Akureyri:)

Selfoss, vikuna 24.6 til 30.6 2003
Aðfaranótt fimmtudags var brotist inn í humarvinnslu Þormóðs ramma í Þorlákshöfn og er það í þriðja sinn á skömmum tíma. Enn var það vaktmaður öryggisgæslufyrirtækis í Þolákshöfn sem kom að tveimur mönnum við humarvinnslu Þormóðs ramma. Mennirnir höfðu þá spennt upp útihurð en vegna afskipta vaktmannsins tókst þeim ekki að stela neinu (merkilegt!!!). Vaktmaðurinn hafði samband við lögregluna sem gerði þegar leit að bifreiðinni. Lögreglan í Kópvavogi stöðvaði bifreiðina við Rauðavatn. Þegar mennirnir urðu lögreglunnar varir hentu þeir út bakpoka en í honum voru nokkrar vindlingalengjur (eru það sígarettur?). Við nánari skoðun kom í ljós að brotist hafði verið inn í Litlu-kaffistofuna og vindligarnir (ef þeir ætla að nota erfið orð, verða þeir ekki að geta stafað þau?) voru þaðan. Lögreglan í Kópavogi handtók mennina og yfirheyrði en þeir játuðu bæði innbrotin.

Um hádegi á laugardag var tilkynnt um hvarf á fjórhjóli úr gámi á golfvallarsvæðinu í Þorlákshöfn. Vaktmaður öryggisgæslumaður í Þorlákshöfn varð var við fjórhjólið um 13 klukkustundum síðar í akstri á gamla Þorlákshafnarveginum (eru bara vaktmenn öryggisgæslu í Þorlákshöfn sem sjá glæpi ekki löggur?). Lögreglan fór þegar á vettvang og stöðvaði akstur fjórhjólsins á Krísuvíkurvegi. Tveir unglingar voru á fjórhjólinu. Málið er í rannsókn (hversu mikið þarf að rannsaka?).

Á laugardag varð vinnuslys á borsvæði við Kolviðarhól. Þar fékk starfsmaður borkrónu á fót sinn og slasaðist við það. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítala í Fossvogi. Ekki er vitað um meiðsli mannsins á þessu stigi máls (búast þeir við að hann hafi slasast meira en route eða á spítalanum? ekki traustvekjandi:)).

"You may be a lawyer but I'm a CSI, a damn good one" æl.... þetta CSI er krapp.... þori að veðja að þessi þáttur endi líka á því að Horatio Caine standi í sólskininu, setji á sig sólgleraugun með með vindinn í hárinu og nýtur þess að ganga um götur Miami that are once again safe because he's so damn good!

jæja, ætla að tékka á þessu með könnunina... en Shout Outið er opið aftur!!! sé enga breytingu að vísu en það er að minnsta kosti komið aftur:)

sunnudagur, júní 29, 2003

... og núna er logout takkinn horfinn... hmmmmm
ok:) komin með könnun... ekki rétt á litinn að vísu en.... can't have everything:)

allar þessar fínu spurningar sem delítuðust vegna þess að þetta var ekki að virka... en laga það á morgun:)

verð að læra meira html mál þetta er að gera mig vitlausa að geta ekki gert einfalda hluti:) sjáið til dæmis þessa heimasíðu!!! það er prósess að komast inn á hana:) ég get ekki einu sinni sett inn skoðanakönnun í réttum litum:)!!!!!

og hvaða bögg er þetta með closed for maintenance dæmi? ef þetta kemur ekki til baka og dansar tangó verð ég fyrir vonbrigðum:)!!!

Góða nótt:)
júmms sýnist þetta vera í lagi:)

ok, dagbók lögreglunar aftur

Vestmannaeyjar, 18. júní til 25. júní 2003
Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu vegna óspekta og höfð voru afskipti af nokkrum öðrum einstaklingum sem létu Bakkus ráða ferð.

Sl. mánudag var tilkynnt um enn einn þjófnaðinn á reiðhjóli í Foldahrauni. Stolið var bláu barnahjóli með hjálpardekkjum og er mynd af Gremlings á hjólinu.

Hvað er málið með þjófana í Eyjum?:)

Akureyri, vikuna 23.-27. júní 2003
Á miðvikudaginn gerði Umferðarfulltrúi Norðurlands könnun á notkun bílbelta á Akureyri. ... gefur könnunin því vísbendingar um að heldur hafi slaknað á notkuninni. Bílbeltin eru eitt mikilvægasta öryggistækið og mun lögreglan einbeita sér að því á næstunni að ökumenn verði með beltin spent. Er það starf þegar hafið og voru tíu ökumenn sektaðir fyrir að vera ekki með öryggisbelti við aksturinn í vikunni.

Gleymdu þeir bara að tékka á þessu þangað til könnunin var gerð?

hvað um það....

einu sinni var The Practice soldið skemmtilegur þáttur en núna er þetta bara væl og tilfinningaflækjur... þessir lögfræðingar eru orðnir alltof tengdir glæpamönnunum, for crying out loud Lindsay er að verjast morðákæru!!! hún er að breytast í sækó as I write this!!! "I had to be ok, so I was ok" - "I wasn't going to be a victim, it was my house so I opened the door" - "he came to take me to heaven"... vandræðaleg þögn "I have nothing further"... og þetta er lokaþátturinn þannig að hún verður örugglega dæmd til dauða eða einhvern andskotann þannig að næsta sería verði beðið með mikilli óþreyju... en ekki af mér, nenni þessum þáttum ekki lengur:) en konan sem leikur Eleanor, Camryn Manheim, er soldið góð:)

SKO!!!! Hún var dæmd sek!!!!! Vissi það! núna kemur "To Be Continued"!!!!

Talandi um þætti á Skjá einum, hvað er málið með CSI Miami? CSI Las Vegas var skemmtilegt enda hét það bara CSI og það voru góðir leikarar og "skemmtilegir" glæpir etc. David Caruso (Horatio Caine) er bara mesti ofleikarinn í sögunni og þetta segi ég þó ég hafi séð þó nokkrar Jim Carrey myndir:) og Emily Procter (Calleigh Duquesne) var fín þegar hún var í West Wing en þarna er hún bara kvartliting frá því að vera redneck... hræðilegt bara hræðilegt en samt horfi ég stundum á þetta - hvað segir það um mig? að ég hafi þekkinguna til að dæma?:) en ég er ekki ein um að vera ósammála þessum þáttum - að vísu hef ég ekki séð þáttinn sem um ræðir hérna en ég er líka nokkuð viss um að mig langar ekkert til að sjá hann:( þetta er bara týpískt fyrir þess seríu, þeir hugsa ekkert til enda! kannski var það eins með Las Vegas en þar virkuðu karakterarnir að minnsta kosti:) vonandi byrja þeir aftur....

ok, verð að bæta inn dóti líka OG fara snemma að sofa... það á að vera ólöglegt að mæta fyrir sjö í vinnuna á mánudagsmorgnum!!!

er ég ennþá með íslenska stafi? verð ég að fara að böggast í templeitinu eins og nokkur blogg sem ég hef verið að skoða... þetta hefur maður uppúr því að nenna ekki á netið í nokkra daga... maður dregst aftur úr:)

mánudagur, júní 23, 2003

Ég var að pæla, þessi auglýsing fyrir Veet Aqua eða hvað sem það heitir virkar ekki! Það eru þessar stelpur að pakka fyrir safaríferð, ein stoppar aðra þegar hún ætlar að pakka rakvél og bendir henni á Veet Aqua, þarf bara að bæta heitu vatni og tilbúið eftir þrjár mínútur. Það situr hópur af stelpum í bíl að keyra um Afríku eða á að vera Afríka því þær eru í réttum "búningum" fyrir það og stelpan vantrúaða segir: þrjár vikur án raksturs!!! ok. Þetta virkar ábyggilega á fæturnar en þær voru ekki með neinar rakvélar og hljóta að hafa verið orðnar að górillum undir höndunum er það ekki?:)

Eitt það skemmtilegasta sem hægt er að lesa á netinu eru dagbækur Lögreglunnar:) stíllinn á þessum færslum er stundum alger snilld:) af einhverjum ástæðum eru akureyrísku löggurnar oft fyndnastar, þetta er allt þaðan:

Dagbók helgina 20.-23. júlí 2003
Um helgina urðu 11 umferðaróhöpp, öll slysalaus og flest smávægileg. Síðdegis á sunnudag varð allharður árekstur á þjóðveginum með þeim hætti að bifreið nam staðar vegna umferðar á móti en ökumaður hennar hugðist beygja til vinstri heim að bóndabæ. Ökumaður sem á eftir kom tókst að nema staðar en sá sem kom þar á eftir tókst það ekki.

Dagbók helgina 13.-15. júní 2003 - Mjög erfið helgi greinilega:)
Talsvert var að gera hjá lögreglunni um helgina enda mikið um að vera eins og venja er helgina fyrir 17. júní. ... Eins og ævinlega þegar margir koma saman kemur í ljós að misjafn sauður eru í mörgu fé og sannaðist það um helgina. Þurfti lögreglan að hafa talsverð afskipti af fólki vegna ölvunar í miðbænum og á tjaldstæðunum við Þórunnarstræti. Verður það ekki liðið að nokkrir fylliraftar og knæpudólgar spilli fyrir fólki sem hér vill eiga ánægjulegar stundir og gista tjaldsvæðin í bænum
...
Á laugardag var tilkynnt um að sprautað hefði verið úr duftslökkvitæki yfir bifreið við fjölbýlishús í bænum. Maður sem þar var gestkomandi viðurkenndi verknaðinn en kunni enga skýringu á gerðum sínum.
...
Sömu nótt var tilkynnt um mann sem dottið hefði á hjóli og fengið skurð á höfði móts við verslunina Hagkaup.. Reyndist þetta vera sjómaður á leið til skips heldur hífaður. Hafði hann fengið sér hjól til reiðar en ástand hans þannig að hann datt af hjólinu.

Á níunda tímanum á sunnudagsmorgni varð það óhapp að stúlka, sem ekki hefur öðlast ökuréttindi, hugðist gangasetja bíl. Vildi þá ekki betur til en svo að bifreiðin, sem var í gír, fór í gang og lagði af stað og yfir tjald sem var framan við bifreiðina. Í tjaldinu var par og vöru þau föst undir bifeiðinni er að var komið. Náðu lögreglumenn að lyfta framenda bifeiðarinnar þannig að hægt var að draga fólkið undan henni. Voru þau bæði flutt á sjúkrahús en munu sem betur fer ekki hafa slasast alvarlega.

Á sunnudagskvöld tilkynnti vegafarandi um bifreið sem æki í ljósum lögum (þetta stendur í alvörunni! með logum skal land byggja) vestur Víkurskarð áleiðis til Akureyrar. Tilkynnti vegfarandinn þetta til Neyðarlínunnar og reyndi í leiðinni að vekja athygli ökumanns á ástandinu. Þegar það loksins tókst kom í ljós að kviknað hafði í bifreiðinni innan við vinstra afturbretti, líklega út frá rafmagni. Tókst að slökkva eldinn en ökumaður bifreiðarinnar taldi að reykurinn kæmi frá útblástursröri bifreiðarinnar og væri því af eðlilegum ástæðum.

Laust eftir miðnætti á mánudag batt lögreglan enda á þrifabað tveggja ungmenna í gosbrunni niður í bæ. Voru þeir þar á nærbrókum einum fata og undu hag sínum vel. Slík ósiðsemi líðst að sjálfsögðu ekki á almannafæri og lauk baðinu á lögreglustöðinni.

Dagbók helgina 30. maí til 2. júní 2003
Laust eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags var maður á gangi í Hafnarstræti ásamt nokkrum kunningjum sínum. Bar þá til að á vegi hans varð bifreið sem lagt var við götuna. Í stað þess að leggja lykkju á leið sína fram hjá bifreiðinni eins og gangandi vegfarendum ber hélt maðurinn striki sínu og gekk yfir bifreiðina. Dældaðist þak bifreiðarinnar undan þunga mannsins og kom þá í ljós að valt er á toppnum og missti maðurinn fótanna, féll og lenti við það á annarri bifreið og dældaði afturbretti hennar. Sannaðist nú hið fornkveðna að betri er krókur en kelda og situr maðurinn nú uppi með tjónið á bifreiðunum sem hann verður að bæta.
...
Á sunnudagskvöldið var tilkynnt um pilta sem væru að gera það að leik sínum að eyðileggja sláttuvél á svæðinu sunnan við Norðurmjólk. Þegar lögreglan kom á staðinn var þar Lawnboy sláttuvél í henglum en gerendur farnir af staðnum. Eru upplýsingar um skemmdarvargana vel þegnar.

Dagbók helgina 16. til 19. maí 2003
Næturlíf helgarinnar var með hefðbundnu sniði smá ryskingar hér og þar en pústrar ekki stærri en svo að menn sleikja sár sín án frekari eftirmála.
...
Aðfaranótt sunnudagsins varð umferðaróhapp á Þórunnarstræti. Hafði ökumaður verið að reyna að forðast að aka yfir kött sem hljóp í veg fyrir bifreiðina. Tókst ekki betur til en svo að ökumaður misst stjórn á bifreiðinni sem lenti upp á umferðareyju og umferðarskylti og varð óökuhæf eftir. Það er af kettinum að segja að hann hélt veiðiferð sinni áfram eins og ekkert hefði í skorist.

Dagbók vikuna 12. til 16. maí 2003
Á mánudagseftirmiðdag varð það óhapp er maður var að taka bensín á bensínstöð að hann gleymdi að aftengja slönguna frá bifreiðinni. Ók hann af stað með þeim afleiðingum að slangan slitnaði og nokkrar skemmdir urðu á bifreiðinni.
...
Á fimmtudagskvöld var tilkynnt um pilta sem farið hefðu bakdyramegin inn á veitingastað í miðbænum og stolið þaðan áfengi. Voru þeir gómaðir áður en þeir náðu að drekka sönnunargögnin og færðir á lögreglustöðina.


Dagbók helgina 9. til 11. maí 2003
Skömmu eftir miðnætti aðfaranótt laugardagsins stöðvaði lögreglan för bifreiðar með eftirvagn í miðbænum. Var fiskikar með heitu vatni á vagninum og í því þrír menn að baða sig í mestu makindum. Var ökumanni bent á að slíkur farþegaflutningur stangaðist á við umferðarlög auk þess sem þrifabað með þessum hætti bryti í bága við almennt velsæmi.

Dagbók vikuna 5. til 9. maí 2003
Vikan hefur verið óvenju róleg sem þýðir með öðrum orðum að lítið hefur verið um afbrot, slys og óáran af ýmsu tagi sem oft gerir lögreglustarfið erilsamt.
...
Flestir hafa nú tekið fram reiðhjólin og hefur nokkuð borið á því að ófrómir hafi fengið sér hjól til reiðar án vitundar og samþykkis eiganda. Er rétt að brýna fyrir eigendum reiðhjóla að hafa hjólin ávallt læst þegar þau eru ekki í notkun.

Dagbók vikuna 28.apríl til 5 maíl 2003
Aðfaranótt föstudagsins var tilkynnt um innbrot í Veganesti. Vegfarandi hafði orðið var við grunsamlegar mannaferðir og gat gefið greinargóða lýsingu á viðkomandi. Eftir nokkra leit fannst maður sem svarið til lýsingarinnar þar sem hann lá inn í garði leikskóla í næsta nágrenni og í kring um hann þýfi úr versluninni og nauðsynleg áhöld til innbrots. Telst málið upplýst.


Alger snilld:)

laugardagur, júní 21, 2003

og það er sól!!! OG ég er í fríi!!!! það hlýtur að vera blátt tungl í kvöld:)

21. júní er mjög merkilegur dagur á hverju ári vegna þess að:
- SARA AFMÆLI:) Innilega til hamingju með daginn litla stelpa:)
- það eru sumarsólstöður og verandi heiðin fíla ég þær í ræmur þó að ég geri aldrei neitt brjálæðislega merkilegt, velt mér ekki nakin í dögginni á Jónsmessu heldur, ég bara fíla sólstöðurnar, einhver svona Stonehenge fílingur við það eða eitthvað, brings out the naked-dancing-in-the-moon-person sem er í okkur öllum.... eða ekki auðvitað:) ég held að maður fái ekki meira innsæi við það, ég held að ég muni ekki fá sterkari tengsl við minn innri mann/barn (eftir því hvaða bók þú ert að lesa):) við að dansa nakin við fullt tungl... satt að segja held ég að ég myndi bara fá kvef:) now isn't that romantic and spiritual and in touch with nature, yourself and the universe?:)

og í dag eru líka rosalega margir að útskrifast úr háskólanum eins og til dæmis Bryndís:) hún bauð mér og öllum sem lesa bloggið hennar í veisluna í kvöld (ég fékk samt líka sms ligga ligga lái) og hamingjuóskir með daginn og áfangann til hennar:)
Íris var líka að bjóða mér með á magadanskeppni á Hótel Íslandi... held ég:) ég ætlaði að vinna þannig að ég slyppi við að vakna snemma á morgun en ég er að hugsa um að láta mig bara hafa það og horfa á þessar stelpur dilla mjöðmunum og spenna kviðvöðvanna áður en ég fer í útskriftarveisluna? MIKLU skemmtilegra að gera það á laugardagskvöldi en að skúra einhvern veitingastað út í rassgati:)

hvað ég þoli ekki að skúra!!!! samt held ég að "umönnun" sé verra starf... með fullri virðingu fyrir öllum sem vinna við það!! ég held bara að ég myndi ekki geta það:) það er gaman að vinna í fiskbúð, oftast... ég veit ekki undir hvaða steini sumt fólk býr!? í gær lokuðum við klukkan sex eins og venjulega á föstudögum og vegna þess að ég var þjónn á milli þess sem ég var að þrífa búðina með yfirmanninum vorum við soldið sein í því (alltaf að skipta um vinnuföt þegar ég labbaði milli herbergja og þannig, gengur ekki að vera í slorgallanum þegar maður er að mæla við víni og aðalréttum:)). Það kom kona inn klukkan kortér í sjö þegar ég var búin að ganga frá öllum réttunum og það var ekkert eftir í fiskborðinu nema ísinn... hún labbar inn í búðina, virðist ekki taka eftir því að það er ALLT tómt, og segir: "áttu ekkert til að grilla?" sá hún ekki að það var ekki einu sinni til neitt til að sjóða? ofaní köttinn?:) viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér og þannig.... svo að ég segi: "jú, ég á lax og lúðu ef þú vilt" - "áttu ekkert tilbúið á spjóti?" - "errrrr, jú, ég á þrjá pinna en ég er búin að pakka þeim...." - "er það nóg fyrir þrjá fullorðna og þrjú börn?"!!!!! .... ok, til að þrjú spjót væru nóg fyrir sex í aðalrétt yrðu þau að vera á stærð við baguette.... þessi voru það ekki, greinilega, þó að ég hafi bara sýnt henni pakkann.... "varla" segi ég. "Ég ætla samt að fá þau og áttu ekki eitthvað sem ég get grillað með því?" - "auðvitað (fíblið þitt!!!!), ég á lax (inní kæli, undir plasti, neðst í bakkanum, undir öðrum), augnablik (ég verð enga stund að ná í eitthvað beitt sem meiðir!!!)" ég var ekkert að flýta mér að grafa eftir fisknum.... viðskiptavinurinn á skilið að fá þjónustu en fyrr skal ég dauð liggja en að einhver kelling fái skjóta afgreiðlsu 45 mínútum eftir að við lokum.... þegar ég kem til baka með laxinn segir hún: " rosalega er tómt borðið hjá ykkur" duuhhh, hún hafði að vísu fengið nokkrar mínútur til að melta það að það var EKKERT í borðinu "já, við lokum klukkan sex" - "en klukkan er kortér í sjö?" - "errrr, já, það tekur auðvitað tíma að ganga frá og þannig" - "en ég heppin!"!!!!! - hún var það, það munaði engu að ég hefði "misst" hnífinn yfir afgreiðsluborðið samt er ég rólyndismanneskja - held ég:)

Anívei, lots to do, frídagarnir eru stuttir og ef maður drífur sig ekki af stað klárast þeir á meðan maður er að skipuleggja þá:)

miðvikudagur, júní 18, 2003

Þetta er alger snilld:) niðurteljarinn sko:) ég ælta að setja fleiri linka inn seinna og endilega komið með uppástungur:)... afmælisdagarnir ykkar til dæmis því ég man þá svo rosalega illa;)

Bíllinn minn er kominn í lag:)!!! Jonni er alger snillingur!!! og ég lærði soldið líka af þessu og fékk að skrúfa ljósin aftur á og ég hirti stykkið sem kviknaði í!!!!! Þess vegna virkuðu ljósin ekki að aftan... ég hefði getað verið að keyra í logandi bíl!!! ég fann lyktina .... en ég bý við hliðina á Eldsmiðjunni það er orðið að vana að leita ekki að því sem er kviknað í vegna þess að "það er verið að baka pizzu" og hugsaði ekkert meira um það:) verð að af-skilyrða mig einhvern veginn... en þá verð ég aftur eins og ég var þegar ég flutti hingað "hvar er eldurinn???" ... og "einhver er að koma!!!" í hver sinn sem bíll keyrði framhjá - svona er að flytja úr úthverfi í miðbæinn... það koma allir labbandi sem koma í heimsókn - ekki fræðilegur að finna bílastæði:)

Ætlaði að skrifa alveg fullt en ég lofaði sjálfri mér (og mömmu) að ég æltaði snemma að sofa í kvöld:)

hmmmm veit ekki alveg:)... kannski kominn tími til að fara að sofa?:)
Get ekki sleppt þessu samt:)
Hrein snilld:) varð að bæta þessu við:)
Gleðilega þjóðhátíð rúsínurnar mínar!!!

Þetta er soldið kúl!! ef þið klikkið á þennan link sjáið þið hversu langt er í daginn sem ég fer til Færeyja!! Ég veit ekki alveg klukkan hvað vélin fer þannig að ég er bara að miða við hádegi þennan dag:)

Það er svona langt þangað til ég á afmæli:) aftur miðað við hádegi og svona langt þangað til ég hætti í vinnunni, hérna miða ég við klukkan átta um kvöld:)

Ég hef ekki enn fundið countdown-dæmi til að setja á síðuna en ég hef ekki gefist upp við að leita:) nenni því bara ekki kvöld þannig að þessi linkar verða að duga... ef þeir virka eitthvað lengur en einn eða tvo daga:) en ef einhver veit um svoleiðis má alveg láta mig vita... láta okkur Grétu vita sem sagt:) sjáum til ... og góða nótt:)

laugardagur, júní 14, 2003

Fáránlega langur vinnudagur í dag! en í lagi vegna þess að það ringdi mest allan daginn og ég var guðslifandi fegin að vera í innivinnu;) vissi að ég myndi skipta um skoðun áður en sumarið væri liðið:)

Annars ætla ég að setja upp svona könnun hérna til að fólk geti tekið þátt í ákvarðanatökunum mínum eins og Gréta Snillingur er með á sinni síðu:) og ef þú ert að lesa þetta elsku Gréta mín þá muntu fá bréf eins fljótt og póstur sem er póstlagður um helgina kemst í hitann í Grikklandi!!!!!

Klukkan er tvö um nótt (ég nenni ekki að pæla í þessari tímasetningu neðst á færslunni minni...) og ég ætla bara að setja inn það sem ég gleymdi að setja inn í gær... bróðir minn var hérna þegar hann sendi mér póstkortið:) Svo innilega ekkert merkileg heimasíða miðað við lýsingarnar á herberginu, umhverfinu etc. en... ákvað að setja hann inn samt fyrst ég var byrjuð:)

Kominn tími til að fara uppí rúm og kúra með kettinum... eftir að ég fer í sturtu! verst við að vinna í fiskbúð er að það er fiskilykt af manni þegar maður kemur heim - merkilegt!! en kötturinn lætur mig ekki í friði og elskar mig miklu meira (jamms, kettir eru shallow!) en þegar það er einhver önnur lykt af mér... hann myndi að vísu elska mig jafnmikið ef ég kæmi heim angandi af pizzasósu, það er uppáhaldið hans:) hann getur hvorki látið hana né pepperóníið í friði ef ég er með pizzu og svo sefur hann á kassanum þangað til að ég hendi honum:) - kassanum ekki kettinum sem sagt - það er ekki illa þrifið heima hjá mér! þetta er rúm kattarins!!!

... rykið hlífir húsgögnunum líka ...

Oyasuminasai krakkar mínir:)

fimmtudagur, júní 12, 2003

ok... þetta virkaði.... bara soldið seinna en ég hélt - þurfti að tvípublisha... stundum skil ég ekki tölvur;)
djö virkaði ekki! kannski eins gott? verulega soppy mynd sem er ekki ég! group hug???!!! svoleiðis fær maður kvef!!!!:) hehehe
Góðan og blessaðan:) mamma mín á afmæli í dag þannig að ég var að koma heim frá því að hafa farið út að borða með foreldrunum á Tilverunni í Hafnarfirði... ég veit að þetta er ekki réttur linkur ;) hehehehe mér fannst þetta bara fyndið.... hmmmm

Já, hvað gefur manni mömmu sinni í afmælisgjöf? ég var í mestu vandræðum þangað til að ég fann hina fullkomnu gjöf! auðvitað virkar þetta ekki á allar mæður því hér á landi eru flestar mæður íslenskar, mín er skosk þannig að hún skilur ensku fullkomlega... skiljanlega:) Ég gaf henni "round TUIT" - hringlótt blað með stöfunum T-U-I-T - því hún segir soldið oft: "I was going to do this/that/the next thing but I didn't get a round to it" so now she got one! hehehehe


OK, mér fannst þetta ógeðslega fyndið og flissaði eins og smástelpa í sturtunni (þar sem mér datt þetta í hug) og allan tímann á meðan ég var að búa það til :) - henni fannst þetta líka rosalega fyndið... eftir að ég hafði útskýrt fyrir henni hvað þetta væri sem sagt :)

Ég fékk póstkort frá litla bróður mínum áðan!!! Hann hefur lofað að senda mér svoleiðis í mörg ár og LOKSINS kom að því!!! Batnandi fólki er best að lifa er það ekki?:) hann hringdi líka heim í morgun, 46°C!!!! en hann segir að það sé ekki svo slæmt? og hann hefur eignast vin þarna úti - einhver Sjefferhundur sem býr í sama húsi og þau :) þar sem lillibó er margfrægur smyglari (en er alltaf nappaður!) reynir hann kannski að taka hann með sér heim?

talaði við vin bróður míns áðan um hið leyndardómsfulla klikk í bílnum... hann var í baði... hmmm bróðir minn fer til útlanda og ég tala við vini hans í baði? það verður unnið í þessu um helgina og ég verð að finna eitthvað sem tímakaup sem virkar ekki eins og tímakaup...??? btw þá á ég svona bíl

minn er að vísu svartur með húsi og 1989 árgerð - geðveikt flottur!

Anívei, ég tók svona próf áðan og þetta er ég.... ?


group hug!


What Smiley Are You?
brought to you by Quizilla

veit ekki alveg hvort ég sé sammála þessu?

miðvikudagur, júní 11, 2003

Búin að uppdeita línkana mína... hef ætlað að gera það solið lengi... ábyggilega búin að gleyma að setja eitthvað blogg inn sem ég var búin að fá leyfi fyrir að linka á? endilega láttu mig vita ef þú ert sár yfir að vera ekki með eða eitthvað... ok

Guffi átti afmæli í gær:) Við Íris mættum heim til hans með pakka, kassa fullan af vatnsblöðrum:) Held barasta að hann hafi verið sáttur við gjöfina... vonandi notar hann hana samt ekki alla sjálfur????

Bíllinn minn er í fokki... ekki bíllinn sjálfur heldur ljósin að aftan - þau virka ekki en enginn veit afhverju... búin að segja löggunni að öryggið hafi farið en það er ekki alveg satt sem sagt, ég hélt það og ég var ekki einu sinni ein um það! svo var hópur af bílaáhugamönnum að vesenast í þrjá tíma með mér og fundu enga ástæðu fyrir þessu... prins póló og kók er hætt að virka sem tímakaup (ég mæti alltaf með veitingar á verkstæðið því það er lítið gagn af mér til annars ;) ) bráðum þarf ég að fara að mæta með bjórkassa, grill og pylsur?

Pabbi segir stundum sögu af manni sem vann með honum þegar hann var handlangari hjá múrara. Þessi maður var alltaf með danska bók sem heitir "Nödekrakkeren" eða eitthvað - heilabrotabók - las eina spurningu eða þraut og vann á meðan hann leysti hana. Þessi maður var víst rosalega klár - skil samt ekki alveg afhverju hann vann við það að moka sandi í steypuhrærivél alla ævi - en hann var svona klár vegna þess að hann hugsaði svo mikið þegar hann vann ... þegar ég er að vinna er eins og heilinn á mér sé á ripít, ein setning úr einhverju ömurlegu lagi sem ég man ekki í heild, aftur og aftur, gameover lagið úr spilakössum, aftur og aftur, eða fimmaurabrandari, aftur og aftur - það er beisikallí ekkert að gerast... held ég? það getur auðvitað verið að eftir 12 eða 13 tíma vinnu sé ég búin að gleyma allri snilldinni sem mér datt í hug um daginn? hvað sem því líður þá er ég alltaf tóm í hausnum og andlaus á kvöldin þegar ég á að vera að gera eitthvað skemmtilegt eða sýna snilli mína á blogginu:) kannski ætti ég að fara að skrifa allt niður? hehehe held ég sleppi því:) í gær var ég meira að segja of þreytt til að fara niðrí bæ og hössla dáta - og ég kalla mig íslenska stelpu! :) hehehehe

mánudagur, júní 09, 2003

jújú - þá er maður komin aftur á netið!!

varð að taka það úr sambandi hérna um daginn vegna þess að ég hafði engan tíma fyrir það en það kom samt ekki í veg fyrir að ég tengdist því og vafraði um heillengi... engin sjálfstjórn sem sagt þannig að ég varð að taka módemið úr sambandi og fela það -fyrir sjálfri mér!!! sumt fólk á ekki að fá að ganga sjálfala er það nokkuð?:)

ég hef ekki svo mikinn tíma í þetta núna heldur, þó að ég hafi klárað verkefnið sem ég var að vinna að áðan, ég er alltaf að ýta öllu á undan mér þangað ég neyðist til að vaka heilu nætunar til að klára það sem verður að gera... eins og til dæmis afmælið mitt... ég er með stórkostleg plön fyrir það þetta sumar (ég ætlaði líka að vera grand á því í fyrra á kvartaldarafmælinu en...) en ég sé samt fram á að vera ósofin og rugluð í veislunni sjálfri því ég hef þurft að klára allt á síðustu stundu:) EN ég er búin að segja upp í vinnunni... rosalega gott en samt solið hræðilegt að sjá fram á að vera bara í einni vinnu næsta vetur, einn tíma á dag - fíla mig eins og ég muni verða atvinnulaus;) hehehehe síðasti vinnudagurinn verður að öllum líkindum föstudagurinn 20. ágúst, viku fyrir afmælið mitt þannig að þetta ætti að reddast:)

Gunnar og Debby og Stanko og Laufey eru í Portoros (veit ekki alveg hvernig þetta er skrifað....?) Júgóslavíu þannig að "þegar" þau lesa þetta: Vonandi hafið þið það sem allra best!!! og ég býst við myndum! til hvers eruð þið með Matrix síma ef maður fær engar myndir sendar???


.... ok, netið er komið í samband en núna verð ég að fara að skipta um öryggi í bílnum mínum - kannski þvo hann líka?:) svo að löggan láti mig í friði... afhverju stoppar löggan mann aldrei þegar allt er í lagi með bílinn og maður er að keyra eins og maður! þá er þeim alveg sama!!!