Morgunblaðið 3. febrúar 1977
Rannsókn Geirfinnsmálsins er lokið:
Þrír menn játa að hafa ráðið Geirfinni bana
það er nú gott, eins og Ólafur Jóhannessson dómsmálaráðherra sagði: "martröð er létt af þjóðinni" svo bætti hann við: "það hefði verið óskemmtilegt, ef málið hefði ekki upplýstst. Þá hefðu að minnsta kosti fjórir menn og kannski fleiri verið tortryggðir allt sitt líf, legið undir grun. Það er ljótur leikur."
þriðjudagur, ágúst 31, 2004
mánudagur, ágúst 30, 2004
óboj óboj... ég er soldið fegin að mér var ekki boðið í þetta jólaboð:) ég hefði ábyggilega eipað ef ég hefði fattað seint að ekki "öllum" manninum var eins vel pakkað inn - og ef ég þekki mig rétt hefði ábyggilega fengið mér að smakka af "borðinu";) af einhverjum ástæðum fann ég þessa síðu þegar ég var að leita að upplýsingum um lotukerfið... fattaði að ég veit ekki neitt um hvernig þetta kerfi virkar, ég kann fyrstu efnin utan að (H-He-Li-Be-B-C-N-O-F-Ne-Na-Mg-Al-Si-P-S-Cl-Ar-K eða eins og ég lagði þetta á minni í efnafræði á sínum tíma Háhelíbebbknoffnenaemmgéalsipsclark) en ég veit ekki afhverju þau eru í þessari röð - jú, eitthvað með massa eða eitthvað ... eða eindir (raf/nift/etc.) veit ekki... hvað gerist ef þeir finna eitthvað nýtt efni? það hlýtur að hafa gerst? er þetta júníversalt? getur verið að efni frá öðrum hnöttum passi í þetta kerfi líka eða bara þau sem finnast á jörðinni? er komin reynsla á þetta? hvað með efnin sem við höfum náð í á tunglinu? eru þau í þessu kerfi? fyrir hvað standa allar skammstafanirnar seinna í kerfinu og hvar finn ég það? ... ef einhver veit eitthvað af þessu býð ég í pizzu gegn upplýsingum:)... fann skemmtilega síðu að vísu, sem svarar spurningum sem ég kunni ekki að spyrja:) í hvert sinn sem þið ýtið á Refresh þá kemur ný staðreynd á skjáinn ... en ekkert um lotukerfið ... ennþá:) annars er ég að fara að setja aðra umferð af olíunni á tröppurnar mínar og klára heilasellurnar sem lifðu af í gær:)
já, meðan ég man, hver er maður í Bond á sunnudagskvöldum í vetur?:) það verður feitt horft á hann heima hjá mér og ég kann að poppa:)
... og einhver með einhverja hugmynd um hvað ég get gert við "baukinn á barnum"... vill einhver eiga hann?:)

Ég vil þakka öllum sem komu á föstudaginn kærlega fyrir komuna og ég vona að þið hafið öll skemmt ykkur vel:)
Var að koma úr vinnunni... get ekki sofnað vegna þess að ég var svo "sniðug" að leggja mig í dag áður en ég fór að vinna þó ég hafi ekki verið að gera neitt erfitt í gær... líkami minn er greinilega ekki vanur því að fá að sofa svona mikið:) er að horfa á lokahátíð Ólympíuleikanna og það er allt svo þrungið merkingu að þulurinn er ennþá að segja hvað dansinn á að þýða þegar sá næsti er byrjaður en núna heldur hann kjafti því það er halarófa af fólki að hlaupa með kúta í sumarfötum sem passa hvorki á einstaklingana né saman ... þau eiga ábyggilega að vera túristar? get ekki séð að þau séu að túlka einhverja goðsöguna með nútímadansi? túlkun hefur að vísu aldrei verið mín sterka hlið svo hver veit?:)
Ég olíubar nýju tröppurnar mínar í dag, fyrri umferðina, þannig að íbúðin mín ilmar af antík olíu og þó ég hafi skilið svalahurðina eftir opnar er ég soldið hrædd um að kötturinn hafi orðið fyrir heilaskaða? hann hagar sér einkennilegar en venjulega þannig að annað hvort hafa gufurnar þessi áhrifa á hann eða hann hefur komist í terpentínuna? hvernig veit ég ekki alveg því hann hefur margsannað að hann er ómögulegur þegar kemur að viðhaldi og heimilsstörfum... köttur sem nennir ekki að ganga frá mjólkinni eða kveikja/slökkva ljósin er ólíklegur til þess að opna plastflösku með barnalæsingu og fá sér sopa, en það er aldrei að vita? það er svo margt sem ég skil ekki varðandi ketti og dýr almennt... og fólk, ég skil ekki fólk og ég skil ekki golf og krikket og hvernig fólk getur drukkið Guinness og Campari:) en ég skil V-Tec (stendur aftaná sumum bílum) og ég skil hvernig 155 hestafla Alfa Romeo getur tapað í spyrnu á móti 150 hestafla Volkswagen Golf:) það er vegna þess að að Ítalir skrá hestöfl vélarinnar en Þjóðverjar skrá hestöflin útí hjólinn og það getur munað alveg 20 hestöflum:) skemmtilegar samræður yfir pizzu í gærkvöldi veittu mér aukna innsýn inní heim véla og bíla... alltaf gott að vita hvernig hlutirnir virka:)
ég þarf ekki að byrja í skólanum á morgun... hélt ég þyrfti þess en núna þegar ég var að tékka á stundatöflunni (til að vera 100% viss - Eydís og Hrönn sögðu að þetta byrjaði á miðvikudaginn, en þær voru fullar;)) þá byrjar ekkert fyrr en á miðvikudaginn og meira á mánudaginn næsta .... gaman að þessu:) bara vinna næstu tvo daga, svo vinna og skóli og vinna og heimalærdómur og ritgerðir ... djeveikt stuð! en ég ætla í haustfrí til útlanda, þarf bara að ákveða hvert ég fer - einhverjar uppástungur??
ætla að reyna að sofna núna,
góða nótt;)

þriðjudagur, ágúst 24, 2004
Ég er að reyna að finna email hjá öllum til að senda afmælisboð því það kostar fáránlega mikið að hringja í alla... það gengur nefnilega eiginlega ekki að segja bara:
hæþérerboiðíafmæliðmittáföstudaginnklukkantíuáannarrihæðveitingastaðarinsáhorninuáklapparstígoglaugavegiengarafmælisgjafirbarabaukurábarnumsemþú
ræðurhvortþúborgaríeðaekkihlakkatilaðsjáþigogmakaþinneðabestavinefþúerthrædd/urumaðþekkjaengannásvæðinuen
égætlaekkiaðhafaþettalengranúnaviðsjáumstbaraáföstudagskvöldiðklukkantíu
takkblessssssssss!!!!
... og anda:) ... það er enginn steingeit í mér, ég þekki stelpu sem er steingeit og hún er snillingur í að skipuleggja svona, vantar nokkur þannig gen í mig því ég á ábyggilega eftir að gleyma einhverjum:/ einhver sjálfboðaliði til að hlýða mér yfir gestalistann?;) það má líka hjálpa mér, ef þið hafið ekki fengið email sendið mér endilega bréf (linkurinn á mig er hægra megin) og ég skal staðfesta það við ykkur að ykkur er boðið.... anívei:)
síðasta vaktin mín á kaffihúsinu var á sunnudaginn og ég eyddi deginum í að henda fólki sem var enn að djamma eftir Menningarnótt út .... ótrúlegt úthald hjá sumum:) svo var ein stelpa sem stóð fyrir utan og bauð sig til sölu, það kom fólk inn og sagði okkur frá henni en ég verð að segja að ég trúði þeim ekki fyrr en ég fór út og hlustaði, jú, hún var til sölu, ekki dýrt, barasta frekar ódýrt og ef þú vildir gastu fengið sýnishorn af því sem stóð til boða... ég hringdi á lögguna... þegar ég var nýbúin að skella á og þeir ætluðu að tékka á þessu (hver getur staðist svona kostaboð... hmmmm) kom hún inn og vildi kaupa kakó, hún var "sko að vinna" .... okey:) verð að segja að ég átti bágt með mig en ég gat ekki afgreitt hana, það var verulega vond lykt af henni og hún var alls ekki edrú - þegar fólk kemur inn sem er búið að fá nóg að mínu mati nýti ég mér stundum lögin sem segja að það megi ekki selja ölvuðum áfengi því það vita ekki allir hvenær þeir eiga að hætta.... hún fór út og við loftuðum út
góðar stundir:)

laugardagur, ágúst 21, 2004
Búin að panta stað fyrir afmælið:)
Hátíðin verður haldin næsta föstudag klukkan tíu á stað niður í bæ - veit ekki alveg hvort ég eigi að þora að opinbera staðinn á netinu þar sem þetta er fremur opin vettvangur - en það eru samt allir velkomnir;) ef þig langar til að koma en heldur að þú munir ekki þekkja neinn þá máttu koma með einhvern með þér:) hugsa málið, sendi ábyggilega bara email, sms og læt það berast ef það er í lagi? ..... en næsta föstudag, 27. ágúst, klukkan tíu eigið þið að mæta og þeir sem koma fyrstir fá ókeypis bjór!!!
Ég vil ekki fá neinar afmælisgjafir en það verður baukur við barinn sem þið megið láta klink í því það er ekki alveg ókeypis að leigja stað með ókeypis áfengi.... ég ælta líka að reyna að redda einhverju tilboði sem verður nánar auglýst síðar þegar Menningarnætur meihamið er búið og veitingastaðir og rekstaraðilar þeirra eru komnir aftur niður á jörðina ... sem minnir mig á það að ég verð að fara að koma mér:)

föstudagur, ágúst 20, 2004
Var að koma úr vinnunni og er á leiðinni í vinnuna... vinn á morgun líka og hinn en bara til sex báða dagana... svo byrjar skólinn á mánudaginn - never a dull moment;)
planið er að halda upp á afmælið mitt næsta föstudag en ... ég er ekki búin að gera neitt í því:/ spurning um að gera það núna í staðinn fyrir að vesenast þetta?:) væri sniðugt er þaggi?
hver vill koma í afmælið mitt?:)

þriðjudagur, ágúst 10, 2004
ég þekki stelpu sem var að flytja til útlanda og hún hefur rosalega gaman að því að spila leiki á netinu þannig að þessi færsla er tileinkuð henni Erlu:) ég fíla líka netleiki þannig að ég er að surfa núna og finna nokkra því ég er búin að sjóða sjálfa mig í sólinni í dag ... bókstaflega og ég vil ekki vera úti lengur... þið sem fílið þennan hita getið leikið ykkur og slæpst í vetur:)
Barneignaleikurinn
Kastaðu peningi
Lærðu reikning
Ávanabindandi boltaleikur
Slæpingjaleikurinn
Shove it
Snákaleikur - skemmtilegur ef þú nennir að læra hvernig á að stjórna snáknum, þangað til er hann bara pirrandi:)
hversu mikill lygari ertu? frekar krappí próf en kúl síða þar sem þið getið meðal annars hlustað á frægar lygar:)
svo eru líka skemmtilegar síður um allt:)
Darwin verðlaunin
Hausar...
Hvernig á að tala ... eða ekki:)
Fyrir ykkur sem vinnið á skrifstofum
Hversu stórt er alnetið?
Algerlega tilgangslaus síða finnst mér:)
Strumparnir eru kommúnistar
White trash
og ég var svo fegin þegar ég las þetta eftir að hafa skoðað Bambi Killers heimasíðuna mér fannst ömurlegt að lesa um hvernig átti að kenna börnum að veiða - kannski hafa samt aðrir tekið þetta alvarlega?

mánudagur, ágúst 09, 2004
Ég auglýsi hér með eftir einstakling sem vill ættleiða um það bil fimm stórar kóngulær sem búa á svölunum mínum ... Fídel vill ekki fara út því hann labbar alltaf í vefina og veit ekki hvað er að snerta hann - kóngulóavefir og skíthræddir kettir eru ekki góð blanda;) hann sér kóngulærnar hins vegar ekki, held ég? veiðigenið er kannski bara dautt í honum? en ég sé þær og vil helst losna við þær... og nei, ég er ekki að fara út með sóp og sópa þær í burtu því þá fara þær í sópinn og hvað geri ég þá? næ í annan sóp? er ég þá ekki bara komin í vítahring áttfætla og hætti að geta sofið??? þær eru alveg ókeypis, fyrstur kemur fyrstur fær .... ég get reddað krukkum;)
föstudagur, ágúst 06, 2004
Ég var göbbuð! það voru tveir þjónar og kokkur (held ég) að fá sér drykk eftir vinnu hjá okkur áðan... þau voru búin að fá sér nokkra bjóra, hvítvínsglös og gos (kokkurinn var edrú) og stelpurnar voru greinilega farnar að finna vel á sér:) klukkan kortér í eitt kom önnur þeirra upp að barnum og spurði hvort við lokuðum eitt og þegar ég sagði já spurði hún hvort þau mættu sitja inni þangað til þau væru búin með glösin? ég leit á borðið, hún átti hálft bjórglas eftir og vinkona hennar átti þriðjung eftir af hvítvíninu sínu - gaurinn var búinn með gosið sitt - jú, sagði ég það er ekkert mál og fannst hún verulega tillitsöm að spyrja að þessu þangað til hún pantaði annan bjór, hvítvín og appelsín.... auðvitað gat ég ekki ekki selt henni þetta því það var kortér í að við lokuðum og hún var búin að spyrja - hún gabbaði mig!! hehehehe soldið gott trick samt;)
fimmtudagur, ágúst 05, 2004
freistingar eru til þess að falla fyrir þeim er þaggi?... sumar freistingar eru líka nauðsynlegar, að minnsta kosti það sem freistar einstaklingsins ef það er hlutur, ég er ekki að segja að súkkulaðikaka með rjóma sé nauðsynleg en það getur verið fræðilegur möguleiki að það sé skynsamlegt að fá sér svoleiðis? segjum að þú þjáist af ógurlegum kalkskorti þá er rjómi góð hugmynd, ef þú ert gísl hjá skæruliðum eða keppandi í Survivor þá getur tilhugsunin um súkkulaðiköku hjálpað þér að halda geðheilsunni (þó getur hún gert nær útaf við þá sem eru í kringum þig samanber súkkulaðidrauma Jerri í Survivor Ástralíu - a selfproclaimed "total Snickers whore") svo er löngum vitað að það er sama efni í súkkulaði og líkaminn myndar þegar þú ert ástfangin þannig að súkkulaðikaka getur hjálpað þér í gegnum erfiðar stundir þegar ástarmálin eru í deyfð... líter af vodka getur að vísu gert alveg sama gagn samanber Bridget Jones´s Diary bömmerinn daginn eftir er ábyggilega svipaður:)
ég var að falla fyrir freistingu, ég keypti mér soldið sem ég þurfti á að halda en ... var ekki endilega algerlega nauðsynlegt:) ég er með mótorhjól í láni og í hvert einasta skipti sem ég hef stigið á það hingað til hefur byrjað að rigna, hellidembur, svo lendi ég í polli og ég rennblotna... gallinn þornar á núll einni en ég enda alltaf daginn með skó í þurrki og þarf að vera með aukaskó og sokka með mér ef ég er að fara í vinnuna (og fara í blauta skó eftir vaktina:/) .... mig sem sagt vantaði almennileg mótorhjólastígvél, vatnsheld, upphá og þægileg og eftir að hafa hugsað þetta og velt þessu fyrir mér ákvað ég að láta verða af því að kaupa svoleiðis:) fimm mínútur í sex fór ég inn í búð sem selur sérstaklega flotta skó sem ég var búin að máta nokkrum sinnum og keypti mér par - ógisslega flottir!!
til hamingju með nýju skónna:)

miðvikudagur, ágúst 04, 2004
ég er að kaffihúsast þessa dagana... ég er ekki alveg viss um að mig myndi langa til að eiga kaffihús? kannski ef það væri bara með þremur borðum, ef viðskiptavinir sem mig langar til að eiga samskipti við væru þeir einu sem létu sjá sig og ef ég þyrfti ekki að vera með neinn mat:) ... ég held að ég sé ekki manneskjan sem á að leggja þetta fyrir mig en það er fínt að standa í þessu í þrjár vikur - og fara svo í skólann:) mig langar rosalega mikið í skólann aftur;)
ég sendi út sms um daginn um íbúð sem er laus strax og til leigu sem fyrst en ég var að gera það á meðan ég var að gera annað þannig að ég er ekki alveg með það á hreinu hver fékk skilaboð og hver ekki þannig að í staðinn fyrir að senda þetta út aftur ætla ég að auglýsa gullfallega íbúð við gömlu höfnina til leigu:) horn-nudd-baðkar, geðveikt útsýni og húsgögn fylgja með - aðeins smekklegt og gott fólk kemur til greina auðvitað:) ekki há leiga og húsaleigubætur þannig að ef þið eruð að leita eða þekkið einhvern sem á sér ekki samastað núna eða bráðum látið mig endilega vita;)

mánudagur, ágúst 02, 2004
sunnudagur, ágúst 01, 2004
Batman
það voru miklar pælingar í gangi í vinnunni í dag, hvaðan fékk Batman ofurkraftinn sinn til að mynda, Superman og Supergirl eru bæði geimverur, Spiderman var bitinn af kónguló en Batman... ég fór á netið og Batman er ekki með neina ofurkrafta, hann er ofurhetja en er venjulegur maður sem er ótrúlega klár:) hann og Sherlock Holmes væru verðugir andstæðingar ef annar þeirra væri vondur en þeir eru vinir samkvæmt fyrstu sögunum:) meðal þess sem Batman er með í gula tækjabeltinu sínu er fingrafarakit... hann er beisikallí svona ofur-Grisom úr CSI samkvæmt skilgreiningunni og álit mitt á Batman hefur stóraukist:)
He-Man
við vorum líka að pæla í He-man og kastalanum hans, mér fannst Castle Greyskull hljóma eins og kastalinn hans Skeletor, en kastalinn hans víst heitir Snake Mountain ... og ég finn ekki mynd af honum:) He-man heitir Prins Adam í alvörunni og er krónprins plánetunar Eterníu, sonur Randor konungs og Marlenu drottningar (hér eru þau ásamt Seiðkonunni og Orco). Hann fékk töfrasverð frá Seiðkonunni til að hjálpa honum verja leyndardóma Greyskull kastala fyrir hinum illa Skeletor ... en ég veit ekki hvort Greyskull kastali og kastalinn sem He-man býr í er einn og hinn sami... verð að leita betur .... ok, Konunglega höllin er í Eternos konungsríkinu og heitir Eternos, plánetan heitir Eternía, og hér getið þið séð nákvæmt kort af landsvæðinu:)
var að komast að því að She-Re: Princess of Power er spin-off leikfang og sería ekki hluti af upphaflega ævintýrinu (sem by the way varð til vegna þess að Conan The Barbarian leikföng þóttu ekki uppeldisfræðilega skynsamleg...) She-Ra er tvíburasystir Adams og heitir Adora þegar hún er ekki ofurhetja:) Prins Adam gaf henni The Sword of Protection (sverðið hans heitir The Sword of Power) og hún segir "For the Honor of Grayskull......I am She-ra" til að breytast, Adam segir "By the Power of Grayskull......I have the Power" til að breytast í He-man og "Let the Power return" til að verða eðlilegur aftur - það er ekki vitað hvernig She-Ra breytir sér til baka í Adoru...
ég man ekki sérlega mikið eftir þáttunum en við vorum alltaf í He-man, Gunnar átti kastalann og Doddi í Næsta húsi átti allt... mér fannst alltaf skemmtilegast að vera Orco:) Prins Adam á að vera 18 ára í fyrstu seríunni, ég man ekki eftir neinum 18 ára unglingi sem hljómaði svona og leit svona út.... ég er búin að læra heilan helling um He-man núna og ég mæli með því að surfið aðeins um og lesið ykkur til um ofurhetjur, ég held ég sleppi því jafnvel að fara á æfingu á morgun;)
ef ég færi á æfingu á morgun hins vegar gæti ég verið skrefi nær því að líta út eins og Catwoman... og hvað um hana? sumir segja að hún hafi ekki ofurkrafta nema næmari skilningarvit, heyrn og þannig, sumir segja að hún hafi verið myrt og komið aftur til að komast að því hver myrti hana en varð háð spennunni sem fylgdi því að slást við vonda kalla... eða að vera "vondur kall" sjálf ... í sjónvarpsþáttunum var hún oft skilin eftir í óvinnanlegum aðstæðum og Batman sagði þá við Robin: "þetta verður í lagi, hún kemur aftur - kettir eru með níu líf" ... miðað við allar sögurnar, þættina, myndirnar og leikkonurnar þá held ég að Catwoman hafi lifað oftar en níu sinnum:) ég er búin að lesa heilmikið um hana í kvöld og... fyrst var hún gimsteinaþjófur, svo milli 1940 og 54 var hún minnislaus glæpamaður fékk svo högg á höfuðið og mundi allt í einu að hún var flugfreyja sem lenti í flugslysi og fékk sjokk þegar hún fattaði hvað hún hafði verið að gera í nokkur ár, hún bætti ráð sitt og opnaði gæludýrabúð... á tímabili var ekki víst hvort hún væri köttur eða leðurblaka en það var ekkert á milli hennar og Batman í þessum heimi en í annarri vídd átti hún barn með honum, The Huntress, samanber Birds of Prey sem Skjár einn sýnir þessa dagana... eða sýndu þegar ég var lasin um daginn;) 1987 kom ný útgáfa eftir Frank Miller og þar átti Catwoman að hafa verið munaðarlaus og vændiskona áður en hún varð þjófur... og '92 túlkaði Michelle Pfeiffer hana sem ritara veggjalús sem er næstum drepin og fyllist sjálfstrausti til að verða allt sem hún getur verið (hljóma eins og auglýsing frá bandaríska hernum hérna:)) en öðlast ekki neina ofurkrafta frekar en Catwoman í myndasögunum sem verið er að framleiða í dag um hana. Þar er varð hún munaðarlaus 12 ára, mamma hennar framdi sjálfsmorð og alkahólískur pabbi hennar dó, bjó á götunni þar til hún ákveður að feta í fótspor Batmans, fer að stela frá öðrum glæpamönnum, verður rík og deitar Bruce Wayne um tíma (Bruce Wayne AKA Batman) ... í nýjustu myndinni er Halle Berry grafískur hönnuður sem fattar leyndarmál yfirmanns síns, er næstum drepin (af honum væntanlega... hef ekki séð myndina, ennþá;)) en í stað þess að deyja öðlast hún hraða, styrk og skynjun kattarins - verulega kúl, þess má geta að Halle Berry er með sykursýki og hálfheyrnalaus en miðað við það sem ég hef séð úr myndinni skemmir það ekkert fyrir;)
búin að læra nóg um ofurhetjur í kvöld ... mig á eftir að dreyma að ég sé að bjarga heiminum í nótt:)

fimmtudagur, júlí 29, 2004
Síðustu helgi fór ég í ferðalag út á land, kominn tími á nokkra daga útilegu til að "fíla grasið þar sem það grær" eins og Bubbi myndi segja. Bubbi var einmitt ferðafélagi minn ásamt fleirum þessa helgi því þetta var óvissuferði í tvennum skilningi, ég hafði ekki hugmynd um hvar ég ætlaði að gista á næturna svo tók ég með mér alla ómerktu diskana sem ég hef ætlað að hlusta á til að komast að því hvað er á þeim en hef aldrei fundið mér tíma til þess - sífelld óvissa, en alltaf verulega góð tónlist og góðir gististaðir;) ég skírði bílinn minn í ferðinni, kominn tími til að hann fengi alvöru nafn...
ég keyrði Kjöl og ætlaði að gista á Hveravöllum en þegar þangað var komið sá ég nokkur hundruð blá og grá tjöld sem einhver hafði tjaldað samkvæmt stöðlum bandaríska hersins um útlit grunnbúða landgönguliða. Þegar ég var komin inn á svæðið sá ég flokka af Þjóðverjum og Frökkum í mjög mismunandi ástandi sem áttu væntanlega að vera í þessum tjöldum en ég ákvað samt að ganga um svæðið og athuga hvort ég gæti ekki bara lagt soldið frá þeim en nei.... þarna var líka fimmtíu manna hópur úr Hafnarfirði, miðaldra fólk að drekka sig fullt, að losa fullar þvagblöðrur hér og þar, skemmta sér í lauginni og syngja, syngja, syngja - þetta var kór áhugamanna í kórferðalagi, sumt er ekki hægt að bjóða sjálfum sér þannig að ég hélt áfram:)
á Sauðárkrók er bar, hann heitir Bar-Inn, með bandstriki ekki klikka á því, en mér sýndist eiginlega allir stunda það að keyra bara í hringi, hring eftir hring með græjurnar í botni, verulega sveittir FM-hnakkar, sólgleraugu um miðja nótt og træbaltattú hvert sem litið var... þeir eru meira að segja með eigin heimasíðu:) fínn staður samt ábyggilega ef ég hefði gefið honum séns en ég nennti bara að vera eina nótt:)
fór á Grundarfjarðarhátíð á laugardagskvöldið - hitti Valgerði sem er nýflutt þangað og Pálínu, Eddu og Bryndísi (þú verður að fá þér síðu Bryndís;)) sem voru í dagsferð sem entist fram á nótt í bryggjuballsstuði og almennri gleði:) fyrir utan stelpurnar hitti ég fullt af fólki sem ég þekkti og er jafnvel að hugsa um að fara aftur að ári;) við sáum gamlan Willis í grasbúningi með skilti um að ganga ekki á grasinu:) hefði átt að taka myndavélina með mér - ég verð aldrei ljósmyndari, hafið þið ekki séð Supergirl? anívei... fór í Dritvík á leiðinni heim og komst að því að hún stóð engan vegin undir nafni miðað við hvað Íslendingar eru góðir í að skíra staði og bæi lýsandi nöfnum samanber Votamýri, Staðastaður, Hólahólar og Keisbakki (býst fastlega við að eitthvað keis búi á þeim bæ) svo ég nefni nokkra staði sem ég keyrði framhjá (keyrði líka framhjá skilti sem á stóð "2 Hundadalur" sem ég er ekki alveg að fatta... ég geri ráð fyrir að það búi aðeins tveir hundar í þessum dal??), ég var að tala um Dritvík... ekki neitt drit og varla nokkrir fuglar - verð samt að segja að ég fílaði víkina í ræmur, ótrúlega falleg fjara og er frekar fegin að það vantaði allt drit í hana:)
ég keyrði slatta í ferðinni, alveg alla leiðina... nenni ekki að setja alla ferðasöguna hingað inn þannig að þið verðið bara að hafa uppá mér og biðja mig um að segja ykkur frá;)
á meðan ég var í burtu gerðist margt í Reykjavík, langt síðan ég hef sett eitthvað inn af Lögguvefnum þannig að hérna kemur dagbókin síðan um helgina, soldið stytt:
Helstu verkefni LR helgina 23. - 25. júlí 2004
Um miðjan dag á föstudag var tilkynnt um innbrot í íbúð í Breiðholti. Þar hafði verið stolið DVD spilar, tölvu og þrem GSM símum. - afhverju voru ÞRÍR gemmsar í íbúðinni... hversu margir bjuggu þarna?
Um miðjan dag á laugardag tilkynnti kona um þjófnað, en hún var stödd í Sundhöllinni við Barónstíg. Konan fór frá búningsklefa til laugar en snéri við eftir um 10 mínútur. Þá kom í ljós að brotist hafði verið inn í búningsskáp konunnar og þaðan stolið þrem myndavélum og tveim greiðslukortum ásamt veski. - ÞRJÁR myndavélar, hvað er málið með að vera með of mikið af tækjum hjá sér? eins og Tracy Chapman myndi segja, two more than you need - hlustaði mikið á tónlist í ferðinni minni;)
Laust eftir miðnætti á laugardag var tilkynnt um að ökumaður væri hugsanlega ölvaður en hann var þá staddur í Hvalfjarðargöngum á leið í átt til Reykjavíkur. Á Esjumelum skammt norðan Mosfellsbæjar urðu lögreglumenn varir við bifreið mannsins og hugðust stöðva hana. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum og var honum þá veitt eftirför. Ók hann um nokkrar götur í Mosfellsbæ en var loks lokaður af í Hulduhlíð. Var hann ölvaður og mjög æstur. Var hann að lokinn blóðtöku færður í fangageymslu.
Nánast á sama tíma var bifreið ekið á vegg í Hverafold í Grafarvogi. Í ljós kom að ökumaður var mjög ölvaður og var hann eftir blóðtöku færður í fangageymslu. - mér líður ekki vel að vita af svona mönnum í umferðinni, pæliði í því, þeir nást ekki allir:/ horfa þeir aldrei á sjónvarpið? talandi um glæfraakstur, hafiði séð nýju herferðina frá Umferðastofu? með laginu eftir Vatnsenda Rósu? ... spúkkí
Á sunnudagsmorgunn þegar starfsmaður Bæjarins bestu var að taka til eftir nóttina, varð hann fyrir því að stóll sem hann hafði sett út fyrir á meðan hann gekk frá innan dyra, var stolið. Fátt fær nú að vera í friði. - heimur versnandi fer...
Góðar stundir

þriðjudagur, júlí 20, 2004
Pálína er komin með nýtt blogg og þar linkar hún meðal annars á Blóðflokkamataræðissíðu... Edda kíkti á sína útkomu og ég ákvað að gera það líka:) Það sem ég skil aldrei við svona er hvað má borða og hvað ekki þannig að ég ákvað að kíkja á matseðilinn sem hægt er að finna hérna, þetta ætti ég sem sagt að borða:
MATSEÐILL
Margir hafa kvartað yfir því að vita ekki hvað þeir eiga að borða eða hvernig þeir geta sett saman matinn ef þeir ætla að fylgja blóðflokkamataræðinu (og ég myndi falla undir svona einstakling)...
Dagur 1:
Morgunverður: Niðurskornir ávextir að eigin vali (skv. fæðulista), 1-2 tesk. hlynsíróp yfir.
Hádegisverður: Ristuð speltbrauðsneið með grillaðri kjúklingabringu, tómötum og salati. Ölkelduvatn (er þetta ekki venjulegt vatn? hvernig verð ég mér út um ölkelduvatn?).
Snarl milli mála: Eplasneiðar með möndlusmjöri (hvað er möndlusmjör? hakkaðar möndlur??).
Kvöldverður: Grillaður lax með pesto með basilíkum (heimalagað), grillaðar sætar kartöflur, romaine salat með salatsósu (væntanlega einhver sérstök salatsósa? eða bara hvað sem er?).
Dagur 2:
Morgunverður: Sneið af spírubrauði með sultu úr svörtum kirsuberjum, engiferte (ég er að hugsa um að sofa yfir mig þennan dag og missa af morgunmatnum).
Hádegisverður: Túnfisksalat á hrökkbrauði (ég geri ráð fyrir að þetta sé ekki hefðbundið túnfisksalat heldur eitthvað blóðflokkaspesiffik?), fenugreek-te heitt (hvers konar te er þetta? grískt?) eða með ísmolum.
Snarl milli mála: Ferskur ananas (jamms, alltaf með einn solleis í bakpokanum), greipaldinsafi og hreinn kristall (erum við að tala um gosdrykkinn Kristal? eða grjótið? - heimilsfangið er sko á Hellnum á Snæfellsnesi og emailið er gudrun@hellnar.is ... jamms, það er alveg hægt að misskilja er það ekki??).
Kvöldverður: Snöggsteiktar rækjur með grænmeti, rauðri papriku, spergilkáli, hvítlauk, lauk og tamari-sósu (hvers konar sósa er þetta? er hægt að kaupa hana? eða er hún heimatilbúin?). Sushi hrísgrjón, Engiferte með ísmolum. Gráfíkjukökur (held barasta að ég hafi aldrei séð gráfíkjukökur... eða eru þetta FigRolls eins og eru í öllum búðin... naaahhh too easy!).
Dagur 3:
Morgunverður: Eggjakaka úr einu eggi með rifnum gulrótum og kúrbít, glas af ananassafa, rósaberjate (rósaberjate ... enn ein te tegundin).
Hádegisverður: Laxasalat með majónesi og söxuðu fersku dilli á salatblaði, hrökkbrauð, fenugreek-te með ísmolum.
Snarl milli mála: Gulróta- og engifersafi (þetta þarf ég væntanlega að búa til sjálf... hvernig ættu hlutföllin í þessu að vera? ég þarf örugglega að kaupa bókina, ég sé það núna...).
Kvöldverður: Lifur með lauk, pílaff (pílaff, pílaff.... pílaff, hljómar eins og eitthvað sem fólk saumar á kjóla eða nærföt??) úr brúnum hrísgrjónum, blandað grænt salat.
Dagur 4:
Morgunverður: Soðin egg á ristuðu spírubrauði (meira spírubrauð... kannski er þetta til í bakaríum?), ½ greipaldin (endist hinn helmingurinn fram að næsta degi fjögur?), regnálmste (þessi te eru orðin frekar iffí...).
Hádegisverður: Ostborgari (hamborgarabrauð úr speltmjöli) m/geitaosti, blandað salat með tómötum.
Snarl milli mála: Pera, glas af sojamjólk (er soyamjólk seld í minni umbúðum en lítrum? ef ekki endist hún fram að næsta degi fjögur? þessi dagur verður dagur sóunar:/).
Kvöldverður: Grilluð lifur með lauk, gufusoðið spergilkál með ídýfusósu (Vogaídýfa??? væntanlega ekki? hvernig ídýfa á þetta að vera?), pílaff (pílaff, pílaff, pílaff, plíaff, plíaff, plaff, plaff ... segðu pílaff tíu sinnum hratt) úr brúnum hrísgrjónum.
Dagur 5:
Morgunverður: Speltflögur (speltflögur ... er það hráefnið sem speltbrauð er búið til úr? eða eru speltflögur búnar til úr sama "hveiti" og speltbrauð??) með rúsínum og sojamjólk, banani, engiferte.
Hádegisverður: Einföld fiskisúpa (ekki flókin... hvar eru mörkin, er einföld bara súpa með rækjum? hvenær verður hún flókin?), brauðbolla úr speltmjöli (væntanlega úr bakaríi??), kristall með ananassafa.
Snarl milli mála: 2 valhnetusmákökur (úr ráðlögðu mjöli - auðvitað!! hvað eiga þær að vera stórar? á stærð við tíkalla eða lófa eða eins og súkkulaðibitakökurnar í bakaríunum), piparmyntute (þetta te hef ég heyrt um:)).
Kvöldverður: Grilluð nautalendarsteik, núðlur (úr ráðlögðu mjöli), soðsteikt spínat (hvernig soðsteiki ég spínat? hvernig er nokkuð soðsteikt???) með hvítlauk.
Dagur 6:
Morgunverður: Banana- og hnetumuffins (ég hef séð bláberja og súkkulaði og double chocolate en ekki banana og hnetu?), piparmyntute (ég held ég fái mér bara te þennan morguninn).
Hádegisverður: Pinto-baunasúpa (hvernig eru Pinto baunir?), blandað grænt salat, sódavatn með sítrónusneið.
Snarl milli mála: Banana- og sojamjólkurþykkni (matvinnsluvél) (aftur spurning um hlutföll ... en ég ætla ekki að kaupa þessa bók!!).
Kvöldverður: Karríkrydduð lambakássa með mangó-chutney, basmati hrísgrjón, soðsteiktur blaðlaukur, fenugreek-te (þetta er svo sem í lagi kvöldmatur fyrir utan soðsteikinguna og teið...).
ég sé hvergi að ég megi drekka bara vatn, það verður að vera ölkelduvatn eða sódavatn... má ég drekka eins mikið vatn og ég vil eða bara með matnum eins og matseðillinn gefur til kynna ... og þá með kolsýru... það er ekki fræðilegur að ég gæti þetta, ég myndi deyja úr hungri.....
einn skemmtilegur að lokum, til að gleðja alla:
why are cowboyhats curled up at the sides?
so four cowboys can sit in a pick-up truck

fimmtudagur, júlí 08, 2004
það er föstudagur á morgun og í tilefni fimmtudagsins koma hérna nokkrir frá árinu 1950:
Herbergisþjónn: "Hringduð þjer bjöllunni, herra?"
Reiður gestur: "Nei, kirkjuklukkunum, Jeg hjelt þjer væruð dauður."
Mjög horaður maður mætti mjög feitum manni í anddyri.
"Eftir útliti yðar að dæma", sagði sá feiti, "mætti halda, að það hefði ríkt hungursneyð."
"Og eftir útliti yðar að dæma," sagði sá horaði, "mætti halda, að þjer hefðuðu orsakað hana."
Einfalt mál.
Hópur af ferðamönnum í Arizona mætti Indíána ríðandi á hesti. Kona gekk við hlið hans og kiknaði undan þungri byrði.
"Hvers vegna er ekki konan ríðandi?" spurði einn ferðamaðurinn.
"Hún hefir engan hest."
Gætið háttvísi.
Viðskiptavinur: "ÞJónn, þessi rjúpa er viðbjóðsleg."
Þjónn. "Uss, herra. Talið aldrei illa um hina dauðu."
13. ágúst 1950, blaðsíðu 10.
dadramdam!

sunnudagur, júlí 04, 2004
var að koma úr Tívólíinu:) rosalega gaman en ég mæli ekki með X-TREAM tækinu (sem Hannes neyddi mig til að prófa) ef ykkur þykir vænt um magann á ykkur:/ draugahúsið var hins vegar fínt, þið verið nett nojuð meina ég, sérstaklega ef þið farið með einhverjum í það sem er sífellt að bregða ykkur - endilega bjóðið Hannesi með ykkur;) við prófuðum skotbakka líka og ég vann tuskukött sem Fídel er ekki sáttur við... miðið á byssunum er eitthvað skakkt en það er skakkt í alveg hárrétta átt fyrir mig því yfirleitt hitti ég aldrei neitt þegar ég reyni að miða á eitthvað ákveðið:)
... sá líka gókartbraut þarna hjá Smáralindinni þegar við vorum alveg efst í Parísarhjólinu:) verð að prófa hana einhvern tímann - einhver maður í keppni?:)

laugardagur, júlí 03, 2004
Jæja Valgerður, það er kominn linkur á þig:) loksins:)
í gær var hið árlega gókart mót kaffihússins og ég vann gullmedalíu:) mætti með hana í vinnuna og allt saman... en ég vann að vísu ekki með hana því hún var alltaf fyrir þegar ég var að fara með súpur á borð og dæla bjórum og þannig en ég hengdi hana upp þegar ég kom heim og hún fer rosalega vel í stofunni hjá mér:) þetta var geðveik keppni, allir að fara yfirum af keppnisanda og allir ætluðu að vinna, bílar að snúast hægri vinstri (á þurri braut), ég lenti í árekstri við Böggles sem missti stjórn í beygju sem ég var á leiðinni í og ég gat ekki neitt gert nema beygja undan og skella á honum, ein fór í dekkjavegginn og braut stýrið sitt, einn fór á ágætum hraða í beygju og dekkið flaug undan bílnum, bíllinn í dekkin og ökumaðurinn út í móa... þetta var snilld!!! ef þið hafið ekkert að gera og eigið pening (þetta er dýrt...) þá mæli ég hiklaust með gókarti í Reykjanesbæ - þið fáið galla og hjálm og allt:)
Erla og Atli kíktu í heimsókn í vinnuna mína í gær:) takk fyrir komuna! Hannes kom líka en þá var of klikkað að gera til að segja meira en hæ... það var frekar mikið að gera í gær, allt kvöldið, engin lægð á meðan fólk borðar kvöldmat eins og stundum en líklega var það vegna þess að allir voru búnir að fá útborgað?
við fengum 13 manna steggjapartý frá Englandi í heimsókn, allir í Gull - The Viking Bear og refsiskot, einn gaur fékk sér kaffi og varð að taka refsiskot, annar fór tvisvar á klósettið á einum bjór og varð að taka refsiskot... þeir voru mjög fullir:) ég held ég hafi samt aldrei séð annan eins hópþrýsting... á sama tíma vorum við með fjögurra manna afmælisveislu sem söng og hafði miklu, miklu hærra en steggjapartýið - en það var allt í lagi vegna þess að þetta voru félagar mínir úr sigurliðinu í fótboltanum um daginn:)
fyrr um kvöldið kom Augun og sat í nokkra klukkutíma á borðinu sínu... við köllum hann Augun en mamma hans kallar hann ábyggilega eitthvað annað... þetta er útlendingur sem virðist ekki tala neitt ákveðið tungumál, allt sem hann segir er blanda af ensku, þýsku, frönsku, umli (aðallega) og bendingum... sem betur fer bendir hann vegna þess að annars væri ábyggilega verulega erfitt að afgreiða hann:) hann sest alltaf á sama borðið í horninu, pantar sér mismunandi rétti (sem er fremur óeðlilegt því yfirleitt pantar "svona fólk" sér alltaf það sama, eitthvað í comfort zoneinu sínu...) og situr svo í tvo til þrjá tíma og reynir að vera ósýnilegur. Honum tekst það næstum því en við tökum alltaf eftir augunum í honum, þess vegna köllum við hann Augun... verulega furðulegur gaur og ég er fegin að fá hann ekki heim til mín í sunnudagsmat!
búin að vera vakandi í meira en tvo tíma þó ég hafi ætlað að sofa út, einhvers staðar í hverfinu er verið að grafa í gegnum granít með ósmurðri gröfu... ætla að fara að gera eitthvað núna, innivinnu því veðrið er ... ógisslegt:(

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)