Þá er kominn október. Kannski er ein færsla í mánuði það sem koma skal, það er þó væntanlega betra en engin og bloggið lifir :)
Haustið virðist oft vera tími breytinga hjá mér og í ár er ég að breyta eldhúsinu ... setti upp hillur í elhúsinu með aðstoð góðs fólks og úr því að þær voru komnar upp varð ég að setja eitthvað á þær og eins og allir vita þá er algerlega nauðsynlegt að endurraða öllum eldhússkápunum, skúffunum og hillunum þegar eitthvað eitt breytist ;)
mér hefur tekist listivel að nota alla frídagana mína undanfarið í eitthvað annað en að ákveða hvernig ég vilji hafa eldhúsið þannig að þetta miðast illa áfram :) ég fer að klára, bráðum, enda fer að koma tími á piparkökur og smákökur ... ég stefni auðvitað á jólabakstur í ár sem endranær hvort af verði veit ég samt ekki ;)
það sem er helst í fréttum er þó auðvitað að ég sé fullkomlega :)
ég fór í leyseraðgerð fyrir að verða þrem vikum og hún heppnaðist "betur en hægt er að vona" að sögn læknisins og ég sé bókstaflega ALLT :) ég sé bílnúmer á bílum sem ég mæti, ég get lesið skilti í fjarlægð og lesið fyrir svefninn án þess að þurfa að leita að gleraugunum í rúminu morguninn eftir því ég sofnaði með þau (og finna þau krambúleruð upp við vegginn - titaníumumgjarðir margborguðu sig) svo er ég alltaf reglulega að muna að ég þarf ekki að setja í mig linsurnar eða taka þær úr mér og alltaf fæ ég risavaxið sólheimaglott á andlitið - það er helsta aukaverkunin, harðsperrur í kinnarnar ;)
lifið heil og sjáumst bráðum :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Ég öfunda þig af því að geta farið í leyser....sjónin mín er alltaf að breytast svo ég er ekki kandidat í þetta:(
Gangi þér vel að breyta, bæta og endurhanna eldhúsið. Maður getur ekki hent sér í svona hluti þeir þarfnast umhugsunar og ígrundunar:D
Til hamingju með sýnina :) Frábært að aðgerðin heppnaðist svona vel :)
Gummi
Frábært að heyra Guðrún mín, innilega til hamingju með nýja sjón! Þú átt heldur betur eftir að sjá mig vel á morgun, best að skrúbba sig vel!!! :)
Þetta var sko frá mér, Helgu :)
Til hamingju með nýja lúkkið.
kv. ásdís p
Skrifa ummæli