sunnudagur, nóvember 04, 2007

Góðan og blessaðan daginn:)

segið mér, vegna þess að ég er orðin ringluð og get ekki svarað fyrirspurn góðvinar míns um í hvora áttina þessi unga stúlka er að snúa sér, hvort snýr hún sér réttsælis eða rangsælis?

annarsvar ég að vakna eftir fyrstu vaktina mína í nýju vinnunni og mér líður bara slatti vel:) ég held jafnvel að ég eigi alveg eftir að ráða við að vera fangavörður, þó að fangageymslurnar hafi verið fullar í nótt þá reddaðist þetta allt saman:)

verð samt að venjast búningnum aðeins, hef aldrei unnið með bindi og síðast þegar ég var í blárri skyrtu, með "skynsamlega hárgreiðslu" og varð að fara í plasthanska fyrir
viðskiptavininn var það ekki vegna hlandbleytu heldur fisks ... en á móti kemur þá er ammóníak í skötunni og þegar ég var að vinna í skötutunnunum mátti ég heldur ekki vera ein oní henni þannig að ég er viss um að ég eigi eftir að venjast þessu eins og andarungi tjörninni:)

Lifið heil

16 ummæli:

  1. Nafnlaus1:09 e.h.

    Til hamingju með nýju vinnuna :) Konan á myndinni er að snúa sér réttsælis sýnist mér?

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus3:09 e.h.

    Konan snýr sér í báðar áttir samt ekki í einu heldur til skiptis!!!
    Ég hef aldrei verið með skynsamlega hárgreiðslu held ég en til hamingju með nýju vinnuna og auðvitað áttu eftir að venjast þessu...getur allt!!!

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus5:27 e.h.

    Er ég orðinn klikk? Hún snýr sér bara í eina átt og það er réttsælis.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus8:33 f.h.

    Til hamingju með nýju vinnuna!
    Þú ferð létt með þetta og ég vona bara að þú verðir á vakt ef að ég skyldi koma mér í klandur í höfuðborginni ;)

    SvaraEyða
  5. Ú je!
    Maður verður að sem sagt að pissa á vegg, mótmæla svo harðlega þegar löggan kemur að sekta mig og rífa hana með mikilli dramatík og látum og vona að þeir handtaki mig og skelli mér í geymslu - þá get ég hitt þig og séð þig í vinnunni, hehehehe

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus2:09 e.h.

    Úff, norðlensku þýðendur - passið bara að réttur fangavörður sé á vakt ef þið ætlið út í það að láta handtaka ykkur. Ég er með vaktaplanið hennar Synetu :)

    Syneta, er ekki annars gaman í nýju vinnunni? Voru ekki fullir klefarnir um helgina? Go girl! hehehe

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus12:54 e.h.

    Já, til hamingju með nýju vinnuna! Mér finnst þú alltaf velja svo spennandi störf sem ég myndi sjálf aldrei þora að prófa.

    Annars, þá er myndin af stelpunni byggð á skynjunarsálfræði, minnig mig. Áttin sem hún hreyfist í breytist þegar þú horfir niður á skuggann á henni.

    SvaraEyða
  8. Nafnlaus7:13 e.h.

    ég hlýt að vera með bilaða skynjun...ég þarf ekkert að horfa á skuggann, hún bara skiptir um átt nokkuð jafnt. Ég var farin að spá í hvort þetta væri ekki bara tímastillt:o)

    SvaraEyða
  9. ég verð bara að árétta það enn og aftur hvað ég er spennt yfir nýju vinnunni þinni. er að spá í að fá mér vinnu í líkhúsi til að geta verið næstum jafn kúl.

    SvaraEyða
  10. Nafnlaus6:36 e.h.

    fer eitthvað eftir heilastarfsemi/tengslum er mér sagt hvernig hún snýst hjá þeim sem á horfir - flott nýtt djobb - vöðvarnir nýtast kannski eitthvað þarna? Ertu með á Vegamót annað kvöld (fimmtud. 8.11.) það er verið að kveðja Lufs þar kl.19.00. kv. áp

    SvaraEyða
  11. Til hamingju með nýju vinnuna!
    ertu með alvörubindi eða bara smellubindi? ég var bara með smellubindi þegar ég var í tollinum á sínum tíma en ég vona að fangavarðabúningurinn sé þægilegri en tollvarðbúningurinn var þá.

    SvaraEyða
  12. Nafnlaus11:13 f.h.

    Sæl Guðrún

    Til hamingju með nýju vinnuna.

    Kær kveðja

    Sigurjón Þórðar

    SvaraEyða
  13. ég vil sögur úr djeilinu. ef þú ert bundin þagnarskyldu þá máttu senda mér þær í tölvupósti.

    SvaraEyða
  14. Nafnlaus8:40 e.h.

    Faúm við ekki að vita hvort að stúlkan snýr sér réttsælis eða rangsælis. Ég segi ekki að ég sé að klikkast yfir þessari spurningu en það væri gaman að vita það :)

    SvaraEyða
  15. Nafnlaus8:41 e.h.

    Nafnlaus er Gummi, bloody javascripts og keyboard errors...garg, ég hata tölvur...

    SvaraEyða
  16. Ertu með bindi í vinnunni?! Jössus. Hvað heldurðu að þú endist þarna lengi?


    ...bindi... !

    SvaraEyða