miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Það er nauðsynlegt að læra eitthvað nýtt á hverjum degi, ef þið lærið ekki eitthvað nýtt er gott að rifja eitthvað upp eða komast að einhverju um ykkur sjálf - núna verður smá kennslustund:

Eitthvað nýtt: Kárahjnúkar eru skrifaðir svo fyrir norðan en Kárahnúkar fyrir sunnan, þetta á við um alla hnjúka/hnúka landsins - þeir eru með joði fyrir norðan en ekki fyrir sunnan, samanber Hvannadalshnúkur fyrir sunnan:)

Eitthvað gamalt:


rifjið upp hvernig þetta virkar allt saman, þið getið lesið um nánar um "vinnsluna" hérna

og að lokum, eitthvað sem ég er nýbúin að læra um sjálfa mig: bregðarinn í mér hefur alltaf verið frekar stuttur en hann er eiginlega horfinn núna - mér er sagt að fólki sem bregður hafi eitthvað á samviskunni, ég hef ekki hugmynd um hvað ég er að fela en kannski verður það næsta staðreynd um sjálfa mig - nema það sé of skuggalegt auðvitað:)

Góðar stundir

5 ummæli:

  1. ég vissi ekki þetta með hnúkar og hnjúkar...gott að læra eitthvað nýtt!!!
    Ég hlýt að vera með eitthvað mikið á samviskunni því mér bregður þegar fólk sem er við hliðina á mér talar...
    í sláturgerð fannst mér keppurinn alltaf skemmtilegur því það var svo lítitð að sauma....er að spá í hvort laki sé líka svona lítill??? orðin nokkur ár síðan ég saumaði keppi og hrærði blóðmör og lifrapylsu!!!!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus4:59 e.h.

    ég vil endilega sömu lyf og þú ert á Guðrún mín ,lol

    SvaraEyða
  3. ferlega ertu sniðug að vera með svona kennslustund.

    SvaraEyða
  4. ferlega ertu sniðug að vera með svona kennslustund.

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus9:19 f.h.

    Hvert fór hann? Bregðarinn sko, minn er jafnvel styttri nú en vanalega - kannski vegna stress... Hvað gerðirðu eða er vöðvamassinn bara búinn að taka allt plássið?

    SvaraEyða