tag:blogger.com,1999:blog-54039012024-03-14T15:50:33.414+00:00Try not. Do, or do not. There is no try. - YodaWhat would you attempt if you knew you could not fail?Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.comBlogger786125tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-36948839787285907952020-03-16T22:27:00.002+00:002020-03-17T16:50:41.680+00:00Fyrsti dagur samkomubannsins 2020

Ég er ekki nægilega vel að mér í sögu til að segja frá því hvenær (eða hvort) samkomubann hafi áður verið hér á landi. Mér finnst eins og hafi lesið um slíkt þegar Spænska veikin gekk yfir um 1920 en ég veit ekki hvort það er rétt. Né heldur hvernig borgarbúar tóku því. Kannski mundi ég vita það ef ég læsi fjölmiðla af einhverju viti?

Þetta eru væntanlega líka upplýsingar sem ég ætti að geta flett upp en, kalt mat; þær skipta ekki máli akkúrat núna.

Það er samkomubann á Íslandi í mars 2020. Það er verið að telja inn í verslanir. Messum, tónleikum, sýningum og alls konar viðburðum hefur verið frestað og aflýst næstu vikurnar og það gera allir sitt besta að forðast alla hina. Fyrir innhverft fólk eins og mig skiptir þetta ekki svo miklu máli. Undanfarið hef ég meira að segja verið að grínast með að ég hafi verið að æfa mig fyrir þessar aðstæður allt mitt líf. Einvera hræðir mig ekki en einvera verndar ekki heldur og fyrir suma er hún hrikaleg. Eins er óvissan hrikaleg. Hvernig smitast veiran nákvæmlega? Hvers vegna verða sumir bara slappir en aðrir deyja? Hvers vegna er ekkert annað í fjölmiðlum og endalaust verið að hamra á hversu margir hafi smitast og dáið? En hvernig væri hægt að vara alla við ef það væri ekki stöðugt verið að búa til fréttir um ástandið? Hvenær lýkur þessu? Hvernig verður sagt frá þessu tímabili í sögubókum framtíðarinnar? Hvers vegna óttumst við þessa veiru svona mikið en hunsum þær 300 milljónir sem veikjast af malaríu á hverju ári? Milljón einstaklingar deyja árlega út malaríu og flestir sem deyja eru börn undir fimm ára aldri. Rúmlega 9 milljónir deyja úr hungri, 25 þúsund á dag og 75 milljónir hafa sýkst af HIV frá upphafi þess faraldrar og þrátt fyrir ný lyf og tækniframfarir deyja enn 140 þúsund á ári úr fylgikvillum HIV.

Vesturlönd eru séra Jón og sömuleiðis gagnkynhneigðir, fullorðnir Vesturlandabúar. Það er líklega svarið. Ég er séra Jóna. Ég þvæ mér um hendurnar, hósta í olbogabótina eins og venjulega og knúsa ekki fólk sem er lasið. Ekki frekar en venjulega. Og í staðinn fyrir að fylgjast með fréttum safna ég þjóðfræðiefni um Covid 19, lögum til að syngja í 20 sekúndna handþvotti og klósettpappírsbröndurum. Ég skoða spegilmynd óttaslegins samfélagsins sem er í upplausn og hlæ.

En mikið stendur hið opinbera upplýsingateymi sig vel, Þórólfur, Alma og Víðir. Og ég er afskaplega hrifin af slagorðinu þeirra, við erum öll almannavarnir.

Lifið heil og hraust.

Góðar stundir.

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-62615699746379562702020-03-09T22:39:00.000+00:002020-03-09T22:39:10.074+00:00Kaupmannahöfn

Síðasta miðvikudag flaug ég til Kaupmannahafnar til að sitja COPM námskeið með fimm vinnufélögum mínum. Ég var í Kaupmannahöfn sumarið 2010 með fólkinu mínu. Við vorum sjö saman, þrjú fullorðin og fjögur börn og áður en við fórum við Köben höfðum við verið viku á Jótlandi þar sem við fórum í Legoland og Lalandia. Í Kaupmannahöfn fórum við í Tívolí og í dýragarðinn og Rundeturn og spiluðum og skemmtum okkur í alla staði mjög vel.

Ég fór með mömmu og pabba og bróður mínum í sambærilega ferð þegar ég var á svipuðum aldri og krakkarnir voru þá og man hana ennþá. Ég var líka í Köben þegar ég var unglingur á leið í lýðháskóla á Jótlandi. Þá var ég með kort sem vinur hans pabba var búinn að merkja inn alla borgarhlutana sem ég átti ekki að skoða. Stórir hringir með krossum yfir Ystegade, Christaniu og Nørrebro svo forvitni unglingurinn færi sér ekki að voða á röltinu. Ég naut borgarinnar þá en í síðustu viku var fyrsta skipti sem ég skoðaði mig um sem fullorðin einstaklingur án þess að hafa fyrirmæli um hvað mætti og mætti ekki. Nýju vinnufélagar mínir eru sérlega skemmtilegt og almennilegt fólk sem er gaman að ferðast með. Þær þekkja alla borgina, tala dönsku þó að ég hafi sjálf farið að segja nokkrar setningar á föstudagskvöldinu (eftir tvo heila daga á námskeiði sem fram fór á dönsku!) var mjög gott að vera með heimamönnum.

Ég fór að hugsa um það þegar ég var á röltinu, t.d að skoða Litlu hafmeyjuna - sem er sannarlega lítil, ég held ég hafi séð fyrir mér Frelsistyttuna á grjóti? - um hvað það er nákvæmlega sem breytist þegar við verðum fullorðin? Núna skoðaði ég að vísu Nørrebro, enda hverfið gerbreytt, en spennan yfir að skoða borgina var sú sama og þegar ég var unglingur. Ég fann tilfinningar sem ég tengdi við að skoða aðrar borgir eftir að ég eltist. Þegar ég labbaði um og reyndi að týna mér í París, London og New York. Ég hlustaði meira að segja á nokkrar plötur sem ég hef ekki hlustað á lengi. Að vísu núna í þráðlausum heyrnartólum og á Spotify ekki af kassettu í vasadiskóinu en hugrenningarnar voru þær sömu.

Hvenær vitum við hvenær við verðum fullorðin í alvörunni? Eru það árin? Gráu hárin? Ég er orðin 42 ára en segist stundum enn ætla að gera alls konar þegar ég verð orðin stór. Ég tek ennþá ákvarðanir sem eru misvel ígrundaðar og er ennþá að kynnast sjálfri mér. Þegar ég var tvítug hélt ég að eftir fertugt myndi ég ekki þyrsta eins í að ferðast og kanna og upplifa - ef ég hugsaði það eitthvað yfir höfuð. Þegar ég var tvítug hélt ég líka kannski að eftir fertugt myndi ég vera með’idda, vita hvað ég væri að gera og hvert ég stefndi en sannleikurinn er sá að ég er enn að þykjast. Ég keyri ennþá stundum of hratt, borða popp í kvöldmat, fyllist enn eirðarleysi og dreymi um hluti sem eru ekki viðeigandi þrátt fyrir að allt sé fertugum fært.

Mig langar aftur til Kaupmannahafnar einhvern daginn og finnast ég vera 15 árum yngri.

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-41040848998705185972018-05-07T19:09:00.003+00:002018-05-07T19:09:36.185+00:00Fyndið að eiga blogg og hafa átt það í mörg, mörg ár. Ég held að það sé ekkert að því að vera ekki tilbúin að sleppa því þrátt fyrir að skrifa sjaldan.

Eftir nánari skoðun sé ég að það eru 10 dagar þangað til þessi síða á 15 ára afmæli. Mig langar til að blása til veislu, ekki erfidrykkju.

Hversu oft þarf að skrifa til að réttlæta það að halda bloggi lifandi?

Ekki er það innihaldið sem skiptir máli því þá væru flestöll blogg og nær allir bloggarar dauðadæmdir. Jafnvel góðir bloggarar eiga inni slæma daga þar sem þeir bulla meira en þeir blómstra.

Það er, finnst mér, við hæfi að nota þennan miðil til að tilkynna breytingar á lífinu. Þær breytingar sem hafa orðið síðan síðast eru nokkrar. Meðal þeirra má nefna:

Jólaskrautið er komið út í bílskúr og nágrannakettirnir þurfa að bíða næstu jóla til að halda líkamsræktinni áfram.

Mótorhjólið er selt. Það tekur meira á mig en ég þori að viðurkenna. Seldi það 28. apríl eftir næstum 12 ára samveru. En það var kominn tími á breytingar og núna fær það að gleðja einhvern annan. Ég er samt ekkert hætt að hjóla, mig langar bara í öðruvísi hjól og ég mun finna nákvæmlega það sem mig langar í bráðum. Eða þegar ég finn það.

Ég er að læra að vera að jógakennari. Svo ég stelist í frasa stórvinar míns, ég legg ekki meira á ykkur.

Ég vinn hjá Reykjavíkurborg.

Kötturinn heitir Skrímsli.

Ég er á leið í sauðburð í fimmta sinn. Þriðja árið í röð mun ég vera ein stundum í fjárhúsunum ... líklega á næturvöktum. Nema ég hafi gleymt öllu síðan í fyrra.

Ég er líka á leið til Spánar í Wilderness Therapy Training

Og ég kann að gera heimasíður

Lifið heil og góðar stundir

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-85003788799755287082017-12-10T17:59:00.001+00:002017-12-10T18:00:09.318+00:00Í desember 2017
Aftur segi ég nei, ég er ekki til í að hætta að blogga þrátt fyrir að það sé gamaldags. Kannski er ég bara gamaldags?

En í öðrum fréttum þá keypti Gummi leysirljóskastara sem varpar grænum og rauðum doppum og myndum. Ljósið er út í garðinum og hreyfist og breytist og færir sig yfir garðinn og húsvegginn. Þetta er fallegt og jólalegt en það er enn meira stuð fyrir ketti hverfisins að heimsækja garðinn okkar núna og elta ljósin.
Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-8919579891901309552015-11-07T08:56:00.001+00:002015-11-07T08:56:10.170+00:00Alls konar fólkÞað er alls konar fólk sem kemur hingað eins og ég sagði í gær :) hér má til dæmis sjá tvo aldna rokkara sem sátu ásamt fleirum á næsta borði í morgunmatnum ;)

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-6228018756137066642015-11-06T14:14:00.001+00:002015-11-06T14:39:39.810+00:00Risinn á baðherberginuEitthvað klikkaði að setja póstinn inn í gær og það sem ég skrifaði í morgun vistaðist hvergi - það er ekki hægt að treysta á internet á ferðalögum ;)

Þannig að hér er tilraun þrjú:

Við Harpa erum á hosteli hér í Munchen nálægt aðalbrautarstöðinni. Mjög nálægt, í næstu götu við, en þetta er samt mjög fínt og snyrtilegt allt saman (já, ég er með fordóma gagnvart gististöðum nálægt aðaljárnbrautarstöðvum). Það er hérna fólk alls staðar að úr heiminum og þó nokkuð um fólk frá Asíu.

Núna er ég ekki sérstaklega lítil kona en mér finnst yfirleitt ég heldur ekki vera neinn risi. Þangað til ég fór inná bað í morgun. Nývöknuð með myndarlegan samfarahnakka (eins og sagt er, það var ekki raunverulega orsök hins úfna hárs - líklegri ástæða var gríðarlega stór og óstýrilátan koddi sem ég barðist við í alla nótt), í plastinniskóm og náttfötum. Fyrir framan hvern einasta spegil og vask stóðu nokkrar asískar skólastelpur. Þær voru að sinna hinum ýmsu morgunverkum, hár, tennur, farði, neglur og ein virtist vera að sauma fötin á sig. Þær voru rosalega margar en virtust kannski fleiri því baðherbergið er lítið.

Þegar ég gekk inn leið mér eins og risa en ekki bara risa heldur risa úr grárri forneskju. Þær virtust allar vera helmingi yngri en ég og helmingi minni. Ég geri ráð fyrir að þær séu úr samfélagi sem virðir eldra og stærra fólk, kannski frá heimkynnum súmó íþróttarinnar, því ég fékk strax pláss við vask og fékk að hafa hann útaf fyrir mig. Ég byrjaði morgunverkin mín og horfði varlega í kringum mig á meðan. Að lokum stöðvuðust augu mín á spegilmyndinni fyrir framan mig. Úfið hár eins og áður segir, svefndrukkið andlit, smá tannkrem í munnvikinu og skærgulur bolur. Asísku stelpurnar í kringum mig náðu mér upp að bringu og á bringunni minni, í augnhæð við þær var broskarl. Í kringum broskarlinn stóð "I took my pills today".

Núna eru þær kannski líka með fordóma fyrir gististöðum nálægt aðaljárnbrautarstöðvum?
Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-5029284509556790842015-11-02T21:27:00.004+00:002015-11-02T21:27:52.569+00:00Búin í skólanum! Orðin iðjuþjálfi og orðin fær um að lifa lífinu eins og það á að lifast ... jújú, amk fræðilega séð :) Hins vegar er ég farin að setja mér alls konar markmið og ef þau eru nægilega sniðug þá gengur mér alveg glimmrandi vel að ná þeim - flestum að minnsta kosti :)

Núna er það nýjasta markmiðið fyrir nóvember: blogga á þeim dögum sem ber uppá sléttar tölur, 2., 4., og svo framvegis - hvernig hljómar það?

Sjáum til ... þetta er hið minnsta gerlegra en að skrifa skáldsögu í nóvember eins og ég var að hugsa um: http://nanowrimo.org ég geri það kannski bara á næsta ári?

#netturnóvemberSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-15113621787817601962015-08-06T09:12:00.001+00:002015-08-06T09:12:04.315+00:00Sumarbústaðar bloggEr ekki góð hugmynd að blogga úr bústaðnum sem ég hef verið í síðan á föstudaginn?

Eflaust. Bíltúr á jeppum umhverfis Langavatn, ís á Erpsstöðum, kaupfélagsrúntur í Búðardal, geiturnar á Háafelli, tvisvar, Húsafell, Hraunfossar og Barnafossar, Kleppjárnsreykir, jarðaber, Krosslaug, fyrrverandi lýðháskólinn á Hvítárbökkum, flækt folald, Samgöngusafnið í Brákarey, Hreðavatn, Glanni, Kaffi kyrrð, grill, spil, pottur, hekl, frábær matur og gríðarlega góður félagsskapur. Í dag förum við hringinn um Snæfellsnesið og endum í grillveislu í Ögri. Þannig dagur getur ekki klikkað.

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-66160884901130285862015-07-11T08:57:00.001+00:002015-07-11T08:57:03.871+00:00Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-89867970723678135272015-07-10T22:21:00.001+00:002015-07-10T22:21:04.370+00:00Það er til app fyrir allt... líka til að blogga svo núna get ég farið að blogga beint úr símanum mínum. Rosaleg tækni er þetta og rosalega er ég tæknivædd ;)Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-44601881728731767102014-03-09T09:14:00.001+00:002014-03-09T09:15:20.212+00:00Hugljúft og ögn sorglegt á sunnudagsmorgni

… ég er að berjast við heimapróf … mig langar ekki til að klára það en eins og svo margt annað í þessu lífi þá er ekki í boði að hætta núna.

Annars gengur þetta ágætlega, svona heilt yfir. Ég er að fara til Finnlands næsta haust og allt saman :) … ef ég næ að halda meðaleinkunni nægilega hárri þannig það er líklega best að halda áfram, hlusta kannski á smá meiri Billie og Ninu og Ellu vinkonur mínar en hætta að pikka eitthvað annað en þetta blessaða próf.

Góðar stundirSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-46452959667256949192013-10-17T20:42:00.001+00:002013-10-17T20:43:02.177+00:00FukumaruFallegar myndir af fallegu sambandi

Þegar ég sé svona myndir sakna ég alltaf Fídels, ætli það eigi nokkuð eftir að breytast?

Vona ekki.

Góðar stundirSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-20623990984875966992013-10-06T10:46:00.001+00:002013-10-06T10:46:14.691+00:00... allt að koma ;)

Einmitt það sem ég vildi sagt hafa :)

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-14876947041584835802013-03-23T17:41:00.000+00:002013-03-23T17:42:38.482+00:00Fyrsta vettvangsnámið búið... það kláraðist bara allt í einu, bara eiginlega án þess að ég gerði mér grein fyrir því. En þannig er það víst þegar það er gaman, þessar vikur sem ég varði á Æfingastöðinni voru einu orði sagt dásamlegar! :) Ekki bara starfsfólkið og staðurinn sjálfur heldur líka krakkarnir og allt sem ég fékk að læra og gera og prófa og hugsa um ... já, það er bara þannig, mér er ætlað að vera iðjuþjálfi :)

Og það er frábært að vera búin að fatta það loksins eftir að hafa prófað næstum því allt hitt ;)

Lifið heilSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-31240829499272185492013-02-24T11:52:00.001+00:002013-02-24T11:52:29.007+00:00Fyrsta alvöru vettvangsnámið mitt í náminu byrjar á morgun og ég er ekki frá því að ég sé barasta drullustressuð?

Það er samt ekki eins og ég sé að fara að vinna í alvöru, standa á eigin fótum og gera það sem þarf að gera eða þannig. Það verður haldið í hendina á mér, „ég fer þangað til að læra“ og ég fæ væntanlega ekki mikið að gera ein en samt líður mér eins og Forrest Gump. Þegar hann stígur um borð í rútuna sem á að flytja hann í grunnbúðirnar eftir að hann skráði sig í herinn.

At first, it seemed like I made a mistake ... seeing how it was my induction day and I was already gettin' yelled at.

I didn't know who I might meet or what they might ask.

Held samt að ég sé örugg, iðjuþjálfar æpa ekki á annað fólk (nema kannski til að hvetja og þá er það varla æp) fyrir utan auðvitað að ég ætti að vera orðin vön alls konar mismunandi samskiptamynstrum ;) það er líka margt verra en að vera Forrest Gump.

Góðar stundir

Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-21332140084956825162012-10-13T22:37:00.000+00:002012-10-13T22:37:54.872+00:00Ég var spurð um daginn hvort ég hefði bloggað eitthvað nýlega ... nei, alls ekki nýlega. En ég er langt frá því hætt að blogga, hef bara verið upptekin við aðra hluti undanfarið - eins og facebook *hóst*

Annað árið í iðjuþjálfun hafið og er jafnvel skemmtilegra en fyrsta árið !

En ég næ ekki að lesa nóg, ég næ varla að lesa það sem ég á að lesa og það sem ég á að lesa er í bókum sem eru fullar af svo áhugaverðu efni að mig langar til að lesa meira ... mjög gaman að vera í námi þar sem allt efnið er spennandi :) ok, kannski ekki aaaaalllt efnið en langstærsti hlutinn og meira að segja það sem hræddi mig fyrir önnina er ekki eins skelfilegt núna þegar á hólminn er komið :)

Ég var sumsé drulluhrædd við fag sem heitir Hreyfingafræði því í henni eigum við að reikna og nota stærðfræði og finna út krafta og skilja vektora og breyta kílóum í Newton og alls konar sem er bara, já, dót sem ég er drulluhrædd við því mér finnst ég aldrei hafa verið góð í ... vísindum ;) en svo kemur í ljós að ég skil þetta bara ágætlega. Ég kann amk að fylgja leiðbeiningum þannig að í þessum tveim verkefnum sem búin eru þá hef ég fengið 9,5 og 10! Já, ekki 1,0 heldur 10,0! Jamms, það má klappa fyrir mér :)

og núna er ég búin að blogga, sjálfhælið, þægilega langt, broskallar og upphrópunarmerki, upplýsingar um lífið og persónulega hagi, jamms, er þetta ekki bara eins og leiðbeiningarnar biðja um?

Fæ ég 10?

Lifið heilSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-22468256015777107332012-06-17T17:57:00.000+00:002012-06-17T17:57:51.742+00:00Gleðilega þjóðhátíð

Fáni, í tilefni dagsins :)

Lifið heilSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-28346030715994224022012-06-14T21:08:00.001+00:002012-06-14T22:49:51.233+00:00OverlyÉg fór að sjá Snow White and the Huntsman í Smárabíói á þriðjudaginn og ... æ, ég hlakkaði til að sjá hana en hún var barasta alls ekki eins góð og ég hafði vonað. Ef hún hefði verið morgunkorn hefði hún verið Kornflex OG Cherrios OG Lucky Charms OG Wheetos ... með sykri og candyfloss OG jarðaberjum ...
Fullt af góðum hugmyndum en of hæg og of nákvæm og of fyrirsjánleg í því að vera óvænt og frumleg einhvern veginn ... þið þurfið ekki að sjá hana í bíó :)
... og í hvaða heimi er Kirsten Stewart fallegri en Charlize Theron? og hver heldur því fram að hún geti leikið?Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-67773028482031995812012-06-07T02:30:00.000+00:002012-06-07T02:30:01.553+00:00Fyrsta bloggið á nýju ári ...... ekki seinna vænna. Árið er næstum hálfnað og ég er ekki alveg að standa mig í þessu ;)
En ég ætla ekki að láta þetta blogg deyja, sérstaklega ekki vegna þess að það eru komnir fullt af nýjum fídusum og alls konar sem er hægt að gera fínt ... sýnist mér amk?
Fyrsta árið í skólanum búið og ég er að einu ári nær því að verða iðjuþjálfi! Tæplega ári eftir að ég vissi að iðjuþjálfun væri til ;) skil ekki hvernig þessi starfstétt fór framhjá mér? hefði byrjað á þessu námi fyrir mörgum árum ef ég hefði vitað af því! :)
... en svo hugsa ég líka að ég hefði ekki verið eins vel undirbúin í það. Það að ég hafi ekki vitað ef því fyrr en í fyrra er mustarðsfræ. Ég veit af því núna eftir að hafa lært allt sem ég hef lært, unnið við allt sem ég hef unnið við og kynnst lífinu á ólíka vegu, þroskaðri og víðsýnni og vonandi betri manneskja?
Núna er tíminn til að læra iðjuþjálfun því ég veit að þetta er það sem ég vil gera. Get alveg sagt ykkur að það er alger gargandi snilld að vera komin með það á hreint við hvað ég vil vinna ... kannski aðeins þangað til ég skipti um skoðun aftur? hver veit? en ég er að græða heilan haug á þessu námi núna og ég hef ekki enn tapað á að læra meira ;)
Og til upplýsinga þá er þetta hérna rosalega flott síða ;)
Lifið heil
.... frekar ömurlegt samt að þetta skuli allt koma í belg og biðu þrátt fyrir að ég hafi reynt að setja inn almennleg bil :/ þessi nýji blogger er augljóslega aðeins fyrir blitzblogg um eitt afmarkað efni ;)Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-77996488365302797352011-12-21T21:49:00.000+00:002011-12-21T21:49:43.235+00:00Eitt af þessum lögum sem ég get hlustað á aftur og aftur ...

... en núna get ég ekki hlustað almennilega á það því ég er í vinnunni og missti annað heyratólið ofaní kaffibollann :/

Lifið heil :)Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-35427096406418755362011-11-08T06:26:00.002+00:002011-11-08T06:36:34.588+00:00svaf ágætlega í gær en núna þegar það er bara tæpur klukkutími eftir af vaktinni þá er ég farin að rembast aðeins við að halda mér vakandi, þrátt fyrir hávaða í vinnunni ...

þetta lag hjálpar pottþétt ;)

fattaði síðustu nótt að ég er búin að vera lasin núna rúmlega þrjár vikur þannig að ég pantaði tíma hjá lækni áður en ég fór að sofa og fékk strax tíma 9:20 hjá stelpu sem getur varla hafa verið nægilega gömul til að vera læknir - ég er hins vegar farin að hljóma eins og gamla fólkið þannig að það er augljóslega ekkert að marka mig? ég sagði henni hvað væri að hrjá mig og hvernig þetta hefði þróast. hún hlustaði mig og heyrði "berkjuhljóð", skoðaði eyrun og þrýsti á eitlanna ... þetta venjulega og sagði svo að það eina í stöðunni væru sýklalyf.

er það í alvöru ennþá það eina í stöðunni? er ekki hægt að gera neitt nema láta fólk fá sýklalyf? hún vissi ekki hvað var að mér almennilega, viðurkenndi að hún vissi ekki hvað orsakaði ýmis einkenni, til dæmis kláða á iljunum og höndunum, en ætlaði samt að skrifa uppá sýklalyf. þegar ég sagði sem er að þegar ég tek sýklalyf verð ég yfirleitt veikari af þeim en af pestinni sem plagar mig sagði hún að þá gæti hún bara látið mig hafa astmapúst þannig að ég yrði fljótari að jafna mig þegar ég er búin að reyna á mig (verð móð eins og lungnasjúklingur með þessa hálsbólgu) og mig myndi þá líka svima minna þegar ég næ illa andanum ... púst?

veit ekki almennilega til hvers ég ætlaðist? kannski að hún myndi taka blóðprufu og sjá hvort þetta væri bara flensa eða eitthvað annað? ef þetta er bara flensa þá fer hún væntanlega þó það taki tíma? en ef þetta er eitthvað annað sem versnar? kannski mega læknar almennt ekkert vera að eyða peningum í blóðprufur? kannski mega þeir bara ávísa sýklalyfjum/pústi og sterakremi (á kláðan sko) en ekki eitthvað flóknara?

en jú, hún sagði mér að vísu líka að láta mér batna, ég er að spá í að fara eftir þeim læknisráðum

en ég er líka að spá í að gera það pústlaust

lifið heil og hraustSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-81850135409217035962011-08-19T18:12:00.000+00:002011-08-19T18:12:12.636+00:00Þessi væri sko velkominn í afmælið mitt! Þvílíkt stuð og gleði :)

Life is supposed to be silly, not so serious!

Horfði á þetta í vinnunni og já, ég dansaði með honum, það er ekki annað hægt ;)

Haldið danspartý og verið glöð!Synetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-72367802418117098332011-07-22T23:03:00.000+00:002011-07-22T23:03:35.822+00:00Ten Sharp - You (High Quality)Talandi um 1992 ...

Lifið heilSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-78186640135089554582011-07-20T17:59:00.000+00:002011-07-20T17:59:43.030+00:00Rhythm is a dancerhvernig er hægt að það séu komin mörg ár síðan ég hlustaði á þetta?

áttundi/níundi bekkur ... I'm serious as cancer when I say rhythm is a dancer!

skólaböll í menntaskóla ... Think of me and burn, and let me hold your hand (what???)

... og eftir að hafa séð þetta myndband get ég ekki annað en verið fegin að ekkert okkar hafi átt vídeóupptökuvél þegar þetta lag var vinsælt annars væru til óvéfengjanlegar sannanir fyrir því að við dönsuðum þetta útum allt aftur og aftur og aftur og aftur ...

öss ... ekki góð tónlist en vá hvað þetta virtust vera fín lög á sínum tíma ;)

Góðar stundirSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-5403901.post-42752912523130835842011-07-04T20:32:00.001+00:002011-07-04T20:34:47.523+00:00mig hefur verið að dreyma alveg rosalega mikið undanfarið, óvenjulega mikið, enda mikið að gerast þessa dagana.

um daginn dreymdi mig að ég væri með fólkinu sem ég umgekkst mest á menntaskólaárunum og það var heilmikið að gerast, bæði þá og í draumnum. við vorum í turni og alltaf endalaust á leiðinni upp og niður og inn og út og sækja þennan og skutla þessum, baka og elda og borða og drekka ... bara eins og við vorum alltaf að gera nema við vorum ekki í turni þá, aðallega heima hjá þeim sem átti foreldra í útlöndum og síðast í íbúð á Seljaveginum ... þetta var afskaplega fínn draumur en þegar síminn klukkan hringdi sex um morguninn (á laugardegi nota bene, ónáttúrulegt í alla staði) var ég verulega djúpt í draumnum ennþá. ég settist upp og ætlaði frammúr þegar vinur minn sagði að ég gæti ekki farið því við ætluðum að nota símann minn til að hringja í þann sem við vorum að sækja því þá gætum við hringt ókeypis innan kerfis því það átti enginn inneign ... það var ekkert okkar með síma á þessum tíma þannig að inneignarvandamál voru ekki okkar vandamál en í draumnum var það sjálfsagt. ég sagðist verða að fara því ég yrði að mæta sjö en þau mættu auðvitað fá símann minn lánaðan þó ég færi.

þegar ég var hálfnuð að bursta tennurnar fattaði ég að það myndi engum hjálpa þó ég skildi símann minn eftir á miðju rúminu mínu, ekki fyrr.

í gær settist ég upp og röflaði um vatn á gluggunum, lokaði þakglugga, röflaði meira, spjallaði og fór svo að hrjóta ... man ekki eftir neinu af þessu því ég var sofandi og mér var sagt að ég hefði gert þetta ... en auðvitað trúi ég ekki orði því ég hrýt ekki

dásamlegt lag ... flutt af manninum með rödd guðs

lifið heilSynetahttp://www.blogger.com/profile/09263073421395094763noreply@blogger.com1